Frjáls verslun - 01.01.1981, Blaðsíða 10
R
í mál við tölvu
Nú virðist vera í uppsigl-
ingu málshöfðun einstakl-
ings á hendur fyrirtækis
vegna tölvuunninna upplýs-
inga. Hefur einstaklingur
þessi orðið fyrir þeirri leiðu
reynslu að vera neitað um
afborgunarviðskipti í bygg-
ingavöruverslun í Kópavogi
á þeirri forsendu að hann
eigi að baki vanskil og fjár-
málaóreiðu og hafi verið úr-
skurðaður gjaldþrota. Vís-
aði verslunin til tölvuunn-
inna upplýsinga um fjár-
hagsstöðu og greiðsluör-
yggi fyrirtækja og einstakl-
inga, sem hún kaupir í
áskrift. Umræddur einstakl-
ingur kannast hvorki við
vanskil né gjaldþrot, enda
um að ræða húsmóður, sem
sjaldan hefur verið skráð
fyrir fjárskuldbindingum
heimilisins. Nafn og nafn-
númer í tölvuskránni kom
hins vegar heim og saman
við umræddan einstakling.
Þessar upplýsingar hafa
farið víða, því mörg fyrirtæki
eru áskrifendur að þeim.
Mun konan ekki sætta sig
við slíka meðferð á röngum
upplýsingum og hyggur á
málshöfðun.
Flugleiðamenn á foráttuvélum?
Sumir flugmenn hjá Flug-
leiðum hafa á undanförnum
árum verið mjög yfirlýsinga-
glaðir um flest öll mál sem
snerta flug og flugrekstur.
Hafa þeir oft komið öðrum
mætum kollegum sínum í
bobba með yfirlýsingagleð-
inni.
Fyrir um það bil ári síðan
kvöddu flugmenn sér hljóðs í
Tímanum og var tilefnið
Twin Otter flugvélar, sem
Arnarflug hugðist nota í
innanlandsflugi. Fundu
flugmenn Otternum flest til
foráttu og töldu hann bein-
línis hættulegan. Að sjálf-
sögðu skein þar í gegn ótti
um eiginn hagsmuni, þ.e. að
Flugleiðir gripu til Twin
Ottera Arnarfluqs til sparn-
aðar á fáförnustu leiðunum.
Nú bregður svo við að
Flugleiðaflugmenn eru
sjálfir farnir að fljúga Twin
Otter Flugfélags Norður-
lands á einstaka leiðum
Flugleiða. Skyldu Flugleiðir
greiða þeim áhættuþóknun?
Birtir af Degi
Þegar um þrengist hjá blöð-
unum ætlar Dagur að
stækka
Meðan Reykjavíkurblöðin
æmta og skræmta yfir
slæmum fjárhag hlýtur það
að verkja athygli að blaðið
Dagur á Akureyri hyggur á
enn frekari stækkun. Blaðið
kemur nú tvisvar i viku í 8
síðna broti auk helgarblaðs
einu sinni í mánuði. Nú aug-
lýsir Dagur eftir vönum
blaðamanni, ætlar að fjölga
á ritstjórn um 50%, þ.e. úr 2 í
3 blaðamenn og gefa út 3
blöð í viku hverri. Ekki mun
afráðið hvenær stækkunin
fer fram. Dagur keypti eigi
fyrir alls löngu eigið hús-
næði og á auk þess ágæta
blaðapressu sem er hjá POB
þar sem vinnsla blaðsins fer
fram. Það hefur heyrst
nyrðra aö nú hafi Dagur í
hyggju að slíta samstarfinu
við POB og stofna eigin
prentsmiðju, Prentsmiðju
Dags, og aó þaö muni ger-
ast alveg á næstunni. Dagur
nýtur ekki ríkisstyrkja eins
og sum Reykjavíkur blöðin,
en stólar aðeins á áskrif-
endur og lausasölu.
Elías Snæland
ritstjóri Tímans
Nýlega kunngerði Jón
Sigurðsson að hann muni
hætta starfi sínu, sem rit-
stjóri Tímans. Nú er verið að
ganga frá ráðningu eftir-
manns Jóns og mun það
verða Elías Snæland Jóns-
son, rítstjórnarfulltrúi á Vísi.
Elías hefur um árabil verið
potturinn og pannan í
fréttaöflun Vísis og hefur
reynst góð kjölfesta á óróa-
tímum á ritstjórn blaösins.
Margir blaðamenn hefðu
viljað sjá Elías í ritstjórastól
Vísis, en Elías er framsókn-
armaður og er því ekki talinn
eiga frekari framamöguleika
á þvi blaði.
10