Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 53
hafa sagt að þessi ákvörðun kæmi í
veg fyrir að hægt væri að fjölga
störfum í Frakklandi. Ljóst mætti
vera að Ford bílar yrðu áfram fluttir
til landsins og í dag væri svo komið
að Ford væri langsöluhæsti erlendi
bíllinn í Frakklandi. Tók hann einnig
dæmi um skynsamlegri leiðir t.d.
þegar IBM var leyft árið 1914 að
hefja starfsemi í Frakklandi. Væri
það nú það fyrirtæki sem greiddi
hæsta skatta ásamt því að vera eitt
virtasta erlenda fyrirtækið í landinu.
Maisonrouge lagði áherslu á að
fyrirtæki sem hygðu á erlenda mark-
aðssókn yrðu að hafa eftirfarandi í
huga: Bjóða góða vöru, lágt fram-
leiðsluverð og dreifingarkostnað,
bjóða góða þjónustu og hafa augun
opin fyrir leiðum þrátt fyrir aðgerðir
yfirvalda. Þess vegna yrðu fyrirtækin
að hafa yfir góðum mannskap að
ráða og nú á dögum sifellt aukinnar
menntunar og alþjóðasamskipta
væru ungu fólki opnir miklir mögu-
leikar í námi og starfsþjálfun.
Aukið eigið fé
Á aðalfundi Verzlunarráðsins var
samþykkt ályktun um fjármagns-
markað og segir þar að hann hafi um
langt skeið verið úr lagi genginn
vegna margháttaðra afskipta stjórn-
valda. Við þessu verði að bregðast
með því að efla eiginfjármyndun fyr-
irtækja. Brýnt er að tryggja jafnræði
sparnaðarforma og segir að um heim
allan hafi verið gert átak í að hvetja
almenning með skattaafslætti til
fjárfestingar í atvinnurekstri. „Þegar
nýjar leiðir opnast fyrir fólk til að
leggja atvinnurekstri til fé er ekki
síður mikilvægt að forsvarsmenn
fyrirtækja sýni því skilning að opna
fyrirtækin fyrir þeim fjármögnunar-
möguleika sem hlutabréfasala er.
Þetta á auðvitað ekki síst við um
forsvarsmenn ríkisfyrirtækja. I ljósi
fyrirsjáanlegs mikils halla á ríkis-
sjóði mætti hér slá þrjár flugur í einu
höggi. Með því að breyta ríkisfyrir-
tækjum í hlutafélög og selja hluta-
bréf þeirra á almennum markaði
verða fyrirtækin sjálfstæðari, fá auk-
ið rekstraraðhald og ríkissjóði
áskotnast fé til að rétta af hallann,"
segir að lokum í ályktun Verzlunar-
ráðsins.
URVAL KYNNIR
HÓPFERÐIR
Á EFTIRSÓTTAR
VIÐSKIPTA- OG
VÖRUSÝNINGAR
Úrval vill leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi sýningar. Á hverri þeirra getur að lita
það sem efst er á baugi i hverri atvinnugrein.
SCANDEFA — tannlæknaráðstefna og sýning i
Kaupmannahöfn 16.-20. aprii Gist á Hótel Scandlnavia.
Jerð frá kr. 26.470,-
DRUPA — prentiðnaðarsýning I Dússeldorf2.—6. mai
eóa 2.-9. mai. Gist á Hótel Bonn-Apparte i Bonn.
Verö Irá kr. 20.790,- Daglegur akstur á sýninguna
innifalinn i verði.
SCANDINAVIAN FURNITURE FAIR
— húsgagnasýning i Kaupmannahöfn 8 —12. mai.
Ýmsir gistimöguleikar. Verð frá kr. 24.240,-
IFFA — kjötiðnaðarsýning i Frankfurt 24. mai—1. júní.
Gist á Hotel Regent. Verð frá kr. 31.970.-
INT. COMPUTER SHOW — tölvusýning i Köin
12,—16. júni. Gistá Hotel Baseler Hot.
Verð frá kr. 22.590,-
WORLD FISHING FAIR — fiskiönaðarsýning
i Kaupmannahöfn 15,—22. júní. Gist á Hotel SAS
Globetrotter. Verð frá kr. 32.350,-
Ath. að ásókn f þessar sýningar er mikil. Rétt er þvi
að panta far og tryggja hótelrými með góöum fyrirvara.
Aðeins verður gist á tyrsta flokks hótelum. / flestum
tilfeilum er hægt aó framlengja dvölina. Við útvegum
bllaleigublia, sumarhús og hótel viósvegar um Evrópu
fyrir þá sem þess óska.
Kynntu þér hvað er innifalið i verði. Við veitum fúsiega
allar nánari upplýsingar. Verð er miðað við gengi 7. jan.
FIRÐASKRIFSTOFAN ÚRVAl
Ferðaskrifstofan Úrval við Austurvöll, sími 26900.
53