Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 44

Frjáls verslun - 01.02.1986, Síða 44
u Hryðjuverkin eru mesta vandamálið — segir Giinter O. Eser aðalforstjóri IATA Giinter O. Eser, aðalforstjóri IATA og Sigurður Helgason stjórnarformaður IATA, Alþjóðasamband áætlunarflugfélaga er stór og mikil stofnun sem ann- ast ýmis hagsmunamál aðildarfélaganna um heim allan. Innan sambandsins eru nú 142 flugfélög í 119 löndum og eru það öll helstu flugfélög heimsins. Sambandið var stofnað 1945 og minntist á liðnu ári 40 ára afmælis síns. Forstjóri þess nú er Þjóð- verjinn Giinter O. Eser en hann starfaði um árabil hjá Lufthansa. Hann var staddur hérlendis á dög- unum ásamt blaðafulltrúa sambandsins David R. Kyd og greindu þeir frá starfseminni á fundi með fréttamönnum í stuttu spjalli við Frjálsa verslun. En hver var tilgangur heimsóknar þeirra til ís- lands? — Tilgangur heimsókna minna til aðildarfélaga IATA er sá að kynna mér starfsemina, ræða við forráða- menn þeirra og kanna hvort einhver sérstök mál séu á ferðinni sem við getum unnið að saman, sagði Gíinter 0. Eser. -Eg kem nú í fyrsta sinn til Islands og kemur mér allt hér mjög á óvart því menn höfðu varað mig við kulda og trekki en hér er nú hið besta veður. Vonandi verður þó hægt að koma hér síðar og þá að sumarlagi. Og hann bætti því við að hann hefði fengið góða þjónustu um borð í Flugleiðavél, enda þekkti hann Flugleiðamenn að góðu einu. Um árabil vann hann í Bandaríkjunum og kynntist þá m.a. Sigurði Helga- syni stjórnarformanni Flugleiða. Ferðast mikið Gúnter Eser tók við starfi sínu hjá IATA fyrir ári síðan og hefur hann síðan verið að heimsækja aðildarfé- lögin og því verið á stöðugum ferða- lögum. Hann kom hingað frá Banda- ríkjunum á miðvikudagsmorgni, ræddi við Flugleiðamenn þann dag og hélt utan á fimmtudagsmorgni og ráðgerði að fara til Singapore á föstudegi. En að hvaða málum er einkum unnið hjá IATA um þessar mundir? — Þau eru jafnan mörg. Helstu málaflokkar eru flugöryggismál, við- haldsmál, tæknimál hvers konar, menntun starfsmanna á öllum svið- um flugmála, samvinna um fargjöld, áætlanir og uppgjör á farmiðum milli félaga. Net áætlunarfélaga um heim- inn er þéttriðið og mikil samskipti milli félaga og því ríður á að auðvelt sé fyrir flugfarþegann að nota far- miða útgefinn af einu flugfélagi hjá því næsta. Þess vegna rekum við sér- staka miðstöð sem annast uppgjör milli flugfélaganna. Þá er mikið um hvers konar upplýsingastarfsemi hjá okkur og þannig getum við miðlað þekkingu til aðildarfélaganna. Þar má nefna atriði eins og hvers konar sætisáklæði eru talin minnst eldfim og hvernig öryggisgæslu er háttað á hinum ýmsu flugvöllum svo eitthvað sé nefnt. Er unnið að einhverjum nýjum málum? 44

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.