Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 64
svið tekin fyrir, svo sem stjórnun,
tölvur, markaðssetning, upplýsinga-
mál o.fl. Nýjustu bækurnar í þessum
flokki heita „Effective Advertising
and PR“ og “Introduction to Person-
nel Management".
LEYNISKÝRSLA í
DAGSLJÓSIÐ
Árið 1972 skrifaði Alvin Toffler,
höfundur bókarinnar „Future
Shock“, skýrslu fyrir bandaríska
Guideto
Incoterms W/
símafyrirtækið American Telephone
and Telegraph Company, AT&T,
sem þá var stærsta fyrirtæki heims. í
skýrslunni segir hann meðal annars
að nauðsynlegt og óhjákvæmilegt sé
að fyrirtækið muni missa einokunar-
stöðu sína. Álit Tofflers kom flatt
upp á yfirmenn AT&T og skýrslan
var aldrei birt og niðurstöðum henn-
arhaldið leyndum utan fyrirtækisins.
Það kom á daginn sem Toffler spáði.
AT&T hefur misst einokunarstöðu
sína og fyrirtækinu hefur verið skipt
upp í fjöldamörg minni fyrirtæki. Nú
Alþjóða verzlunarráðið í París hef-
ur sett leiðbeinandi reglur um al-
þjóðaviðskipti sem hlotið hafa al-
menna viðurkenningu og eru notað-
ar í viðskiptum landa á milli. Þessar
reglur hafa verið gefnar út í bókum
og bæklingum og annast Lands-
nefnd Alþjóða verzlunarráðsins á ís-
landi dreifingu þeirra hér á landi.
Landsnefndin hefur aðsetur í Húsi
verslunarinnar. Meðal þeirra reglna
sem mest er stuðst við eru reglur um
bankaábyrgðir (Documentary Cred-
its) og reglur um flutningsskilmála
(Incoterms).
meira en 10 árum síðar, þegar breyt-
ingarnar eru um garð gengnar, hef-
ur Pan útgáfan gefið skýrsluna út í
fullri lengd með athugasemdum frá
Toffler.
(Bækurnar sem nefndar hafa
verið hér að ofan fást annað
hvort hjá Máli og menningu eða
Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar. Viðkomandi
verslanir munu sjá um að panta
þær bækur sem ekki eru til á
lager).
BANKAÁBYRGÐIR
I bókinni um bankaábyrgðir eru
skilgreiningar á bankaábyrgðinni
sjálfri. Ábyrgð handhafa hennar er
einnig skýrð auk þess sem gerð er
grein fyrir fylgiskjölum sem þurfa að
fylgja hverri tegund ábyrgðar. Þess-
ar reglur hafa verið endurskoðaðar
miðað við þarfir hvers tíma og fór
síðasta endurskoðun fram 1984. All-
ar ábyrgðardeildir íslenskra banka
fylgja þessum reglum, sem viður-
kenndar eru hvaðæva í heiminum.
Alþjóða verzlunarráðið hefur einn-
ig gefið út leiðbeiningabækling um
notkun bankaábyrgða (Guide to
Documentary Credits Operation). í
þessum bæklingi eru ábyrgðir skýrð-
ar með hjálp mynda og sýnishoma af
ýmsum eyðublöðum sem falla undir
bankaábyrgðir.
FLUTNINGS-
SKILMÁLAR
Bókin um flutningsskilmálana
heitir „INCOTERMS" sem stendur
fyrir „International Rules for.the
Interpetation of Trade Terms“. Þar
eru skráðar 14 reglur um flutninga á
vörum milli landa svo og um rétt og
skyldur kaupanda og seljanda vör-
unnar. Þar má nefna skammstafanir
eins og FAS „Free Alongside Ship“,
FOB „Free on Board“, CIF „Cost,
Insurance and Freight" o.s.frv.
Samhliða þessari bók hefur verið
gefinn út bæklingur sem skýrir
notkun þessara reglna með dæmum
og skýringamyndum.
Nýtt líf—
tískublað
Blaöiö sem
bregst ekki
— Áskrlftarmíml 82300
Rit Alþjóða verzlunarráðsins
64