Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 11

Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 11
réttir Artek gerir sölu- samning við Lattice Artek hf. er nú að ganga frá samningi við banda- ríska fyrirtækið Lattice um að það taki að sér markaðssetningu á ADA þýðandanum erlendis. Artek mun þá eingöngu snúa sér að þróun á hug- búnaðinum. Jafnframt er nú unnið að því að auka hlutafé Arteks til þess að treysta stöðu fyrirtækis- ins. Með þessum samningi verður gagnger breytinga á starfsemi Arteks. Fyrir- tækið er í eigu íslenskrar forritaþróunar og Frum- kvæðis og var það stofnað til að þróa og markaðs- færa ADA þýðandann. Þrátt fyrir góðar viðtökur erlendis reyndist mark- aðssetningin of kostnað- arsöm og var því gripið til þess ráðs að leita til sér- hæfðra fyrirtækja erlend- is á þessu sviði. Oll þau fyrirtæki, sem leitað var til, sýndu málinu áhuga en því lauk með samningi við Lattice. ADA þýðandinn frá Artek verður seldur undir merki Lattis. Samkvæmt markaðsathugunum er talið að hægt verði að selja 30 þúsund ADA þýðendur fyrir 1990 en óvíst er hve íslenski þýð- andinn gæti náð stórum hlut. Tveir keppinautar eru á markaðnum en Lattice er þekktari en þeir. Nú þegar hafa verið gerð- ar söluáætlanir og er þar gert ráð fyrir að auglýsa ADA þýðandann fyrir nokkrar milljónir ís- lenskra króna á mánuði fyrir utan aðra markaðs- starfsemi. Það gefur kannski hugmynd um hve örðugt það er fyrir lítil fyrirtæki að ætla sér að markaðssetja hugbúnað á alþjóðlegum mörkuðum. Ætlunin er að auka hlutafé Arteks um nokkr- ar milljónir króna og er söfnun hlutafjár nú hafin. Miðað við söluáætlanir Lattice er reiknað með að Artek geti skilað hluthöf- um arði þó svo salan verði í lægri kanti áætlananna. Ölog gos: Markaðurinn stækkar enn Gosmarkaðurinn hefur stækkað mjög mikið á síð- ustu árum og ekkert lát virðist vera á þeim vexti. Samkvæmt tölum þjóð- hagsstofnunar um veltu í öl-og gosdrykkjasölu samkvæmt söluskatt- skýrslum var veltan í þessari grein 731.487 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins en var 520.402 milljónir króna á sama tíma árið 1986. Þetta er 40.6% veltuaukning. Ef verð á öli og gosdrykkjum hefur breyst í samræmi við breytingar á framfærslu- vísitölu er hér um 25% raunaukningu að ræða. Hér þarf þó að taka með í reikninginn að verð á um- búðum í dósagosi, sem notið hefur mikilla vin- sælda á þessu ári, er inni í veltutölum en verð á gler- flöskum ekki. Þetta skekkir samanburðinn á milli ára en engu að síður er ljóst að gróskan er ótrúlega mikil. Jón Steinar. Deilt á dómara Látlaus eftirspurn er eftir gosi. Meðal bóka sem koma út nú í haust verður bók eftir Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttarlögmann og á hún án efa eftir að vekja mikla athygli og umtal. Bók Jóns Steinars mun heita „Deilt á dómar- ana“ og fjallar hún um störf Hæstaréttar eða öllu heldur meðferð Hæsta- réttar á málum er varða meint stjómarskrárbrot. I bók Jóns Steinars kemur fram mjög harðorð gagn- rýni á dóma Hæstaréttar í þessum málum. Telur Jón að þeir einstaklingar, fyr- irtæki og félagasamtök, sem leitað hafi réttar síns fyrir dómstólunum þegar stjórnvöld hafa brotið gegn réttindum þeirra samkvæmt stjómar- skránni, hafi of oft ekki náð að rétta hlut sinn. í bókinni er farið yfir nokkra dóma sem renna stoðum undir skoðanir höfundar. Jón Steinar er í hópi virtari lögfræðinga og hefur mikla reynslu af málum er varða stjómar- skrá landsins. Með bók sinni rýfur Jón Steinar þögn lögmanna um störf Hæstaréttar. Það verður því erfitt fyrir yfirvöld dómsmála að leiða gagn- rýni hans hjá sér. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.