Frjáls verslun - 01.09.1977, Blaðsíða 71
þeirra reglum, getur maður átt
sig. Þetta er hættuleg stefna,
en stefna hinna blaðanna er
ekki síður hættuleg. Þau hafa
oft ekki tekið þá stefnu að líta
á augiýsingastofur sem sam-
starfsaðila, sem miðla tii þeirra
efni. Þess í stað veita þau ýms-
um viðskiptavinum sínum mjög
háa afslætti sem eru mun hærri
en þeir veita auglýsingastofum.
Þetta verður oft til þess að fyr-
irtæki dreifa auglýsingum sín-
um sjálf, skipulagslítið eða
skipulagslaust. Til eru dæmi
um allt að 65 til 70 prósent af-
slátt á sama tíma og auglýs-
ingastofur fá kannske 45 pró-
sent afsíátt, Það væri miklu
skvnsamlegra fyrir blöðin að
veita auglýsingastofum hæsta
hugsanlegan afslátt, svo sem 15
prósent meira en öðrum við-
skiptavinum. Þá hefðu auglýs-
ingastofurnar miklu meiri á-
huga á að veita til þeirra efni.
Mér er beinlínis í nöp við blað,
sem hringir til mín oft á ári,
til að biðja um auglýsingar, en
veitir mér svo 30 prósent minni
afslátt en manni, sem rekur
fyrirtæki við hliðina á mér.
Ég á líka erfitt með að réttlæta
þetta fyrir mínum viðskipta-
vinum. Af þessu stafar það að
nú ríkir kalt stríð á milli aug-
lýsingastofanna og dagblað-
anna.
Ég tek ekki mikið mark á
því, sem mér er sagt um upp-
lag dagblaðanna. Ég tel það
mikið framfaraspor að Verslun-
arráð fslands skuli hafa tekið
upp eintakatalningu fyrir Dag-
blaðið og Morgunblaðið. Ég
dreg þó í efa að nokkurn tíma
náist full samstaða hjá dag-
blöðunum um upplagskönnun.
FRÁHVARF FRÁ
SJÓNVARPI
Sjónvarpið er geysilega sterk-
ur fjölmiðill hér á landi. Stöð
er aðeins ein og fólk verður að
horfa á hana, ef það á annað
borð hefur sjónvarp .Ekki er
þó hægt að segja að neinar
raunverulegar rannsóknir hafi
farið fram á því, hversu mikið
er horft á sjónvarp. Þetta virð-
ist vera feimnismál, eins og
margt annað, svo sem upplags-
kannanir. En þó að sjónvarpið
FV 9 1977
71