Frjáls verslun - 01.09.1977, Qupperneq 7
í stutta máli
# IJtibú í IMjarðvík
Nýlega opnaði Sparisjóðurinn i Kefla-
vík útibú í Njarðvík.
Samþykkt var á aðalfundi Sparisjóðs-
ins vorið 197(5 að sækja um leyl'i fyrir
jjremur útibúum: í Njarðvík, Grinda-
vík og Gerðahreppi. Leyfi fékkst fyrir
fyrsta útibúinu í Njarðvík, sem jafn-
framt er fyrsta útibú sparisjóðs á Is-
landi, en ])eir eru 43 um þessar mundir.
# Hitaveita Akureyrar
Nú hefur reglugerð fyrir Hitaveitu
Akureyrar ot* fyrsta gjaldskrá verið
staðfest af iðnaðarráðuneytinu o« verða
l)ær væntanlega birtar í Stjórnartíðind-
um l)cssa dága. Talað er um, að gjalcl-
skráin feli í sér að hitunarkostnaður
með hitaveituvatni sé um 70% af Iiit-
unarkostnaði með olíu að meðaltali.
Kostnaður við hitavcituframkvæmd-
irnar er orðinn um 1500 milljónir
króna, en bar af er borkostnaður mjög
mikill. Þetta hefur að mestu lcyti verið
fiármagnað mcð erlendum lánum, nema
borkostnaðurinn. Orkusjóður hefur lán-
að verulegt fjármagn og einnig Byggða-
sjóður vegna borana.
# Eigið fé fjárfestingar-
lánasjóða
Hin öra verðbólguhróun undanfar-
inna ára hefur rvrt miög eigið fé fjár-
festingarlánasjóða, enda fylgia kiör á
útlánum þeirra ckki stöðugt hækkandi
kostnaði fjármagns. Sem dæmi má
ncfna að í árslok 1973 var eigið fé
sióðanna 10.300 m.kr. sem svarar til
26.575 m.kr. í árslok 1976, cf bað hefði
fvlgt hækkun beirri sem varð á vísitölu
byggingarkostnaðar á bessum brcmur
árum. I árslok 1976 var eigið fé sjóð-
anna 26 540 m.kr. brátt fyrir að fram-
lag til sióðanna bessi brjú ár hafi num-
ið samtals 13.237 m.kr., sen) svarar um
18.458 m.kr. á verðlagi í árslok 1976.
Af framansögðu má sjá að eigið fé er
um 18.500 m.kr. lægra að verðgildi í
árslok 1976 en framreiknað eigið fé í
árslok 1973 að viðbættum framlögum
árin 1974 til 1976. Þetta svarar til þess
að eigið fé og árleg framlög liafa rým-
að um 20,6% að meðaltali á ári þessi
])rjú ár.
# Samningur við sovézka
sambandið
Fyi’ir skömmu var undirritaður í
Moskvu samningur um vöruskipti á
milli Sambands íslenzkra samvinnufé-
laga og Samvinnusambands Sovétríkj-
anna, Centrosoyus. Gildir samningurinn
fyrir árin 1977 til 1980.
Hér er um að ræða fyrsta langtíma
viðskiptasamning, sem samvinnusam-
bönd bessara landa hafa gert með sér.
A fyrsta ári er gcrt ráð fyrir 400 millj-
ón króna viðskiptum á hvora hlið, sem
fari síðan vaxandi á samningstímabil-
inn.
Hclztu vörutegundir, sem Sambandið
mun flvtja út til Sovétríkjanna sam-
kvæmt bessum samningi eru alls kon-
ar skinnavörur, værðarvoðir og prjóna-
voðir úr ull. Prjónavörurnar verða að
mcstu levti framleiddar hjá prjónastof-
um víðs vegar um landið. Sambandið
kaunir aftur á móti gasolíu og vmsar
matvörur frá Samvinnusambandi Sov-
étríkjanna.
# Innkaupastofnun Reykja-
víkurborgar
Árið 1976 gerði Innkaupastofnunin 36
verksamninga að heildai’verðmæti kr.
1.582.637.310, . Árið á undan voru
gcrðir 40 verksamningar að heildarupp-
hæð kr. 1.382.737.726,— og 1974 var
fjöldi verksamninga alls 33, að heildar-
verðmæti kr. 911.293.425, .
Stærsti samningurinn sem gerður var
hjá Innkaupastofnuninni 1976 og jafn-
framt hinn stærsti í krónutölu, sem Inn-
kaunastofnunin hefur gert til þessa, var
gerður við Guðmund Þengilsson, um
bvggingu íbúða fvrir aldraða við Dal-
braut. að upphæð kr. 400.013.558, .
Hcildaru])phæð vörusölu og verk-
samninga nam árið 1976 alls kr.
2.944.779.367,— en var kr. 2.823.611.
205, árið á undan og var því aðcins
um 4,29% hækkun að ræða milli ár-
anna.
FV 9 1977