Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 61

Frjáls verslun - 01.02.1986, Side 61
Unnið við hleðslu á flutningavél. Samkeppni þjónustu Fyrr er nefnd ný skrifstofa Arnar- flugs í Kaupmannahöfn sem hefur það markmið að ná þaðan meiri flutningum. Ekki segjast Flugleiða- menn hafa orðið varir við minnkun hjá sér, tilkoma Amarflugs á þessari sömu leið þýði e.t.v. ný viðskipti. Bæði félögin reyna að veita sem besta þjónustu varðandi bókanir og hraða. Þannig er Arnarflug í tölvu- sambandi við bókunartölvu KLM, sem þýðir að hægt er að veita upplýs- ingar um hvar í heiminum vara er stödd þegar hún hefur verið afhent til flutnings. Flugleiðir geta einnig veitt þessa þjónustu með telexfyrir- spurnum. Þannig eiga viðskipta- menn að fá að vita hvaða dag vara þeirra er væntanleg til landsins sem auðveldar þeim sölustarfið hér heima. Bæði félögin gefa út gjaldskrá fyr- ir farmflutninga sem send er við- skiptavinum. Þar koma fram gjöld fyrir flutning frá áfangastöðum félaganna og mörgum öðrum borg- um og löndum. Síðan gilda sérfarm- gjöld í nokkrum tilvikum eftir flutn- ingamagni og vöruflokkum. Verð á flutningum er svipað. Kostir og gallar Vitað er að vöruflutningar með flugi eru talsvert dýrari en með skip- um. Getur verðmunurinn orðið allt að fimmfaldur, en kostir eru líka nokkrir. Eðli vörunnar ræður að sjálfsögðu mestu um hvort hún er flutt með skipi eða flugvél. Þannig er sjálfsagt að flytja blóm, matvæli, lyf, ýmsa varahluti, fatnað og hátækni- vörur sem eru viðkvæmar fyrir hnjaski í flugvélum. Margt annað en eðli vörunnar kemur þó til. Umbúða- kostnaður er lægri vegna betri vöru- meðferðar, fyrirtæki þurfa ekki að hafa eins miklar birgðir heima við og geta þannig lækkað fjármagnskostn- að sinn og stuttan tíma tekur jafnan að fá vörur með flugi jafnvel langt utan úr heimi. Arnarflug notar vél sína Boeing 737 Combi til flutninga með frakt og farþega og flytur yfirleitt hvort tveggja. Ef engin frakt er með í för tekur vélin 130 manns í sæti, en 82 ef tveir þriggja tonna pallar eru um borð og sjö palla ef eingöngu er flutt frakt. Getur vélin borið um 15 tonn af frakt. Flugleiðir taka að jafnaði frakt í hverri ferð, allt að 10 tonnum í DC-8 þoturnar ef þær eru ekki fullsetnar farþegum og 6 tonn í Boeing 727. Þá eru að vetrarlagi farnar vikulegar fraktferðir til Kaupmannahafnar og stundum fleiri en ein í viku. Stöku sinnum eru líka farnar sérstakar fraktferðir til London og Lúxem- borgar. 61

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.