Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 21

Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 21
Innbrot eru tíðari í fyrirtæki og reyndar íbúðarhúsnæöi en áður og þvi meiri ástæða til að tryggja sig gegn því forsjármannstrygging, starfsmanna- trygging og frjáls ábyrgðartrygging. I valinu er húseigendatrygging, rekstursstöðvunartrygging, gler- trygging, flutningatrygging og skaðatrygging. í iðnaðartrygging- unni er einnig val um vélatryggingu. Skilmálar geta að sjálfsögðu verið breytilegir milli einstakra trygginga- félaga og þurfa fyrirtæki að huga sérstaklega að því. Kostir samsettra trygginga Helstu kostir samsettra trygginga eru þeir að fyrirtæki fá einfaldari og heilsteyptari tryggingar að sögn forsvarsmanna tryggingafélaganna þriggja. Menn falla síður í þá gryfju að vera vitlaust tryggðir eða van- tryggðir. Einnig hafa skilmálar eldri trygginga verið bættir og nýjar tryggingar komið fram. Tryggingin er því bæði fullkomnari og víðtækari en áður. Atvinnurekstrartrygging leysir vátryggingamál fyrirtækis með einni vátryggingu, einu skírteini og einum gjalddaga. Jafnframt yfirgripsmikilli vernd veitir þessi vátrygging at- vinnurekandanum yfirsýn yfir öll vátryggingamál fyrirtækisins. Atvinnurekstrartryggingin nær yfir allar eigna- og skaðatryggingar sem fyrirtæki þurfa á að halda en skip og flugvélar eru þó undanskilin. Samsettar tryggingar taka einnig ekki til bílatrygginga, líftrygginga og farmtrygginga. „Ég tók þessar tryggingar eins og skot“, sagði einn innflytjandi sem Frjáls verslun ræddi við. „í fyrsta lagi þurfti ég á rafeindatryggingunni að halda vegna þess að ég var að fá tölvur á kaupleigusamningi og í öðru lagi finnst mér þægilegt að geta skoðað öll tryggingamál mín í einu lagi ár hvert.“ Annar tryggingartaki sem rætt var við hafði nokkrar efasemdir um þessar tryggingar og taldi að verið væri að fá fyrirtæki til að kaupa meiri tryggingar en þau þyrftu á að halda. Hver er hagkvæmnin? Forsvarsmenn tryggingafélag- anna þriggja segja hins vegar að grunntrygging eða kjarni sé lág- markstrygging en menn geti síðan valið viðbótartryggingu eftir þörfum. Hagkvæmnin við þetta sé augljós því iðgjöldin væru miklu lægri en ef hver trygging væri keypt sérstaklega. Þannig væri hægt að lækka iðgjöldin og gæti sá munur numið 10 til 30% eftir tryggingum. Þó er mjög erfitt að bera þetta saman því taka þarf með í 21

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.