Frjáls verslun - 01.04.1980, Blaðsíða 77
Húseiningahús frá Siglufiröi
23% ódýrara en vísitöluhúsið
Sigurður Kjartansson, framkvæmda-
stjóri Húseininga hf. við gluggapósta,
sem bíða eftir því að vera settir á sinn
stað í einingunum.
„Menn hafa spurt hvort fjar-
lægðirnar skipti ekki máli. Því er til
aö svara, að flutningskostnaður-
inn er svo lítill hluti af heildar-
kostnaðinum, að hann skiptir litlu
máli." Þetta eru orð Sigurðar
Kjartanssonar, framkvæmdastjóra
Húseininga hf. á Siglufirði.
Sigurður sagði, að raunveru-
lega væri hægt að komast að
hagkvæmari flutningssamningum
á einingahúsum frá Siglufirði,
heldur en ef fyrirtækið væri stað-
sett á Reykjavíkursvæðinu.
Reykjavik er miðstöö flutninga út á
land og þaðan fara skipin austur
og vestur hringinn í kringum
landið. Yfirleitt er það þannig, að
þau hafa lokið við að tæma
meginhluta vörufarmsins þegar
norður er komið og myndu sigla
tóm til baka byöist ekki farmur. Sá
farmur sem skipafélögunum býðst
er það lítill að þau sigla ekki full-
lestuð til Reykjavíkur. Af þessum
sökum er oftast nóg lestarrými fyrir
Húseiningahús frá Siglufirði hvert
á land sem er og samningarnir
sem gerðir eru, eru mjög hag-
stæðir.
Húseiningar hf. er eitt af stærstu
fyrirtækjunum á Siglufirði og
langstærsta húseiningaverksmiðj-
an á landinu. Verksmiðjan var
stofnuð 1973 en fór ekki fyrir al-
vöru í gang fyrr en 1975 og hafa
síðustu tvö árin gengið mjög vel í
rekstrinum.
Eftirspurnin eftir einingahúsum
hefur mjög aukist á síðustu ár-
unum einkum vegna þess hve
auðveld þau eru í uppsetningu og
hversu byggingatíminn er skamm-
ur. Einnig hefur eftirspurnin eftir
timburhúsum farið vaxandi á síð-
ustu árum, enda er það hald
margra að timburhúsin hafi „sál".
Hvað sem um það má segja, er
öruggt að þau eru miklu hlýlegri
vistarverur heldur en steinninn.
Húseiningar framleiða um 60
hús á ári og til marks um vinsældir
einingahúsa má nefna að nærri
liggur að annað hvert einbýlishús
sem byggt er á landinu í dag, sé
byggt úr einingum, steypu eða
timbri.
Sigurður Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri, sagði að fólk íhug-
aði frekar lengd byggingatímans í
dag en áður. Það tekur þrjár vikur
að gera einingahús tilbúið undir
tréverk.
Einangrun í timbureiningahús-
um er fengin með steinull, sem um
leið er hljóðeinangrandi. Húsein-
ingar nota sérstaka steinull sem
mikið er notuð í frystiklefa.
Notaðir eru léttir veggir sem
auðvelt er að færa úr stað vilji fólk
breyta vistarverum sínum.
Húseiningar hafa látið reikna út
fyrir sig hvað eigin framleiðsla sé
dýr miðað við vísitölueinbýlishúsið
og kom í Ijós miðað við 1. apríl sl.
aó þau eru 23% ódýrari en vísi-
töluhúsið. Miklir erfiðleikar eru
samfara rekstri fyrirtækis eins og
Húseininga hf. Fyrirtækið nýtur
engra afurðalána, en fjármagns-
kostnaður er gífurlegur og hann
lendir um síðir á kaupendum.
Vegna þessa er ekki veittur langur
greiðslufrestur á lánum frá verk-
smiðjunni. Reglan er sú, að kaup-
andi greiðir 50% kaupverðs frá
undirritun samnings til afhending-
ar. Afgangurinn er lánaður til eins
árs og er tekið við ávísunum á líf-
eyrissjóðsgreiðslur og húsnæðis-
málagreiðslur.
73