Frjáls verslun - 01.02.1986, Blaðsíða 32
forsendum og áður yrðum við að
keppa við 30 — 35% verðbólgu til
þess eins að halda kaupmætti
óbreyttum og þaðan af meira ætluð-
um við að auka kaupmátt.
Við töldum því óhjákvæmilegt að
leita annarra leiða. Það var gert með
því að vinna samninginn út frá báð-
um endum, það er að leggja jafna
áherslu á að ná niður verðlagi og
hækka kaupið. Þegar heildarniður-
staðan er skoðuð og ef allar forsend-
ur standast ætti að takast að hækka
kaupmáttinn á samningstímanum
stig af stigi frá því að vera að meðal-
tali 4% lægri en hann var á síðasta
ári í það að vera 3,5% hærri en hann
va rað meðaltali á síðasta ári. Sam-
hliða þessu ætti að takast að koma
verðbólgunni niður í það að vera
hálft prósent á mánuði síðari hluta
ársins.
Þarna er verið að gera tilraun til
að ná árangri með aðgerðum í verð-
lagsmálum. Þar með gerum við tilkall
til þess að þannig sé staðið að málum
af hálfu allra þeirra sem aðstöðu
hafa til áhrifa á verðlagið að tilraunin
takist. Það leggur skyldur á herðar
ríkisvaldsins, sem ræður miklu um
verðlag í landinu, en það leggur líka
skyldur á fyrirtækin sem taka beinar
ákvarðanir um verðlag á flestum
sviðum."
Samningar eru
happdrætti
— Er niðurfærsluleiðin ekki
aðeins ein skammtímalausnin enn.
Það kemur að því að hækka þarf
skatta til að standa undir þessum
niðurfærslum og greiða skuldir ríkis-
sjóðs sem af þeim hlýst eða draga úr
þjónustu eða framkvæmdum hins
opinbera? Skuldir ríkissjóðs eru
skattar framtíðarinnar.
„Það þarf ekki að vera. Ég held að
það sé fullkomlega réttiætanlegt að
axla eitthvað gagnvart framtíðinni til
að ná þeim árangri í baráttunni gegn
verðbólgunni sem þarna er stefnt að.
Ég held líka að það eigi við hjá því
opinbera ekki síður en hjá fyrirtækj-
um að allar forsendur breytast til að
hagræða og spara í rekstrinum ef
tekst að ná verðbólgunni niður. Með
þessum samningum er því verið að
leggja drög að spamaði sem getur
orðið án skerðingar á þjónustu hjá
því opinbera. A sama hátt fá fyr'
tækin svigrúm til að auka afköst sín
og bæta reksturinn."
— Samningarnir renna út í árs-
lok. Verður þá samið um skipting-
una á því sem vinnst við bættan
rekstur vegna lítillar verðbólgu?
„Það verður hluti af því sem hægt
verður að semja um í árslok. Með
þessum samningum höfum við þó
ekki komið á réttum skiptahlutföll-
um milli launþega og atvinnurek-
enda. Þannig að þar er líka svigrúm
til þess að færa Iaunafólki meira í
næstu samningum á kostnað at-
vinnurekenda."
— Er ekki of mikil áhætta tekin
með því að setja gengið fast og eiga
það á hættu að útflutningsgreinarnar
verði reknar með bullandi tapi ef
kostnaður innanlands hækkar eða
dollarinn lækkar?
„í þessum samningum eins og öll-
um samningum er verið að taka
áhættu. Ég hef orðað það þannig að
allir samningar séu happdrætti. Ef
við skoðum reynslu undanfarinna
missera má segja að verðbólgan hafi
stolið vinningunum í þessu happ-
drætti hverjum á fætur öðrum. Við
erum núna að reyna að festa vinn-
inginn í hendi.
Auðvitað er áhætta fólgin í því að
festa gengið. Það er þó grundvallar-
forsenda í því aðhaldi í verðlagsmál-
um sem stefnt er að. Gengið ákvarð-
ar ekki aðeins verðlag á erlendum
vörum heldur ákvarðar það óbeint
verð á stórum hluta af innlendri
framleiðslu vegna þeirrar samkeppni
sem innflutningurinn veitir.“
Tómarúm
— Með þessum samningum voru
ákveðnar forsendur sem snertu
skatta-, verðlags-, og ríkisfjármál.
Eru aðilar vinnumarkaðarins þarna
ekki að fara inn á svið stjórnmála-
manna og setja þeim hálfpartinn
stólinn fyrir dymar?
„Ríkisstjórn lifir aldrei í tómarúmi.
Hún er hluti af þjóðfélagi og hlýtur
að verða að taka tillit til þess á hverj-
um tíma. Það sem gerist í þessu til-
felli er það að aðilar vinnumarkaðar-
ins setjast niður og skoða hvernig
þeir geta tekið á þeim kjarasamning-
Verzlunarskóla
ÍSLANDS
M.S. Project
Verkáætlanagerðir CPM. Námskeiðiö hefst 2. april kl.
19.00—20.20.6 kennslustundir.
Multiplan H og Chart-tengingar
Framhald af Multiplan-námskeiöi 1. Fariö veröur í
áætlanageröir meö aöstoö multiplan frá Microsoft og sýnt
hvernig linurit, súlurit og kökurit eru tölvuunnin.
20 kennslustundir. Námskeiöiö hefst 7. april. Kennt veröur
á mánudögum frá kl. 16.50 —18.18 og miövikudögum frá kl.
17.38-19.00.
Kennt verður á Atlantis-tölvur, MS DOS-stýrikerfi.
Þátttaka tilkynnist til Verzlunarskóla Islands i sima
688400.
32