Frjáls verslun - 01.04.1976, Blaðsíða 55
ur allur 7200 tonn. Sporin, sem
hann rennur á, eru alls 710
metra löng og á milli leggj-
anna á krananum eru 174 metr-
ar. Þess má og geta, að krana-
stjórinn hefst við í glerhýsi í
95 metra hæð. Hann stjórnar
einn öllum aðgerðum kranans
og notar fjórar sjónvarpsvélar
sér til aðstoðar í því sambandi,
en hann er auk þess í stöðtigu
talstöðvarsambandi við starfs-
menn niðri á jörðunni. í húsa-
kynnum kranastjórans er sal-
erni og lítið eldhús með ísskáp
og eldunaraðstöðu.
• MERKIR ÁFANGAR
Síðan Kockums afhenti fyrsta
skipið sitt árið 1873 hefur skipa-
smíðastöðin náð ýmsum merk-
um áföngum. Árið 1914 smíð-
aði hún fyrsta kafbát sinn, 1928
stærsta olíuflutningaskip, sem
til þess tíma hafði verið smíð-
að í heiminum. Árið 1951 var
tonnafjöldinn meiri í nýsmíði
hjá Kockums en nokkurri ann-
arri skipasmíðastöð í heimi,
1969 voru smíðuð stærstu flutn-
ingaskipin fyrir fljótandi jarð-
gas, sem þá þekktust, og 1974
var smíðað stærsta olíuflutn-
ingaskipið, sem framleitt hafði
verið utan Japan, 355 þús. tonn
að stærð.
Síðan 1970 hafa eingöngu
verið smiðuð risaolíuskip, 210,
260 og 355 þús. tonn. Lokið
hefur verið við 4-6 slík skip
á ári og síðan 1974 hefur stað-
ið yfir raðsmíði 13 olíuskipa,
355 þús. tonn að stærð, en það
síðasta þeirra verður afhent
1977. Af framtíðarverkefnum
ber að nefna þrjá kafbáta til
hernaðar og einn björgunar-
kafbát, sem afhendast eiga á
árunum 1978 og 1979. Kaupend-
ur olíuskipanna hafa aðallega
verið útgerðarfélög í Noregi og
Svíþjóð, en kafbátana kaupir
sænski flotinn.
• ÍSLENZKUR FORSTJÓRI
Yfir Kockums-samsteypunni
eru þrír forstjórar, einn aðal-
forstjóri fyrir öll fyrirtækin, en
ennfremur forstjóri skipasmíða-
stöðvarinnar og forstjóri ann-
arra iðnfyrirtækja. Starfsmenn
allra fyrirtækjanna eru um
8500 talsins, en hjá skipasmíða-
Vegna
efnahags-
ástandsins í
heiminum
hafa
útgerðar-
félög haldið
að sér
höndum og
ekki viljað
panta
ný skip.
Sænska
stjórnin
ábyrgist nú
smíðar
350 ]>ús.
tonna olíu-
skipa hjá
Kockums
þar til
kaupendur
finnast.
stöðinni í Málmey vinna 6000
manns. Forstjóri hennar er
Ólafur Sigurðsson, skipaverk-
fræðingur, bróðir Péturs Sig-
urðssonar, forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar. Ólafur bauð okkur
í síðdegiskaffi á skrifstofu sinni
í stöðinni og skýrði okkur frá
aðdraganda þess, að hann ílent-
ist í Svíþjóð og tókst á hendur
þetta ábyrgðarmikla starf.
Það var árið 1939, sem Ólaf-
ur lauk námi við Stokkhólms-
háskóla, en á námsárunum
hafði hann unnið nokkuð hjá
Kockums. Að afloknu prófi var
ætlunin að fara til Englands
og Þýzkalands til að öðlast
meiri reynslu, áður en farið
yrði aftur heim til íslands.
Styrjöldin breytti þessum
áformum og varð Ólafur starfs-
maður við íslenzka sendiráðið
og vann þá að undirbúningi
skipasmíða fyrir fslendinga í
Svíþjóð, þegar „Svíþjóðarbát-
arnir“ svonefndu voru byggðir.
Síðan lá leið Ólafs heim til fs-
lands, þar sem hann veitti
Landssmiðjunni forstöðu, en
hann hóf síðan störf á nýjan
leik hjá Kockums 1952 og hef-
ur starfað þar síðan.
• FYRIRTÆKJALÝÐRÆÐI
STUNDAÐ AF
KAPPI
Hjá Kockums hefur verið
komið á sérstöku skipulagi á
samskiptum framkv.stjórnar og
starfsmanna og komið á ým-
issi þjónustu við starfsmennina,
sem þykir fyrir margt athyglis-
verð. Ólafur greindi okkur frá
því, að inni á skrifstofum for-
stjóra Kockums færu þeir og
fjórir fulltrúar starfsmanna yf-
ir alla þætti rekstursins, sem
máli skiptu í það og það skipt-
ið, og starfsmannafulltrúarmr
fengju með þessu móti allar
upplýsingar úr fyrirtækinu,
sem þeir óskuðu, auk þess sem
þeir hefðu bein áhrif á ákvarð-
anir. Þessu fyrirkomulagi var
á komið í kjölfar mikillar út-
tektar, sem gerð var fyrir
nokkrum árum á starfsmanna-
málum Kockums, þar sem ýmis
vandkvæði höfðu gert vart við
FV 4 1976
51