Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 15
Tollvörugeymslan á Akureyri
Vöruverðmætið orðið um
110 millj. á þessu ári
Árið 1970 tóku nokkrir heild- MiMggB < tJBÉNHU *
salar og innflytjendur á Akur-
eyri sig saman og komu á fót
Almennu tollvörugeymslunni
hf. í dag skipta um 30 aðilar
við fyrirtækið, en hlutverk
tollvörugeymslunnar er fyrst
og fremst það, að gera mönnum
mögulegt að geyma þar vörur,
sem síðan er hægt að leysa út
í smærri einingnm. Þetta hefur
kosti í för með sér.
Annars vegar geta innflytj-
endur nú keypt meira magn í
einu og oft náð með því móti
hagstæðari kjörum og hins veg-
ar er líka ekki óalgengt að
hægt sé að fá erlenda aðila til
að senda vörur til geymslunn-
ar og fá þeir greiðslu fyrir
hana um leið og varan er leyst
þaðan út. Framkvæmdastjóri
Tollvörugeymslunnar er Gunn-
ar Kárason.
FYRSTA UTAN REYKJA-
VÍKUR
í viðtali við Frjálsa verslun
nýlega, sagði Gunnar að Toll-
vörugeymslan á Akureyri hefði
verið sú fyrsta sem var opnuð
utan Reykjavíkur, en nú væri
einnig búið að opna geymslu í
Keflavík. 'Hluthafar á Akureyri
eru um 100 talsins og hefur
fyrirtækið yfir að ráða 1000
fermetra húsnæði, upphituðu,
og 3000 fermetra útigeymslu
og dugir það ekki lengur til.
—- Okkur vantar tilfinnan-
lega meira geymslupláss innan-
húss, sagði Gunnar. — Við ráð-
gerum að reyna að bæta úr
þessum skorti næsta sumar og
byggja léttbyggt óupphitað
hús. Enn sem komið er höfum
við að visu ekki þurft að neita
neinum um geymslurými í
Tollvörugeymslunni, en við
gerum fastlega ráð fyrir aukn-
um viðskiptum strax og nýja
vöruhöfnin kemst í gagnið og
viljum vera undir það búnir.
Gunnar Kárason.
VON Á AUKNUM FLUTN-
INGUM TIL AKUREYRAR
Gunnar sagði að hluthaf-
arnir ættu sérstaklega von á
því að vöruflutningar frá Ak-
ureyri ykjust við tilkomu vöru-
hafnarinnar þannig að heild-
salar í bænum seldu meira frá
sér bæði vestur og austur um
land en þeir gera í dag.
Aðspurður sagði Gunnar að
vöruverðmæti, sem hefði kom-
ið til Tollvörugeymslunnar á
þessu ári væri orðið u. þ. b.
110 milljónir króna og væri
það veruleg aukning frá því í
fyrra. Að vísu væri hluti af
þessari upphæð fólginn í þeirri
verðhækkun, sem varð á árinu,
en þó væri töluvert vegna
magnaukningar líka.
Til þessa hefur Tollvöru-
geymslan aðeins verið opin
eftir hádegi þrjá daga í viku,
en verið er að athuga mögu-
leika á því að hafa geymsluna
opna daglega fyrir viðskipta-
vinina á Akureyri. í stjórn
Almennu tollvörugeymslunn-
ar hf. eru Friðrik Þorvaldsson,
formaður, Tómas Steingríms-
son, Sigurður Jóhannesson,
Oddur C. Thorarensen og
Kristján Jónsson. í upphafi var
Friðrik Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, en
Gunnar Kárason núverandi
framkvæmdastjóri tók við árið
1972.
UNDRALAND
JÓLANNA —
kerti,
jólaskraut.
JÓLASTEMMNING
kemur
frá
BREIÐHOLTI,
SÍMI 35225.
VIÐ MIKLATORG,
SÍMI 22822.
V V
VIÐ KÓPAVOGSLÆK,
SÍMI '42260.
I
FV 10 1975
15