Frjáls verslun - 01.07.1980, Síða 7
\
sem gefin er út af Hagstofu Islands
á þriggja mánaða fresti (er frá 1.
júní 1828 stig). Þá er yfirleitt ekki
um fyrirframgreiðslur að ræða eins
og oft tíðkast varðandi útleigu
íbúðarhúsnæðis, nema e.t.v. í formi
vaxtalausra víxla. Loks skal þess
getið, að algengast er, að leigumáli
um atvinnuhúsnæði sé gerður til
fremur langs tíma í senn, a.m.k. til
nokkurra ára.
Afgreiðslutími verzlana
( nóvember sl. boðaði Verzlunar-
ráðið allstóran hóp félagsmanna til
fundar um afgreiðslutíma stofnaria
og fyrirtækja. Var meö fundarboði
send almenn greinargerð um af-
greiðslutíma fyrirtækja og stofn-
ana, sem grundvöllur umræðna.
Var rætt almennt um fyrirkomulag
afgreiðslutíma, einkum banka,
opinberra stofnana og verzlana og
ræddar hugmyndir um samræm-
ingu. Var skrifstofu ráðsins falið að
vinna úr þessum hugmyndum og
leggja fyrir næsta fund.
Á þeim fundi voru samþykkt drög
að ályktun um afgreiðslutíma fyrir-
tækja og stofnana og settar fram
hugmyndir um samræmingu. Voru
drögin síðan lögð fyrir stjórn ráðs-
ins til afgreiðslu. Niðurstaða
stjórnar Verzlunarráðsins var sú,
að óeðlilegt væri, að Verzlunarráð-
ið, sem beitti sér fyrir frjálsræði í
viðskiptum, setti fram ákveðnar
forskriftir um afgreiðslutíma fyrir-
tækja. (trekaði stjórnin stefnu ráðs-
ins á þessu sviði en hún er:
1. Afgreiðslutími fyrirtækja á að
vera frjáls.
2. Afgreiðslutímann er óeðlilegt
að takmarka í kjarasamningum við
stéttarfélög.
3. Geri bæjarfélag samþykktir
um afgreiðslutíma sölubúða eiga
þær einungis að miða að því að
tryggja kyrrð í íbúðahverfum.
Jafnframt beindi stjórnin því til
skrifstofu ráðsins, að í komandi
kjarasamningum yrði innan Kjara-
ráðs verzlunarinnar lögð áherzla á
að fjarlægja takmarkanir um af-
greiðslutíma verzlana úr kjara-
samningum við verzlunarmenn.
Einnig var skrifstofunni falið að
koma þessum sjónarmiðum Verzl-
unarráðsins á framfæri við nefnd
þá á vegum Reykjavíkurborgar,
sem hefur reglur um afgreiðslutíma
verzlana til endurskoðunar. Hefur
hvort tveggja verið gert, en enn er
óljóst um árangur.
Hótel Borgarnes
Hótel Ðorgarnes er tilvalið til
funda- og ráðstefnuhalda.
Hótel Borgarnes býður upp á 30
1. flokks gistiherbergi 1,2ja
og 3ja manna.
Hótel Ðorgarnes
getur útvegað:
Bátsferðir um Borgarfjörð og vestur með
Mýrum.
Golfaðstöðu - 9 hola golfvöllur.
Lax- og silungsleyfi.
Hesta til útreiða.
Verið velkomin
Hótel Borgarnes
Borgarnesi — Sími (93) 7119 og 7219
9