Frjáls verslun - 01.11.1978, Side 32
Þar fer Reinhard Mohn
á 200 kílómetra hraða
Hvert er stærsta út-
gáfufyrirtæki í heimi?
Time Inc.?, Mc-
Graw-Hill? Springer?
Nei, ekkert þessara.
Stærst er þýzkt fyrir-
tæki, sem þú hefur
líklega aldrei heyrt
nefnt: Bertelsmann-
samsteypan
Glæsilegur hvítur Mercedes
Benz þýtur eftir hraðbrautinni rétt
hjá Dússeldorf á 200 kílómetra
hraða. Við stýrið er vopnaður
ökumaður, Breti að uppruna, sem
þjónað hefur sem herlögreglu-
maður. Hann hefur líka verið
vörður í opnum dýragarði í
Þýzkalandi og getur bent á nokkr-
ar rispur eftir klær villidýra á and-
litinu þessu til sönnunar. Við hlið
hans situr Reinhard Mohn, 57 ára
gamall, atorkusamur tækifæris-
sinni, sem safnað hefur að sér
einum mestu auðæfum, sem sög-
ur fara af í Þýzkalandi.
Báðir virðast mennirnir lítt
skeyta um þyrlurnar með merkjum
lögreglunnar, sem yfir þeim
sveima né heldur grænu og hvítu
lögreglubílana, sem hafa stað-
næmzt við öll vegamót, sem ekið
er framhjá. Ökumaður Mohns,
sem um leið er lífvörður hans, ekur
alla daga á þessum ógnarhraða.
Það eru engin hraðatakmörk á
hraðbrautunum í Þýzkalandi. Lög-
reglan er ekki að leita að ökuþór-
um. Hún er á eftir hryðjuverka-
mönnum.
Reinhard Mohn var stríðsfangi í
Ameríku fyrir 33 árum og hlaut þar
tilsögn í tæknifræði. Hann var tek-
inn höndum í Túnis árið 1943, þar
sem hann var í Afríkuher Romm-
els. Þegar Mohn sneri aftur til
Þýzkalands komst hann að raun
um að bókafyrirtæki föður hans
sem aðallega gaf út og seldi bæk-
ur trúarlegs eðlis, hafði eyðilagt í
loftárásum og bræðra hans
tveggja var saknað. Faðir Mohns
hvatti hann til að segja skilió við
tæknifræðina en reyna þess í stað
að hefja bóksölu og bókaútgáfu á
nýjan leik.
Reinhard Mohn forstjóri og aðaieig-
andi Bertelsmann
Nú er þessi heimilisiðnaður,
sem svo mátti í raun nefna, orð-
inn að Bertelsmann Aktiengesell-
schaft — risafyrirtæki í útgáfu-
málum, sem selur fyrir meir en þrjá
milljarða marka á ári. Fyrirtækið
gefur út bækur, hljómplötur og
tímarit, þar á meðal vikublaðið
Stern, sem kemur út Í1.6 milljón
eintaka, Brigitte, stærsta kvenna-
blað í Evrópu og Kapital, mánað-
arrit um efnahags- og viðskipta-
mál. Þar að auki rekur Bertels-
mann bókaklúbba. Tekjur fyrir-
tækisins árið 1977 urðu meiri en
hjá bandarísku útgáfufyrirtækjun-
um Time og McGraw-Hill. Og
Mohns fjölskyldan á 88,5% í fyrir-
tækinu, sem gerir það að verkum
að hún er meðal hinna sönnu mill-
jarðamæringa í heiminum.
Úr alfaraleið
Þýzkaland var í sárum eftir styrj-
öldina, þegar Mohn hófst handa.
Og hann fórekki neinar venjulegar
leiðir.
„Skammt frá okkur var verk-
smiðja, sem framleiddi þýzkt
brennivín, Steinhaeger", sagði
Mohn. ,,Þeir áttu flöskur en ekki
límmiða. Við sögðum því: ,,Við
skulum prenta límmiðana fyrir
ykkur en látiö okkur fá viskí í staö
peninga." Síðan fórum viö til múr-
aranna og sögðum:,,Viljiö þið ekki
viskí? Látið okkur fá múrsteina í
staðinn." Til þess að komast yfir
pappír fór Mohn til háskólaborg-
arinnar Göttingegn, sem hafði
sloppið við sprengjuárásirnar og
bauðst til að skipta á nýjum bókum
fyrir tvöfalda þyngd þeirra í göml-
um. Viðbrögðin voru svo einstök
að hann gat ekki einungis keypt
pappírinn heldur skapaðist grund-
völlur að nýjum viðskiptum —
fornbókasölu.
Eins og víða í einkafyrirtækjum
reynir Mohn að sýna sem minnst-
an hagnað til að komast hjá skött-
um. Ágóðanum heima fyrir í
Þýzkalandi skiptir hann jafnt milli
sín og starfsmanna og minnkar
þar með nettóhagnað en pening-
arnir haldast eftir sem áður í Bert-
elsmann, því að sjóðir starfs-
mannanna eru notaðir til hluta-
bréfakaupa. Þannig hefur Bertels-
mann heldur ekki þurft að hafa á-
hyggjur af aðgerðum verkalýðsfé-
laga, því stærsti hlutinn af starfs-
mönnunum stendur utan þeirra.
32