Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 23
breyting að menn eru meira meðvit-
aðir um tryggigngar sínar og við
fáum meiri viðbrögð frá viðskipta-
vininum“, sagði Þórður Þórðarson
hjá Brunabót.
„Viðtökumar sýna að þetta er það
sem menn vilja. Atvinnurekstrar-
tryggingin er þó ekki fullkomin
lausn fyrir alla. Við erum að þróa
þessar tryggingar, bæta við skilmál-
ana og beina þessum tryggingum að
fleiri markhópum en áður. Þetta sem
við höfum nú er aðeins frumraunin“,
sagði Ólafur Ingólfsson hjá Almenn-
um tryggingum.
Fleiri félög?
En ætla fleiri tryggingafélög að
bjóða samsettar tryggingar fyrir at-
vinnureksturinn? Frjáls verslun leit-
aði eftir svömm við þeirri spurningu
hjá forsvarsmönnum Samvinnu-
trygginga og Tryggingamiðstöðvar-
innar. Bruno Hjaltested, aðstoðar-
framkvæmdastjóri hjá Samvinnu-
tryggingum sagði að þeir væru ekki
búnir að taka afstöðu til þess enn.
Samvinnutryggingar þyrftu í sjálfus
ér ekki að bregðast við þessu. Þeir
hefðu boðið samsettar tryggingar
þótt í nokkuð öðru formi væri. Menn
gætu fengið þessar tryggingar en
hefðu einnig meiri möguleika á því
að undanskilja það sem þeir vildu
ekki. Menn gætu fengið magnafslátt
ef þeir væru með margar tryggingar
og þótt tryggingarnar væru ekki
gefnar út á eitt skírteini væri auðvelt
að gefa mönnum tryggingayfirlit.
Gísli Ólafson, forstjóri Trygginga-
miðstöðvarinnar hf. tók í svipaðan
streng. „Við emm með það sem má
kalla samsettar tryggingar á vissum
sviðum útgerðar og fiskvinnslu. Við
bjóðum ekki staðlaðar samsetningar
heldur reynum við að meta trygg-
ingaþörf hvers og eins viðskiptavin-
ar og bjóða þá samsetningu sem við
teljum henta“, sagði Gísli. Hann taldi
að það væri ekki alfarið kostur að
hafa eitt skírteini og einn gjalddaga.
Mörgum fyrirtækjum hentaði betur
að dreifa gjalddögum yfir árið og
gætu þau með því sparað sér fjár-
magnskostnað.
Samkeppnin
Samkeppni tryggingafélaganna
hefur leitt til lægri iðgjalda, betri
þjónustu og nýjunga á markaðnum.
„Það hlýtur að vera mikil samkeppni
á milli tryggingafélaganna því tals-
vert er sótt að manni og menn frá
tryggingafélaginu koma einu sinni á
ári til að fara yfir málin með mér“,
sagði einn ánægður tryggingataki í
samtali við Frjálsa verslun.
Sem dæmi um hin breyttu viðhorf
má nefna að í hefðbundnum trygg-
ingum var og er samstarf á milli
tryggingafélaga um skilmála. Skil-
málar voru jafnvel prentaðir í sömu
prentsmiðju fyrir tvö eða fleiri trygg-
ingafélög, bara með mismunandi
kápu. Þetta samstarf er ekki fyrir
hendi í atvinnurekstrartryggingun-
um. Margt er líkt með skilmálunum
en þarna er ekki um sömu trygging-
una að ræða.
Eflaust er það margt sem hefur
hrint þessari samkeppni af stað.
Margir hafa bent á að bæði með
samsettum tryggingum fyrir fyrir-
tæki og lækkun einstakra iðgjalda
hafi Reykvísk endurtrygging hrisst
upp í markaðnum sem hafði verið í
kyrrstöðu.
Markaðshyggjan
Sigurjón Pétursson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sjóvá var spurður um
skýringuna á þessari hörðu sam-
keppni: „Óneitanlega hefur færst
meira líf í markaðinn. Samkeppnin
hefur harðnað. Á sumum sviðum hef-
ur hún verið býsna hörð, svo hörð að
hún hefur gengið út fyrir öll skyn-
samleg mörk. Dæmi um það er út-
boðið á brunatryggingunum í Hafn-
arfirði sl. ár. Félagið sem fékk trygg-
ingamar bauð svo lág iðgjöld að það
er ekki spuming hvort heldur hve-
nær slíkt kemur í bakið á trygginga-
tökunum í formi hækkaðra iðgjalda.
23
SÍÐAN 1983 . . .
Reykvísk endurtrygging hefur verið frumkvöðull ýmissa nýjunga á ís-
lenskum tryggingamarkaði. Því var það að árið 1983 gáfum við út fyrstir
tryggingafélaga tryggingaheild, sem veitir fyrirtækjum handhægt yfirlit
yfir allar sínar tryggingar á einum stað.
Með einu skírteini minnkum við hættu á tvítryggingu eða því að
áhættusvið sé ótryggt. Viðskiptavinurinn ræður sjálfur samsetningu
tryggingaheildar sinnar, enda er hún sérhönnuð fyrir hann.
Þetta er í samræmi við þá stefnu okkar að gæta þess jafnan að veita
persónulega, nákvæma þjónustu og faglega leiðsögn varðandi örygg-
ismál og brunavarnir.
Markmið okkar er að vera áfram í fararbroddi á þessu sviði og sinna
viðskiptavinum okkar, stórum sem smáum, af alúð og nákvæmni og Ieita
stöðugt nýrra leiða fyrir þá, sem auka hagkvæmni og öryggi þeirra.
Okkar fag er að þekkja og greina áhættuþætti.
Ti
REYKVÍSK ENDURTRYGGING
Sóleyjargötu 1 101 Reykjavík Sími: 29011