Frjáls verslun - 01.06.1985, Qupperneq 35
þrjú og hálft ár og þar á undan
varaformaður í fjögur ár. Þvi var
hann spurður hvað væri efst á
baugi hjá Verslunarráðinu.
„Starfsemi ráðsins hefur farið
vaxandi á liönum árum. Við fylgj-
umst með þingmálum og gefum
umsagnir um þau hverju sinni.
Okkar menn undirbúa og gera til-
lögur um breytingar á frumvörp-
um þar sem hagsmunir atvinnu-
lifsins eru i húfi. Á siðustu árum
höfum við gefið út ítarlega
stefnuskrá um flest þau mál er
atvinnulifið varðar. Hún er endur-
nýjuð reglulega. í þessu sam-
bandi má geta þess, að nú er
unnið að gerð nýrrar stefnuskrár
Verslunarráðsins sem taka á til
umfjöllunar á aðalfundi ráðsins i
febrúar næstkomandi. Um er að
ræða endurskoðun á stefnu, sem
við gáfum út fyrir fjórum árum.
Reyndar er mjög ánægjulegt til
að vita að margt af þvi sem viö
settum fram þá og siðar er þegar
komiö verulega á veg innan
stjórnkerfisins. Má þar nefna
frjálsræði i verðlagsmálum, gjald-
eyrismálum, vaxtamálum og
margt fleira.
Þegar fjallað er um starf Versl-
unarráðsins er auðvitað af mörgu
að taka sem of langt mál væri
upp að telja. Mig langar þó til að
minnast á eina nýjung sem er hið
svokallaða starfsnám. Við höfum
leitað eftir samstarfi við fyrirtæki í
landinu um að bjóða ungu fólki i
námi eða að afloknu námi upp á
timabundið starfsnám i fyrirtækj-
unum. Þetta hefur gefist mjög vel
og eru bæði fyrirtækin og unga
fólkið ánægt með þetta. Við höf-
um til dæmis tekiö þátt i þessu
hjá ÍSAL með góðum árangri. Viö
réðum fyrsta starfsnemann til
frambúðar og er hann nú aðstoö-
armaðurminn."
MIKILL SPORTÁHUGA-
MAÐUR
Ragnar var spuröur hver væru
helstu áhugamálin. „Ég hef alltaf
haft töluverðan áhuga á ýmsu
sporti. Á yngri árum hafði ég
áhuga á róðri og tók þátt í róðrar-
keppnum. Þær hafa þvi miður
lagst af. i Austurriki og Sviss
kviknaöi áhugi minn á skiða-
iþróttinni fyrir alvöru og nú fer ég
oft á gönguskiöum um helgar.
Reyndar hef ég mikinn áhuga á
útivist almennt. Ég fer i sundlaug-
arnar á morgnana og yfirleitt
annaðhvort á gönguskíðum eða i
göngu- og fjallgönguferðir um
hverja helgi. Það er ómetanleg
hressing og tilbreyting frá dag-
legri önn að vera úti i náttúrunni,
og með útiveru heldur maður sér i
þokkalegu formi. Ég hef litilshátt-
ar verið í golfi og á sumrin fer ég
talsvert í stangveiði, sem er
ákaflega skemmtileg iþrótt. Nú af
öðrum áhugamálum gæti ég
nefnt spilamennsku. Ég hef mjög
gaman af þvi að spila brids við
félaga mina og geri það þegar
færi gefst.“
BJARTSÝNN
Að endingu var Ragnar S. Hall-
dórsson, samtíðarmaður Frjálsr-
ar verslunar spurður hvernig
hann sæi framtiö islensks at-
vinnulifs á næstu árum og ára-
tugum. „Ég er bjartsýnn að eðlis-
fari og þvi tel ég að í framtiöinni
eigi Islendingar mikla möguleika
á meiri velsæld ef rétt er á málum
haldið. Ég vona að okkur takist
að nýta þær orkulindir sem fyrir
eru, en það verður vart gert meö
þeim hraða sem við þurfum nema
i samvinnu við erlenda aöila. Hér
á landi hefur skapast mikil þekk-
ing á sviði virkjana og stóriðju og
henni verður að halda við. Is-
lenskir aðilar hafa i vaxandi mæli
tekið að sér verkefni á erlendri
grund og ég sé ekkert þvi til fyrir-
stööu, að áframhald verði á þeirri
þróun. Auk jarðhitans og raforku-
framleiðslunnar verðum við að
leggja höfuðáherslu á að nýta
okkur betur þá möguleika, sem
við höfum i sambandi við fisk-
veiðar og úrvinnslu afla. Þar eru
miklir möguleikar fyrir hendi. Það
veröur að koma til meiri útflutn-
ingur á fullunninni vöru, sem
meira fæst fyrir. Almennt sagt tel
ég að framtið íslensks atvinnulifs
sé björt takist að halda skynsam-
lega á efnahagsmálum þjóðar-
innar á komandi árum og vöxtur
opinberra umsvifa stöðvaður.
Óþrjótandi möguleikar eru fyrir
hendi. Aðeins þarf að nýta þá
rétt.“
Hvernig stjornandi
er Ragnar?
Peter Drucker skrifaði eitt
sinn bók sem heitir „Managing
for Resuits". Þetta bókarheiti
lýsir einna best Ragnari S. Hall-
dórssyni.
Hann leggur mikið upp úr aö
ná árangri og koma hlutum i
verk. Hann er sjálfur mjög af-
kastamikill eins og margir sem
hafa mikið að gera, en næg
verkefni eru honum ekki orsaka-
valdur streitu. Það að spóla í
sama farinu, ná ekki árangri,
veldur streitu. Að koma málum í
höfn skapar ánægju.
Ragnar er ákafur maöur og
stundum fijótfær en leggur þó
manna mest upp úr smáatriðum
og nákvæmni. Hann er stundum
óþolinmóður í samskiptum við
íhugula og hægláta menn, en
hann er ekki fastheldinn á eigin
afstöðu, ef aðrir færa fram betri
lausnir eöa nýjar upplýsingar.
Ragnar fylgist mjög vel með á
ýmsum sviöum, les mikið og er
fljótur að því. Hann er fljótur að
tileinka sér nýjungar og innleiða
þær. Það er því lærdómsríkt að
starfa með honum. í því efni eiga
bæöi Verzlunarráð og ég honum
margt að þakka.
35