Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1975, Page 62

Frjáls verslun - 01.03.1975, Page 62
aðalástæðu fyrir bví að ekki eru fleiri konur virkar í starfi sem fulltrúar flokkanna í sveit- arstjórnum og á þingi? Eru við- horfin á Norðurlönd.um allt önnur en hér, hvað þetta snert- ir? Ragnhildur: — Höfuðástæð- una tel ég vera skort á vilja til þess hjá konum sjálfum að standa í stjórnmálabaráttu. Er þó vitað mál um fjölda kvenna, að ekki skortir þær þekkingu á málefnunum. Viðhorfin á hinum Norður- löndunum virðast vera önnur. Að minnsta kosti er hlutfalls- tala kvenna á þjóðþingum og í sveitarstjórnum þar talsvert hærri. Ég hygg, að hæst sé hlut- fallið um 20% á einu þjóð- þinginu ,en hér hjá okkur er það 5% á Alþingi. F.V.: — Almennt umtal um Alþingi og alþingismenn undan- farið hefur verið á þá lund, að svo virðist sem þessi stofnun hafi glatað einhverju af virðu- leika sínum í hugum fólksins. Er annar og kæruleysislegri bragur á þinginu nú en var t. d. 1956, þegar þér hófuð þing- störf? Ragnhildur: Bragurinn er sá sami, en flest þingsætin skipa nú aðrir menn. Það sem breytzt hefur virðast mér vera viðhorf- in til Alþingis. Þau eru enn nei- kvæðari nú. Gagnrýni á Alþingi er sjálf- sögð og nauðsynleg, en því mið- ur gætir oft viðhorfa, sem mót- azt hafa af misskilningi, skorti á réttum upplýsingum og jafn- vel skorti á velvild. Ég veit ekki, hvort menn hugsa út í, að einmitt þessi neikvæðu viðhorf hafa 1 sér fólgna alvarlega hættu fyrir góða og lýðræðis- lega stjórnarhætti. Þau geta leitt til þess, að hinir hæfustu menn fáist ekki til stjórnmála- starfa. F.V.: — Margt hefur verið rætt og ritað undanfarið um störf þingmanna og kjör þeirra. Hvernig er venjulegur starfs- dagur hjá þingmanni og hver eru sérverkefni þingforsetanna? Ragnhildur: Erfitt er að segja, hvernig venjulegur starfsdagur þingmannsins er. í einni vikunni er mestur hluti Vinnutíminn er langur ... sólarhringsins yfirhlaðinn vinnu og annarri viku rólegra. f gær voru fundir til kl. l-'r’ eftir mið- nætti og í fyrrakvöld til mið- nættis. Einnig verða fundir á föstudag og sennilega laugar- dag. Á morgnana eru nefndafund- ir og undirbúningur mála. Það dugar þó ekki til. Tvö síðdegi í viku eru fastir þingflokksfundir og önnur tvö þingfundir til kvöldmatar en þingfundirnir eru haldnir 4-5 daga vikunnar. Oft er reynt framan af þingi að komast hjá að hafa fundi í deildum eða Sameinuðu þingi á föstudögum, svo að þingmað- urinn geti að svo miklu leyti sem hann er þá ekki á nefndar- fundum, skipulagt sjálfur starf sitt þann daginn. Ekki má svo gleyma, að nauðsynlegt er, að þingmaðurinn hafi tíma til að halda tengslum við kjósendur sina og félög þeirra og fylgjast með i landi sínu, lífi og störfum þjóðar sinnar. Þegar þingmannsstarf var launað sem fullt starf með þægi- legum kjörum var við það mið- að, að þingmönnum yrði kleift að sinna öllu því ,sem ég hef hér talið. Það er vafalitið stjórnar- farinu til heilla, að þingmenn séu, svo sem kostur er, svo vel haldnir í launum, að þeir séu óháðir fjárhagslega. Þetta verð- um við óhrædd að viðurkenna. Við viljum, að þingmenn geti fjárhagslega öruggir sinnt störf- um sínum ella yrði þingmennsk- an ekki aðgengileg öðrum en þeim, sem stæðu persónulega svo sterkir fjárhagslega að vígi, að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af kjörum sínum á þingi að öðru leyti. í sambandi við störf og skyld- ur þingmannanna er líka rétt að vekja athygli á starfi þeirra utan þingsala, á öllum tímum árs. Það er ætlazt til þess, að þingmenn taki eftir því sem kostur er, virkan þátt í félags- starfi sinna flokka. Yfir þing- tímann fer drjúgur hluti langra vinnudaga þingmanna einmitt í þetta og á það ekki hvað sízt við um þingmenn Reykvikinga. Við þurfum að mæta á fundum og standa þar fyrir máli okkar, mér liggur við að segja, hvenær sem kallað er á okkur. ... á Alþingi og utan þess. Um sérverkefni þingforset- anna er það að segja, að auk undirbúnings funda og funda- stjórnar, þurfa þeir að skipu- leggja og stjórna störfum Al- þingis og taka ýmsar ákvarð- anir í sambandi við framkvæm- dastjórn þess. F.V.: — Þér eruð forseti Norðurlandaráðs og í febrúar var fundur þess haldinn hér á landi. Ekki hefur dregið úr gildi þeirrar samkomtu sem „góðra vina fundi“ en meira er efast um raunhæfan árangur af störfum þingsins. Sýnist yður, nú eftir á, að verulegur árang- 62 FV 3 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.