Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 46

Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 46
— Af nýjum málum mætti helst nefna sérstök verkefni með nokkrum flugfélögum í þróunarlöndum. Mörg flugfélög eru að hefja starfsemi í þróunarlöndum og mikilvægt er að þeir sem reynslu hafa í flugrekstri geti aðstoðað. Þar mætti helst nefna þjálfunarmál og hvers kyns kennslu starfsmanna og algeng er samvinna félaga í þróuðum þjóðum og þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref. Hryðjuverk mesti ógnvaldurinn Hver eru helstu vandamál sem steðja að flugrekstri í dag? — Það eru hryðjuverk. Þau eru mesti ógnvaldur flugfarþegans og starfsmanna í flugmálum bæði í loft- inu og á jörðu niðri eins og dæmin hafa sýnt. Flugfélög hafa lagt í gífur- legan kostnað við alls konar vopna- leit og öryggisgæslu og allt kapp er lagt á að koma í veg fyrir hryðjuverk. Ég vil leggja sérstaka áherslu að hér er yfirleitt um hryðjuverk að ræða, ég vil ekki kalla þetta flugrán, því oft- ar en ekki eru menn drepnir og hér er því um glæpamenn og morðingja að ræða. Hins vegar má líka bæta því við að enn í dag er flugið sá sam- göngumáti sem öruggastur er. Hvernig er unnið að því að stemma stigu við hryðjuverkum? — Við reynum að opna augu rík- isstjórna og flugmálayfirvalda fyrir ýmsum atriðum sem til úrbóta geta verið. Víða má t.d. girða af flugvell- ina miklu betur en gert er. Það eru ekki allir svo heppnir sem þið að hafa herlið á flugvellinum! Flugfélögin reyna líka að tryggja eftir megni að ekki fari um borð neinir farþegar eða aðrir sem borið geta vopn og eins og flugfarþegar hafa orðið varir við fer gífurlegur tími í þessar varúðarráð- stafanir og þær eru oft hvimleiðar. En því miður eru þær nauðsynlegar. Við reynum líka að höfða til sam- visku starfsmanna. Það þarf ekki nema augnabliks aðgæsluleysi til að taska með vopni fari framhjá þeim sem annast vopnaleit á skermi, tæk- ið getur bilað án þess að það upp- götvist strax og þannig er hugsan- legt að hryðjuverkamenn hafi sitt fram. Þess vegna þurfum við að brýna það sérlega vel fyrir öllum sem vinna að þessum öryggismálum að halda vöku sinni og láta ekkert grun- samlegt framhjá sér fara. Vissulega er hræðilegt að þurfa að búa við þetta. Þess vegna verðum við að fordæma hryðjuverkamenn og þá sem styðja slík ofbeldisverk. Hér verða stjórnmálamenn að taka hönd- um saman með okkur og knýja á um aukið aðhald. Og meðan enn eru til menn sem af hugsjón ganga í sjálfs- morðssveitir verðum við að gera allt sem hugsanlegt er til að draga úr hættunni af þeim. Samkeppni og samvinna Er þá ekki eintóm samkeppni á yfirborðinu þegar fulltrúar flugfélag- anna hittast? — Nei, alls ekki. Við líkjum okkur stundum við Sameinuðu þjóðirnar. Þar ræða menn saman í sátt og sam- lyndi á fundum og skiptast kannski stundum harkalega á skoðunum en geta jafnvel verið í stríði á öðrum vettvangi. Hjá okkur eru mörg sam- Hver var að tala um ad tölvuvæðing væii dýr? Ef þér hefur fundist of dýrt að tölvuvæða íýrirtækið, komdu þáogskoðaðu STAR-pakkann. Tilboð nr. 1. STAR PC-tölva, Microline 182 prentari, Quantum-hugbúnað- ur frá Víkurhugbúnaði með fjárhags- og viðskiptamanna- bókhaldi, lagerkerfi, sölukerfi með útprentun á nótur, víxla, verðlista, gíróseðla o.fl, o.fl. Staðgr. 107.650 Tilboð nr. 2 STAR XT-tölva með 20 MB harðdiski, Microline 182i>rent- ari, Quantum-hugbúnaður frá Víkurhugbúnaði með fjárhags- og viðskiptamannabókhaldi, lagerkerfi, sölukerfi með út- prentun á nótur, víxla, verð- lista, gíróseðlao.fl. Staðgr. 154.500 HUÓMAR VEL EKKI SATT? STAR PC/XT og Quantum-hugbúnaAur Kynntu þér málið EN SJÓN ER SÖGU RÍKARI FJÖLKAUP HF. Lágmúla 5, 3. h. sími 688199 Víkurhuabúnadur sf. Hafnargata 32, sími: 92-1059

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.