Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 12
Fréttir
Tryggingaiðgjöld lægri hér á landi
Iðgjöld af tryggingum sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu eru fremur lág hérlendis bor- ið saman við margar aðrar þjóðir. Þetta kom fram í erindi Bjarna Þórð- arsonar, cand. act. á aðal- fundi Sambands ís- lenskra tryggingafélaga sem haldinn var í mars- mánuði. Skýringin á þessu er sú að hlutur líf- trygginga hér á landi er mun minni en víða erlend- is. A árinu 1983 námu iðgjöldin 3.03% af vergri þjóðarframleiðslu hér á landi. Til samanburðar má nefna að á árinu 1983 var þetta hlutfall 6.90% í Bandaríkjunum, 6.35% í Bretlandi, 3.81% í Dan- mörku, 4.61% í Finnlandi, 4.20% í Noregi og 3.94% í Svíþjóð. Hér á landi hafa þó iðgjöld sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu farið vaxandi á undan- förnum árum. Þannig voru iðgjöldin 2.52% af vergri þjóðarframleiðslu árið 1980 en voru orðin 3.09% á árinu 1984.
Framkvæmdastjórn VÍ
Framkvæmdastjórn Verzlunarráðs Islands var kjörin á fundi stjórnar ráðsins 13. mars sl. Mikil uppstokkun var í stjóm- inni því allir stjórnar- menn eru nýir nema ný- kjörinn formaður Verzl- unarráðsins Jóhann J. Olafsson. Þeir sem hlutu kosningu í framkvæmda- stjórnina eru: Friðrik Pálsson, forstjóri SH, sem A Friðrik Pálsson. jafnframt var kosinn varaformaður ráðsins, Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM á íslandi, Kristinn Björnsson, framkvæmdastjóri Nói- Siríus hf. og Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða hf. Hér er einvalalið á ferðinni og allir nýju mennirnir í framkvæmda- stjórninni eru um eða inn- an við fertugt.
Námstyrkir VÍ
Námssjóður Verzlunar-
ráðs íslands var stofnað-
ur fyrir rúmum tveimur
árum og voru tveir styrkir
afhentir á aðalfundi VÍ 6.
mars. Ragnar S. Halldórs-
son afhenti styrkina og
sagði að 38 umsóknir
hefðu borist um styrkina
sem eru nú að upphæð 75
þúsund krónur hvor um
sig. Þá sagði hann afráðið
að afhenda slíka styrki
framvegis árlega en upp-
haflega var gert ráð fyrir
að þeir yrðu veittir annað
hvert ár.
Styrkina hlutu að þessu
sinni Þuríður Helga Bene-
diktsdóttir og Hallgrímur
Ingólfsson. Þuríður Helga
er fædd 1961 og lauk
stúdentsprófi frá Verzl-
unarskóla íslands árið
1981. Þá lauk hún kandi-
datsprófi frá viðskipta-
deild Háskóla íslands
1985 og stundar nú nám
á sviði kerfisgerðar við
Verslunarháskólann í
Kaupmannahöfn. Hall-
grímur Ingólfsson er
fæddur 1960. Lauk hann
stúdentsprófi frá M.R.
1980 og kandidatsprófi í
viðskiptafræði frá Há-
skóla íslands 1984.
Stundar hann nú fram-
haldsnám í rekstrarhag-
fræði við Arizona State
University í Phoenix í
Bandaríkjunum.
Jón Arnalds.
Úr ráðu-
neyti í
viðskipti
Jón Arnalds, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri í sjávar-
útvegsráðuneytinu hefur
keypt meirihluta í fyrir-
tækinu G.S. Júlíusson hf.
Jón lét af störfum ráðu-
neytisstjóra í fyrravor og
hefur starfað sjálfstætt
sem lögfræðingur þar til
hann keypti 70% hlut í
fyrirtækinu í byrjun þessa
árs. G.S. Júlíusson er inn-
flutningsfyrirtæki með
aðsetur í Sundaborginni.
Fyrirtækið flytur inn ýms-
ar smærri byggingavörur.
Viðskipti fyrirtækisins
höfðu dregist saman á
síðustu árum vegna ým-
issa erfiðleika en umsvif
þess fara nú vaxandi.
Ragnar S. Halldórsson afhendir foreldrum styrkþega
námsstyrk VÍ.
12