Frjáls verslun - 01.03.1975, Blaðsíða 81
— Við getum því miður
ekki fært yður meira að
drekka.
— Hvað á það að þýða? Ég
er alveg ódrukkinn. Sjáið
köttinn þarna í dyrunum.
Hann er bara með tvö augu og
það sýnir, að ég sé alls ekki
tvöfalt.
— Þessi köttur snýr aftur-
endanum í yður enda er hann
á leiðinni út, herra minn.
— Sigríður Magnúsdóttir! Á
ég að trúa því, að hádegis-
maturinn sé ckki tilbúinn?
— Jóhanna. Skrifið TRÚN-
AÐARMÁL á þetta minnisblað.
Ég ætla að sjá til þess að a.IIt
fólkið í fyrirtækinu lesi það
vandlega.
— • —
Hjúkrunarkonan við sjúkling-
inn:
— Auðvitað banna reglurn-
ar, að þér kyssið mig. En eig-
inlega má ég ekki vera hérna
í rúminu 'hjá yður heldur.
— Svo ætlum við að fá morgunverð tvisvar í viku.
— • —
Þekktur sálfræðingur hafði
lokið fyrirlestri sínum og
bauðst til að svara spurning-
um frá áheyrendum. Lágvax-
inn maður reis á fætur og
sp'urði:
— Sögðuð þér ekki, að góð-
ir pókerspilarar pössuðu vel í
mikilvæg stjórnunarstörf?
— Hárrétt. Eruð þér kann-
ski annarrar skoðunar?
— Nei, alls ekki. Ég skil
bara ekki, af hverju góð'ur
pókerspilari myndi fara í mik-
ilvægt stjórnarstarf.
náttúra í barninu.
Hún leit ekki lengur út
eins og nein kynbomda, en nú
hafði hún fengið sér kjól, sem
hún virkaði grennri í. Það
fannst henni alla vega,
— Finnst þér hann ekki
falla að eins og hanz<ki? spurði
hún manninn sinn, glöð i
bragði.
— Jú, jú. Alveg eins og
boxhanzki.
FV 3 1975
81