Frjáls verslun - 01.09.1977, Page 69
Auglýsingaþjónustan hf,
IMauðsynlegt að fylgja sjónvarps-
auglýsingu eftir með
blaðaauglýsingum
— Eftir ?.ð ég tók við fyrirtækinu hafa orðið miklar breytingar
á vinrv.ibrögðum. Við gerum nú mjög skipulegar auglýsingaáæt!-
anir, minnst ár fram í tímann, sem stundum falla að miklu lengri
áætlunum fyrintækja. Við byrjum á að skilgreina markmið fyr-
irtæ'fisins og síðan Ieitum við aðferða til að ná bessum mark-
miðurr. Þetta sagði Gunnar Gunnarsson eigandi Auglýsingajjjón-
ustunnar í samtali við Frjálsa verzlun. Og liann bélt áfram:
— Vinnuaðferðir okkar eru
mikið mótaðar af bandarískum
aðferðum, en einnig eftir vinnu-
brögðum í Þýskalandi, Frakk-
landi, Danmörku og Italíu, sem
standa fremst í Evrópu, að
mínu áliti. Það er okkar
reynsla, að auðvelt sé að selja
íslendingum með amerískum
aðferðum, séu þær hæfilega
staðfærðar.
Það er mjög algengt að
stjórnendur fyrirtækja misskilji
starfsemi auglýsingafyrirtækja
yfir höfuð. Þeir lita að vísu á
þetta sem nauðsynlega atvinnu-
grein, en miög kostnaðarsama
Ef auglýsingastofa á að ná
árangri fyrir fyrirtæki, þarf
hún að vera eins og læknir er
fyrir einstakling. Hún verður
að njóta fulls trausts stiórn-
enda, hafa vitneskju um hvar
veiku punktar og sterku punkt-
ar fyrirtækisins eru, til að víta
hvar á að beita kröftunum.
VAL Á
AUGLÝSINGAMIÐLUM
Það skiptir verulegu máli
hvernig valið er á milli hinna
ýmsu auglýsingamiðla. Svo að
ég taki dæmi hef ég aldrei aug-
lyst Skoda, sem ódýran bíl, í
í Frjálsri verslun. Hins vegar
hef ég auglýst Alfa Romeo bar,
en það er miklu dýrari bíl).
Þar tel ég mig höfða til þeirr i
manna ,sem hugsanlega keyptu
Alfa Romeo, en væri að skjóta
framhjá markinu með því að
auglýsa Skoda.
Kaupmáttur er mjög mis-
munandi og erfitt að skilgreina
hann, en það er merkilegt hve
mikinn kaupmátt ungt fólk hef-
rr. Það er að koma yfir sig
íbúð og þó að ótrúlegt megi
virðast er það oft komið með
öll hugsanleg þægindi, þvotta-
vélar, uppþvottavélar, frysti-
kistur. dýr sjónvörp og nýja
bíla. Það er sjálfsagt eðli-
legt að fólk sem er á
besta skeiði ævinnar til starfa.
hafi mikinn kaupmátt. Mér
virðist fólk á aldrinum 25
til 45 ára hafa mesta kaupmátt-
inn. Þá er verulegur kaupmátt-
ur á ferðinni hjá fólki, sem er
búið að koma upp börnum, á
hús og bíl, öll heimilistæki, og
hefur eklri fyrir öðru að sjá en
sjálfu sér .
Þá eru sérhæfð svið, þar sem
ungt fólk verslar mjög mikið.
Þetta á til dæmis við um föt,
hljómburðartæki, hljómplötur
cg skemmtanir.
EINTAKATALNING
FRðMFARASPOR
Dagblöð á íslandi eru mjög
góður vettvangur, þó að þau
séu mjög misjafnlega sterk.
Morgunblaðið er, að sjálfsögðu
lang sterkast, en jafnframt er
oft erfitt að skipta við það.
Þeir eru svo stórir og sterkir,
að ef maður ekki vill fara að
Gunnar Gunnarsson rekur Auglýsingaþjónustuna lif. Hann hef-
ur starfað þar í tíu ár, en keypti skrifstofuna í júní 1974. Skrif-
stofan hefur til hessa starfað að Laugavegi 87 en er nú flutt í
nýtt búsnæði að Síðumúla 8, þar sem skrifstofan fær mjög aukið
húsrými, enda starfsemin vaxandi.
FV 9 1977
(ií)