Frjáls verslun - 01.04.1976, Page 67
Björn Steenstrup:
IMýr flugvöllur við Gautaborg
skapar ný tækifæri fyrir
Flugleiðir
Landvetter-flugvöllur verður opnaður í október 1977 og þar
munu stórar flugvélar eins o DC-8 athafna sig
Á næsta ári, nánar tiltekið kl. 6 að morgni þann 3. október, verður tekinn í notkun nýr flugvöllur
við Landvetter fyrir utan Gautaborg, er taka mun við allri flugumferð í stað Torslandavallarins,
sem nú er notaður. Þessi nýi flugvöllur mun hafa í för með sér algjöra byltingu í flugsamgöngum
við Gautaborgarsvæðið, því að völlurinn verður átta sinnum stærri en Torslanda. Á hann að kosta
500 milljónir sænskra króna. Stærstu flugvélar, sem nú eru í notkun eiga að geta athafnað sig á
Landvetter-flugvellin'um, en Torslanda hefur aðeins verið opinn meðalstórum þotum og þaðan af
minni flugvélum.
Að sögn Björns Steenstrup,
forsitjóra Flugleiða í Svíþjóð,
mun þessi flugvöllur skapa
gjörsamlega breytt viðhorf, því
að Gautaborgarbúar og flugfar-
þegar úr nágrannahéruðunum í
Svíþjóð, sem verða nú að fara
til Osló eða Kaupmannahafnar
til að fá flugfar til fjarlægari
staða, munu geta stigið um borð
í flugvélar á Landvetter og far-
ið þaðan beint til Ameríku t.d.
Þetta hefur það í för með sér
að dómi Steenstrups að tíma-
bært er fyrir Flugleiðir að gera
ráð fyrir að hefja flug að nýju
til Gautaborgar sumarið 1977,
þannig að félagið sé tilbúið að
hefja samkeppni við önnur fé-
lög á Ameríkuleiðinni, þegar
nýi flugvöllurinn verður opn-
aður. Þegar Björn Steenstrup
var að því spurður, hvort þarna
væri um mikilvægan mankað
að ræða og hversu mikla rækt
önnur flugfélög myndu leggja
við hann, svaraði hann því til,
að farþegar frá Gautaborgar-
svæðinu, sem nú yrðu að taka
flugvélar í Kaupmannahöfn eða
Osló vegna millilandaflugs,
skiptu hundruðum þúsunda á
ári hverju. Ef Flugleiðir gerðu
þetta ekki, myndi félagið missa
spón úr askinum við það, að
farþegum frá öðrum endastöðv-
um í Skandinaviu myndi fækka
með tilkomu beinna ferða frá
Gautaborg.
BÝÐUR UPP Á NÝJA
MÖGULEIKA
Um raunveruleg áform ann-
arra flugfélaga, sagði Steen-
strup að lítið væri vitað enn-
þá. Allir reyndu að halda
þeim leyndum en ef dæma
mætti af flatarmáli húsakynn-
anna, sem sum félögin hafa lát-
ið taka frá fyrir sig í nýju flug-
stöðinni, væri hugsað stórt í
ýmsum herbúðum.
Björn Steenstrup lagði mikla
áherzlu á möguleika í vöru-
flutningum í lofti milli Gauta-
borgar og staða í öðrum lönd-
um. Vegna smæðar Torslanda-
Björn Steenstrup var forstjóri
Loftleiða í Gautaborg síðan
1953. Hann er nú forstjóri Flug-
leiða í Svíþjóð og Finnlandi.
FV 4 1976
63