Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 29
Bíll fyrir forstjórann í framhaldi af umfjölluninni um bíla, hér að framan hafði Frjáls verslun samband við nokkur bílaumboð til að forvitnast eilítið um „forstjórabíla“ sem í boði eru. Þetta er langt frá því að vera vísindaleg athugun hjá okkur enda frekar um leik en alvöru að ræða. Leitað var til fjögurra bílaumboða, Heklu hf., Veltis, Ingvars Helgasonar og Bílvangs. Hjá Heklu hf. áttu menn í erfiðleikum með að nefna „forstjórabílinn," því fleiri en einn kom til greina. Marinó Björnsson sölustjóri nefndi Pajero bílinn sem hægt er að fá frá 1100 þúsund krónum og Range Rover Voge, sjálf- skiptan átta strokka bíl með öllu sem kostar 1746 þús- und. En mestu vonir batt hann þó við Audi 80 sem hann sagði nýjan og vinsælan bíl. Hann er sjálfskiptur, með rafstýrðar rúður, litað gler og vandaðri innréttingu. Bíll- inn kostar frá 900 þúsund krónum. Smári Hreiðarsson hjá Ingvari Helgasyni gat ómögu- lega gert upp á milli tveggja jeppa sem báðir eru frá Nissan. Fyrst nefndi hann Nissan Patrol Rescue Unit, sex strokka bíl með 3.3 turbo disel vél. Hann er á breið- um dekkjum, með alfstýri, spili að framan, með grind fyr- ir varadekk og eldsneytisgeymi að aftan. Bílinn tekur sjö manns í sæti, er með sjálfvirkri hraðastillingu og kostar 1420 þúsund. Hinn bíllinn sem Smári nefndi heitir Nissan Pathfinder og er litill jeppi. Hann er sex strokka og hefur verið kosinn bíll ársins í Bandaríkjunum og Kanada í flokki fjórhjóla drifs bíla. Hann kostar 1100 þúsund krónur. Hjá Bílvangi nefndi Bjarni Ólafsson Chevrolet Blazer sem verðugan „forstjórabíl," þótt þeir væru reyndar með fleiri jeppa sem hæglega gætu tilheyrt þessum flokki bíla. Bjarni sagði Blazerinn kosta frá 1150 þúsundum en vel búinn bíll kostar að sögn Bjarna 1340 þúsund. Það er verið að tala um sex strokka sparneytin bíl sem sameinar kosti jeppa og fólksbíla. Bíllinn er með vökvastýri, sjálf- virkri hraðastillingu og það sem skiptir einna mestu máli er að hann er byggður á heilli grind. Ólafur Friðsteinsson hjá Velti sagði Volvo 760 flagg- skipið í flotanum og tvímælalaust forstjórabíllinn frá Volvo. Bíllinn er „einn með öllu,“ eins og Ólafur sagði. Hann er með lituðu gleri, plus áklæðum, rafdrifnum rúð- um og speglum. f bílnum er ECC miðstöð en hún virkar þanni gað með hitastilli er hægt að ákveða hitastigið í bílnum og með hjálp skynjara sér miðstöðin um að halda hitastiginu stöðugu. Auk þessa er bílinn á sport felgum og með öðrum ótöldum lúxusbúnaði. Bíllinn kostar 1577 þúsund krónur. 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.