Frjáls verslun - 01.11.1978, Page 61
Kynningarherferðir í þágu
forstöðumanna stórfyrirtækja
Nýr þáttur og vaxandi
í starfsemi fyrirtækja
sem vinna að al-
menningstengslum í
Bandaríkjunum
Það er af kurteisisástæðum
kallað „persónukynning". Þeir
sem leggja á ráðin með hana eru
þrautþjálfaðir kunnáttumenn,
sem áður hafa fengizt við að koma
Hollywood-stjörnum á toppinn og
stjórnmálamönnum í sviðsljósið.
Nú beita þeir kröftum sínum í
vaxandi mæli í þágu forstöðu-
manna fyrirtækja í Bandaríkjun-
um.
Enn eru nokkuð skiptar skoð-
anir um ráöningu persónulegs
blaöa- eða almannatengsla full-
trúa, AT-manns, meðal forstjóra
bandarískra fyrirtækja. Þó eru það
sífellt fleiri og fleiri sem láta sig
hafa það. Ástæðurnar geta verið
margvíslegar: áhugi á aukinni vel-
gengni fyrirtækisins, von um
stöðuhækkun eða hrein og bein
metnaðargirnd og sjálfselska.
Sumir hinna bandarísku for-
stjóra, sem leitað hafa aðstoðar
AT-manna, hafa þegar náð langt.
Aðrireru að undirbúa jarðveginn. í
þeirra hópi er meðal annarra Jean
nokkur Barrier, forstjóri Ajax-bíla-
leigufyrirtækisins í Kaliforníu.
Þetta er fjögurra ára gamalt fyrir-
tæki meö um 20 milljón dollara
tekjur í fyrra. Kynningarfyrirtækið
ICPR í Los Angeles sér um að gera
úr Jean Barrier sérstakan tals-
mann fyrir hagstæða bílaleiguskil-
mála gagnvart almenningi.
Byggja sjálfa sig upp
Persónuleg kynningarráðgjöf er
veitt forstjórum fyrirtækja meö það
markmið fyrst og fremst að þeir
sem einstaklingar muni gefa al-
menningi sem hagstæðasta og
þægilegasta mynd af fyrirtæki
sínu. En stundum eru forstjórarnir
miklu fremur að byggja sjálfa sig
upp persónulega en fyrirtækið.
Þegar National Bank of Georgia,
sú minnsta af fimm bankastofnun-
um í Georgíu-ríki, vildi reka af sér
slyöruorðið, réði bankinn Bert
Lance, sem þá var þekktur um allt
ríkið, í stöðu aðalbankastjóra. Síð-
an kom kynningarfyrirtæki í At-
lanta til skjalanna og gerði áætlun
um kynningu Lance fyrir almenn-
ingi. Þessi herferð var nýhafin
þegar Lance lét af störfum og varð
hagsýslustjóri Jimmy Carters,
Bandaríkjaforseta. En áður en
Lance fluttist til Washington var
búið að gera útvarpsauglýsingar
með honum, þar sem hann hvatti
Georgíu-búa til að eiga viðskipti
við National Bank of Georgia.
Sumir forstjórarnir halda því
fram, að öll kynning og áróður í
þeirra þágu komi af sjálfu sér. Svo
er um David J. Mahoney, for-
stöðumann Norton Simon Inc.,
sem er einn umtalaðasti kaup-
sýslumaður í Bandaríkjunum um
þessar mundir að sögn vikuritsins
Business Week. En Mahoney, sem
er 54 ára gamall, segist aldrei hafa
sótzt eftir skipulögðu umtali í fjöl-
miðlum. ,,Við höfum aldrei beðið
um það, en heldur ekki hafnað
því“, segir hann. Mahoney heldur
því hins vegar fram, að fjölmiðlar
hafi ávallt sýnt stórsamningum í
viðskiptaheiminum eða stööu-
breytingum mikinn áhuga eins og
til að mynda kaupum fyrirtækis
hans á Avis-bílaleigunni nú nýver-
ið. „Þegar maður fer af stað og
kaupir upp fyrirtæki eins og Avis
koma fjölmiðlarnir til manns óum-
beðið."
James Donley, sem starfrækir
Donley Communications kynning-
arfyrirtækið, segir sögu af því
hvernig hann vann að persónu-
legri kynningu forstjóra fyrirtækis
nokkurs. Hann sagðist hafa fyrst
og fremst stefnt að kynningu á
persónu forstjórans en ekki fyrir-
tækinu. Maðurinn tók sig vel út,
var greindur að eðlisfari en feim-
inn og lítt um persónulega kynn-
ingu gefið. ,,Ég kom því til leiðar,
aö hann var fenginn sem ræðu-
maður á nokkra fundi, og kynnti
hann fyrir blaðamönnum", segir
Donley, ,,en ég bjó ekkert til, sem
ekki var fyrir hendi. Ef kjarninn
— Þú velzt að ég er bara að vekja athygli á fyrirtækinu — ekki sjálfum mér.
61