Frjáls verslun - 01.09.1977, Blaðsíða 39
SamlíAarmaðar
Víglundur Þorsteinsson, forstjóri B.IVI. Vallá:
„Samdráttur í byggingarfram-
kvæmdum þegar orðinn og
heldur áfram í vor og sumar”
Innflutningur á erlendu sementi gæti orftift hagkvæmur — Afnema
ætti reglur húsnæftismálastjórnar um stærftarmörk íbúfta
— Eftir þenslutímabilið 1974 varð samdráttur á árinu 1975, sem nam um 20%. Síðan hefur fram-
leiðsla steypustöðvanna hér á höfuðborgarsvæðinu haldizt nokkurn veginn í því marki, með 5%
heildaraukingu á árunum 1975 til 1977. A þessum sama tíma hefur fjárskortur farið mjög vaxandi
og greiðslugeta viðskiptavinanna minnkað með aukinni verðbólgu. Nú er fólk fyrir alvöru að kom-
ast í greiðsluþrot og margir geta ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þetta hefur haft sinn aðdrag-
anda en nú eru tvímælalaust að skapast alvarleg vandræði. Samdráttur hefur þegar orðið í bygg-
ingarstarfsemi hér á höfuðborgarsvæðinu og ég spái að hann muni aukast í vor og næsta sumar.
Þetta sagði Víglundur Þor-
steinsson, forstjóri Steypustöðv-
ar B.M. Vallá, þegar Frjáls
verzlun ræddi við hann nýverið
um byggingariðnaðinn og starf-
semi fyrirtæ'kis hans, en
Steypustöð B.M. Vallá er ein af
þremur slíkum, sem selja hús-
byggjendum í Reykjavík og ná-
grenni steypu til framkvæmda
sinna.
Víglundur: — Það ríkir hörð
samkeppni milli þessara steypu-
stöðva og nú toafa þær allar ó-
nýtta afkastamöguleika. Þetta
kemur fram í að menn fá út-
töktir til ákveðins tíma og boð-
ið er upp á lánsviðskipti í ríik-
ara mæli en oft áður. Það verð-
ur greinilega vart peningaleysis
hjá byggingaraðilum og á þetta
fyrst og fremst við um einstak-
linga, sem eru að reisa íbúðar-
húsnæði.
F.V.: — Hvaða kjör eru það,
sem cinstaklingum eru boðin?
Víglundur: — Við lánum %
steypuverðs þar til 1. hluti
húsnæðismálastjórnarláns er
afgreiddur. Steypa í einbýlis-
Víglundur með hluta af steypubílakosti B.M. Vallá í baksýn. AIls
eru bílarnir 15 og nýr steypubíll kostar nú 17 % milljón.
hús í dag kostar á bilinu 1,7—2
milljónir, ef við miðum t.d. við
einbýlisihús á einni og hálfri
hæð í Breiðholtinu eins o>g ver-
ið er að reisa um þessar mundir
ir.
Aðalviðskiptavinir okkar eru
hins vegar verktakar og bygg-
ingameistarar, sem standa í
meiriháttar verkefnum fyrir
aðra oftast opinbera aðila. Þeir
hafa því margir þá sérstöðu að
FV 9 1977
39