Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 53

Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 53
Fylgst meö af athygli í hita umræöna í fyrirlestrasal. ari snertingu við raunveruleika við- skiptalífsins, fyrirtæki fá úrlausn á vandamálum sínum og tengsl IMEDE við atvinnulífið eflast enn frekar. Sum þessara verkefna eru síðan notuð sem kennsluefni á næstu árum. Það er því ekki að ástæðulausu að samlíkingin við kennsluspítala er oft notuð til að lýsa því sem fram fer við IMEDE. Samskiptatækni Öllum nemendum er skipt í 10-11 um- ræðuhópa til undirbúnings að hverju verkefni. Á fyrri hluta námsársins er skipan umræðuhópanna breytt í byrjun hvers áfanga en á seinni hlutanum er skipan þeirra óbreytt. I lok hvers áfanga á fyrri hluta er hópunum úthlutað áfangaprófsverkefni og þeim fengnir tveir sólarhringar til að undirbúa lausn- ir sínar og verja þær fyrir prófnefnd. Hóparnir eru síðan metnir til einkunnar eftir úrlausnum sínum og virkni hvers einstaklings í kynningu á úrlausninni. Það reynir því mjög á hæfileika nem- enda í samskiptum við aðra, þ.e. að að- lagast nýjum einstaklingum og að ná árangri í hópstarfi undir álagi. í um- ræðuhópunum miðla nemendur af þekk- ingu sinni og reynslu sem er mjög dýr- mætt með hliðsjón af mismun þeirra eft- ir menntun, þjóðerni og starfsreynslu. Jafnframt er lögð áhersla á funda- og samningatækni, ræðumennsku, fram- setningu verklausna, hnitmiðaða skýrslugerð og tölvunotkun, enda er hún sívaxandi þáttur í starfi stjórnenda. Við kennslu í samningatækni og ræðu- mennsku er m.a. notast við myndbands- tækni til að nemendur átti sig frekar á því sem betur má fara. Mat á frammistöðu nemenda Mat á frammistöðu nemenda er eink- um þríþætt. I fyrsta lagi metur hver prófessor nemanda eftir frammistöðu hans og frumkvæði í umræðum í fyrir- lestrum svo og frammistöðu í skyndi- prófum og liggur mat hans fyrir í lok hvers áfanga. I öðru lagi eru umræðu- hópar metnir í áfangalok eins og áður greinir og í þriðja lagi þreyta nemendur víðtækt grunnpróf í lok 3. áfanga. Mjög vandlega er fylgst með árangri hvers og eins nemanda frá einum áfanga til annars og þess gætt að hann uppfylli sífellt þær kröfur sem gerðar eru fyrir skólavist við skólann. Unnið undir álagi Vinnuálag á nemendur er mikið. Hin daglega stundaskrá með fyrirlestrum og umræðuhópum er frá kl. 8-17 (til há- degis á laugardögum), en síðan tekur við undirbúningur að næsta degi, að jafnaði 6-8 klst. Samhliða því vinna nemendur að ráðgjafarverkefnum og at- vinnuleit á seinni hluta námsársins. Með þessu er nemendum ætlað að þjálfa sig í að vinna hratt, skilja hismið frá kjarnanum og setja viðfangsefni sín í forgangsröð. Eins og gefur að skilja setur þetta enn frekari pressu á þá sem eru með fjöl- skyldur sínar með sér en einstaka nem- endur hafa tekið þann kost að skilja þær eftir heima og einbeita sér að náminu. í þessum efnum verða menn því að velja og hafna. Til að stytta sér stundir hafa makarn- ir með sér formlegar og óformlegar sam- komur, jafnframt því sem fjölskyldum er boðið mánaðarlega til hádegisverðar í skólanum. Auk þess hefur skólinn hald- ið styttri námskeið fyrir maka og sam- eiginlegt námskeið með mökum og nem- endum. Aðstoð við starfsval IMEDE starfrækir sérstaka skrif- stofu sem hefur það verkefni að koma þeim nemendum, sem ætla að leita sér 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.