Frjáls verslun - 01.09.1977, Page 62
mikinn áhuga á útgáfunni, eins
og reynst hefur verið fyrir
þessu blaði“, sagði Jóhann
Briem. Ritstjóri blaðsins er
Pétur J. Eiríksson, sem áður
starfaði hjá Morgunblaðinu, þar
sem viðskiptaþættir hans vöktu
verulega athygli. Megináhersla
verður lögð á að hafa í blaðinu
efni, sem ekki er að finna ann-
ars staðar og gefa því blaðinu
sérstöðu. Þar sem blað þetta á
að þjóna framleiðsluiðnaði,
þjónustuiðnaði og byggingar-
iðnaði, er hér um að ræða lang
stærsta athafnasvið í íslensku
atvinnulífi.
Áskrifendur að Iðnaðarblað-
inu eru þegar orðnir liðlega sex
þúsund og varð að endurprenta
síðasta blað, vegna þeirrar
aukningar sem varð á nýjum
áskrifendum, meðal annars í
tengslum við iðnsýninguna hér
í Reykjavík.
KVENNABLAÐ í UNDIR-
BÚNINGI
Nú er í undirbúningi að hef ja
útgáfu á nýju blaði fyrir kven-
þjóðina, sem ætlunin er að
fjalli um tísku og önnur mál,
sem konum standa nærri. Ætl-
unin er að fyrsta blaðið komi
út í byrjun desember á þessu
ári. Ritstjóri þess verður Hild-
ur Einarsdóttir.
Frjáls verslun, Sjávarfréttir
og Iðnaðarblaðið eiga það sam-
eigimlegt að fjalla um ákveðið
atvinnusvið. íþróttablaðið og
nýja kvennablaðið eiga það
hinsvegar sameiginlegt að
þjóna miklu almennari áhuga-
málum.
25 ÞÚSUND EINTÖK Á
MÁNUÐI
Fjögur blöð fyrirtækisins
koma út í nálægt 25 þúsund
eintökum, þá mánuði, sem þau
koma öll út, en þau koma út
mánaðarlega, nema Iðnaðar-
blaðið, sem enn kemur út ann-
an hvern mánuð. Ef reiknað er
með sama lesendafjölda fyrir
hvert rit, eins og gert er er-
lendis, er um að ræða 3 til 5
lesendur fyrir hvert blað. Les-
endur eru því 75þúsund til 125
þúsund. Þegar nýja kvenna-
blaðið kemur á markaðinn er
reiknað með að heildarupplag
blaðanna verði 35 þúsund og
lesendur þá 100 til 150 þúsund.
Þetta þýðir að Frjálst framtak
er orðið einn stærsti útgáfu-
aðili hér á landi.
Það sem hefur haft afgerandi
áhrif á þróun þessarar útgáfu
er tvímælalaust ný stefna í
auglýsingamálum. Það hefur
alltaf verið stefna að búa til
góðar auglýsingar, en nú er
miklu meira um það hugsað
hvar þær eiga að birtast. At-
hygli auglýsenda og auglýsinga-
skrifstofa beinist miklu meira
að því nú en áður að velja rétt-
an auglýsingamiðil fyrir hverja
auglýsingu. Þá hefur það ekki
lítið að segja við hvaða aðstæð-
ur maður les viðkomandi aug-
lýsingu.
VAXANDI ÞÝÐING SÉRRITA
Erlendis hefur sú þróun ver-
ið mjög sterk að fyrirtæki
nýttu sérrit til auglýsinga. Al-
mennu frétta- og myndatíma-
ritin hafa ekki staðist sam-
keppni við sjónvarpið og eru
nú flest úr sögunni, en sérritum
hefur vaxið fiskur um hrygg.
Auglýsingar eru óaðskiljanleg-
ur hluti efnis í góðu sérriti. Hér
á landi hefur ekki orðið nein
stökkbreyting, en að sögn Jó-
hanns Briem hefur þróunin
verið stöðug í þessa átt og und-
antekningarlaust auglýsi þeir
aftur í sérritunum, sem einu
sinni hafi reynt það.
„Auglýsendur átta sig sífellt
betur á því að hver auglýsinga-
miðill hefur sína eiginleika,
nær til mismunandi hópa og
mjög er misjafnt hversu lengi
auglýsingin er við lýði. Það er
mjög mismunandi hversu iengi
prentað mál er geymt. Dagblöð-
um er hent strax, en sérritin
geymast og margir safna þeim.
En það sem hefur úrslitaáhrif
á auglýsingar í blöðum er það,
að efnið sé í samræmi við óskir
lesenda og þarfir, og að lögð
sé í það vinna að efnið sé gott
og aðgengilega frágengið. Þá
er mjög áríðandi að hluti efnis
sé ótímabundinn og verði ekki
úreltur strax“, sagði Jóhann
Briem.
STOFMAIVIR, FÉLÖG
VERZLUN ARRÁÐ
ÍSLANDS
er allsherjarfélagsskapur
kaupsýslumanna og fyrir-
tækja. Tilgangur þess er að
vinna að sameiginlegum
hagsmunum þeirra, að
styðja að jafnvægi og vexti
efnahagslífsins og efla
frjálsa verzlun og frjálst
framtak.
Verzlunarráð íslands,
Laufásvegi 36,
Reykjavík. Sími 11555.
Skrifstofan er að Hagamel 4,
sími 26850.
V erzlunarmannaf élag
Reykjavík.
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Marargötu 2.
Símar 19390-15841.
FÉLAG ÍSLENZKRA
STÓRKAUPMANNA
er hagsmunafélag stórkaupmanna
innflytjenda og umboðssala.
FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA
TJARNARCÖTU 14 -- REYKJAVÍK — SÍMI 10650.
02
FV 9 1977