Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 38
ekki verið að þjóna bestu hagsmun-
um bændastéttarinnar. Dýrt fram-
leiðslukerfi ýtir landbúnaðarvörum
smá saman út af borðum neytenda.“
— Telur þú að markaðsöflin eigi
ekki rétt á sér þrátt fyrir gagnrýni
þína á sérhyggjuna?
„Markaðslögmálin eiga rétt á sér
en ég geri mér jafnframt grein fyrir
því að óheftur markaðsbúskapur get-
ur verið óheppilegur af tveimur
ástæðum. Önnur ástæðan er sú að
það er alls ekki alltaf svo að forsend-
ur frjálsrar verðmyndunar og frjáls-
rar markaðsstarfsemi séu fyrir
hendi. Þetta á í meira mæli við á ís-
landi en í flestum öðrum löndum
vegna þess hvað markaðurinn er lítill
og fyrirtækin fá af eðlilegum ástæð-
um.
Hin ástæðan er sú að niðurstaða
markaðskerfisins getur verið mjög
óréttlát og ósanngjörn. Þannig að
það getur verið nauðsynlegt og óhjá-
kvæmilegt að grípa þar inn i. Ég held
að við verðum að gera okkur hvor-
tveggja ljóst. Þeir sem boða þessa
nýfrjálshyggju, sem nokkuð hefur
borið á síðustu misseri, þeir boða
algjöra fyrirlitningu fyrir einstakl-
ingnum. Þeir afgreiða einstaklinginn
með því að segja að það sé óhjá-
kvæmileg afleiðing af kerfinu að
einhver verði undir. Ég held að þetta
sé ástæðan fyrir því að þessi stefna
nær ekki að festa rætur í íslensku
samfélagi. Við komumst ekki hjá því
að líta á samborgara okkar sem með-
bræður og gera okkur grein fyrir því
að við erum ábyrg hvert fyrir öðru.“
Innan ramma
blandaðs hagkerfis
— Það má deila um túlkun þína á
frjálshyggjunni en spurningin beind-
ist fremur að því hvernig samspilið á
milli markaðsins og ríkisafskiptanna
ætti að vera?
„Ég held að það sé ekki rétt í þeim
efnum heldur að setja sér einhverja
fyrirfram ákveðna markalínu. Ég tel
að það skipti máli að ríkisvaldið hafi
mikil ítök í atvinnulífinu, sérstaklega
þar sem um er að ræða fyrirtæki sem
geta skipt sköpum fyrir alla afkomu
þjóðarbúsins. Ég til dæmis undraðist
það þegar hlutabréf ríkisins í Élug-
leiðum voru seld að umræðan varð
um það hvort bréfin hafi verið seld á
krónunni minna eða meira. Engin
umræða varð í þjóðfélaginu um það
hvort skynsamlegt sé að ríkið selji
hlut sinn í fyrirtæki sem hefur nán-
ast einokun á öllum samskiptum
okkar við útlönd hvað snertir flug-
samgöngur.
Ég held að eignaraðild ríkisins í
bankakerfinu geti líka verið skyn-
samleg. Við eigum ekki að afskrifa
ríkisrekstur ef við teljum að skyn-
samlegar forsendur séu fyrir honum.
Ríkisrekstur er mér ekkert eiginlegt
markmið. Ég held að við getum
skrefað okkur áfram innan ramma
hins blandaða hagkerfis nokkuð
langt og það sé meginmálið. Ég held
að við eigum í atvinnulífinu á næst-
unni að leggja megináherslu á vald-
dreifingu sem felur í sér aðild starfs-
fólks að þeim ákvörðunum sem tekn-
ar eru í hverju fyrirtæki.“
— Ert þú einn í hópi þeirra sem
vilja að einkaaðilar reki fyrirtækin en
ríkið ráðstafi hagnaðinum?
„Sú verkaskipting er ekki alveg
einhlít. En sú verkaskipting hlýtur að
vera uppi að einhverju leyti í öllum
þjóðfélögum sem ætla að veita sam-
eiginlega þjónustu. Ríkið hlýtur alltaf
að vera að ráðstafa einhverju sem
við búum til í atvinnulífinu. Við meg-
um hins vegar ekki gleyma því að
þjónusta hins opinbera er jafnframt
lykilforsenda fyrir starfsemi atvinnu-
lífsins. Ríkisvaldið sér atvinnulífinu
fyrir vegakerfi, höfnum, flugvöllum,
löggæslu og fleira. I þessu sambandi
má minna á að þau viðhorf eru oft
uppi hjá atvinnurekendum að ríkið
eigi að þjóðnýta tapið en þeir halda
gróðanum og það held ég að sé ekki
heppilegur hugsunarháttur fyrir at-
vinnulífið."
Stjórnendur fyrir-
tækja stórra og
smárra:
Nú eins og undanfarin ár þarf aö skipta um möpp-
ur á skrifstofunni og koma eldri gögnum í geymslu.
Margir hafa tekiö þann kost aö setja gömul fylgi-
skjöl í geymslu í dýrum möppum. En þeir vita
heldur ekki um ARCHIEF-BOY skjalageymslu-
kerfiö. Ef þú vilt spara og sleppa viö óþörf möppu-
kaup, þá færöu þér ARCHIEF-BOY skjala-
geymslukerfiö.
ARCHIEF-BOY skjalageymslukerfi
í hverjum pakka eru 12 teinar, 12 plastpokar og 12
sjálflímandi merkimiöar ásamt leiöbeiningum um
notkun.
Farmasía hf.
Brautarholti 2, 2. h. t.v.
Pósthólf 5460, 125 P.eykjavík.
Sími 91—25933.
38