Frjáls verslun - 01.02.1986, Page 52
Þrátt fyrir háalvarleg umræöuefni á stundum var oft slegiö á létta strengi á aöalfundi Verzlunarráösins
ákvörðun og verðlagningu ýmiss kon-
ar þjónustu. Aflétta þarf hömlum á
innflutningi olíuvara og afnema
verðjöfnun og niðurgreiðslur jafn-
framt því sem lögvernd ýmissa at-
vinnugreina, þjónustugreina, er end-
urskoðuð. Með réttu þarf að afnema
núverandi verðlagslöggjöf og setja
þess í stað stranga samkeppnislög-
gjöf en um það liggja fyrir ítarlegar
tillögur frá Verzlunarráðinu."
Að síðustu gerði Bjarni að umtals-
efni hvernig stjórna megi nýtingu
auðlinda. Sagði hann þar uppi vera
tvö vandamál, takmörkun nýtingar
og úthlutun leyfa. Núverandi fyrir-
komulag í sjávarútvegi sagði hann
bjóða upp á pólitísk hrossakaup og
hagsmunapot og væri réttlátast að
láta markaðinn stjórna úthlutuninni,
þannig að þeir sem sjósókn stund-
uðu með mestri hagkvæmni hefðu
tækifæri til aðgangs að nauðsynleg-
um leyfum með eðlilegum hætti. Hið
sama ætti við um nýtingu annarra
sameiginlegra gæða. Ókeypis að-
gangur býður ætíð heim hættu á of-
nýtingu og pólitísk úthlutunarstefna
býður heim spillingu, sagði Bjarni
Snæbjöm Jónsson að lokum.
Eftir nokkra umræðu um stefnu-
skrána sem lögð var fram og er 20
síðna plagg var henni vísað til stjórn-
ar til endanlegrar útgáfu og kynning-
ar og var samþykkt að yrðu stjórnar-
menn ekki sammála um öll atriði
hennar skyldi hún á ný borin undir
atkvæði félagsmanna.
Alþjóðaviðskipti og
fjárfesting
Jaques G. Maisonrouge fyrrver-
andi framkvæmdastjóri IBM í Evr-
ópu flutti ræðu um alþjóðaviðskipti
og var gerður góður rómur að máli
hans og svaraði hann nokkmm fyrir-
spurnum að lokinni ræðunni. Þar
lagði hann m.a. áherslu á að háskóla-
menn yrðu að vera í góðum tengsl-
um við atvinnulífið og að ekki dygði
að stunda rannsóknir sem hefðu lítið
hagnýtt gildi. Sagði hann það skoðun
sína að góð menntun væri undir-
staða framfara á öllum sviðum þjóð-
lífs og ef vel ætti að vera þyrftu yfir-
völd að gera ungu fólki grein fyrir
því í hvaða greinum starfsmöguleik-
ar væru mestir.
Um alþjóðaviðskipti sagði Mais-
onrouge að alþjóðlegum fyrirtækjum
væri nauðsynlegt ákveðið frjálsræði
til starfa utan heimalanda sinna. Oft
lægju hráefni þannig að best væri að
vinna úr þeim í viðkomandi landi,
þar væri best að stofna verksmiðjur
og flytja nauðsynlega starfsþekkingu
inn í landið sé hún ekki þegar fyrir
hendi. Sagði hann viðkomandi yfir-
völd þá verða að sýna skilning á
áhuga viðkomandi fyrirtækis á
fjárfestingu í landinu sem hlyti að
koma landinu betur en að flytja inn
tilbúinn varning framleiddan annars
staðar.
Sagði hann að á árunum 1964 til
1965 hefði stjórn de Gaulles bannað
Ford að koma á fót verksmiðju í
Frakklandi. Henni var þá komið upp
í Belgíu og sagðist Maisonrouge þá
52