Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 30
oivur
Afmæli hjá Heimilistækjum:
Wang tölvur í tíu ár
Steinar Viktorsson sölustjóri og Sveinn Guðmundsson deildarstjóri tölvudeildarinnar við Wang VS 7000, stærstu
fjölnotatölvu Wang, hún getur tengst 200 skjám.
Texti: Þorsteinn G. Gunnarsson
Mynd: Kristján Einarsson
Við Sætún, í grennd við Höfða
frægasta hús landsins, eru
Heimilistæki með starfsemi
sína. En nafn fyrirtækisins er
eilítið villandi því innan um
allra handanna rafmagnstæki
sem einkum eru ætluð til
heimabrúks er starfandi öflug
tölvudeild og stolt hennar er
tölvur frá Wang Laboratories í
Bandaríkjunum.
Maðurinn á bak við Wang fyrir-
tækið, An Wang fæddist í Kina en
fór til náms til Bandaríkjanna árið
1940. Snemma gat hann sér gott orð
í tölvuheiminum og stofnaði eigið
fyrirtæki, Wang Laboratories árið
1951 eftir að hafa unnið að þróun
verkefna fyrir ólíka framleiðendur og
þess má geta að Wang seldi einka-
leyfisrétt sinn á minniseiningum til
IBM.
Nokkrum árum síðar fór Wang að
leggja grunn að eigin framleiðslu og
upp úr 1960 setti hann á markaðinn
forritanlegu reiknivélina LOCI. Vélin
reyndist mjög vel og naut mikilla vin-
sælda enda um algera nýjung að
ræða. Seint á sjöunda áratugnum
varð vart við breytingar á markaðn-
um og hóf Wang Laboratories þá
hönnun tölva og afraksturinn var
Wang 2200, tölva sem kom á mark-
aðinn árið 1972. Wa,ng 2200 er fyrir
marga hluti merkileg tölva. Hún
þótti fyrirferðarlítil og einkar af-
kastamikil miðað við verð og sér-
staklega þægileg í forritun. Þess
vegna er því stundum haldið fram að
Wang hafi með þessari tölvu dregið
tölvurnar út úr tölvusölunum og
komið þeim i hendurnar á notandan-
um. En Wang lét ekki þar við sitja.
Árið 1972 einsetti Wang Laborator-
ies sér að setja á markaðinn rit-
vinnslukerfi sem notandinn gæti
lært á 15 mínútum. Það tókst og með
það miklum ágætum að allar götur
30