Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 34
heim þá eða aldrei. Það þótti líka góð
regla í Kanada að vera fimm ár í
starfi.“
SKÝRRog Háskólinn
Eftir að Jón Þór kom heim varð
hann sérfræðingur og deildarstjóri
við reiknistofu Raunvísindastofnun-
ar Háskólans og síðan forstöðumað-
ur Reiknistofnunar Háskólans
1976-1977 er hann var ráðinn for-
stjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykja-
víkurborgar.
„Það var margt við SKÝRR sem
heillaði mig“, sagði Jón Þór. „í fyrsta
lagi var það stærðin. Þetta var
stærsta fyrirtæki á sínu sviði á land-
inu. Einnig voru að koma nýir tímar í
tæknilegum efnum sem mig langaði
til að innleiða. Runuvinnslan var að
hverfa en sivinnsla að koma. Það var
mjög spennandi að fá að taka þátt í
þeirri tækniþróun eða tæknibyltingu
í fyrirtæki sem var leiðandi í þessari
grein.
Þó ég kæmi hingað hef ég ekki
slitið sambandinu við Háskólann. Ég
hef kennt þar frá því ég kom heim,
fyrst í verkfræðideild og síðan í við-
skiptadeild þar sem ég er dósent í
upplýsingatækni. Starf mitt hjá
SKÝRR gefur mér kost á að flytja
ýmsa hagnýta reynslu inn í Háskól-
ann. Þar með get ég haldið menntun-
Jón Þór meö Einari Jónssyni yfirkerfisfræðingi. Allir starfsmenn SKÝRR eru
merktir.
inni í takt við það sem er að gerast i
viðskiptalífinu. Fyrirtækið hefur
einnig gagn af því að ég sé að kenna.
í kennslunni þarf maður að fylgjast
vel með því sem er nýjast á fræðilega
sviðinu og þá þekkingu getur maður
flutt inn í fyrirtækið. Háskólanem-
endur fylgjast ótrúlega vel með nýj-
ungum og þeir eru fljótir að sjá þá
kennara út sem ekki hafa viðhaldið
þekkingu sinni. I fyrstu ætlaði ég
ekki að vera lengur en fimm ár í
þessu starfi að kanadískum hætti.
Eitt af því sem hefur haldið mér
svona lengi í starfi er að hér get ég
bæði verið í tengslum við viðskipta-
lífið og Háskólann og ég vil af hvor-
ugu missa.“
Þegar Jón Þór kom til SKÝRR
störfuðu þar 70 til 80 manns en í dag
starfa þar 130 manns og veltan í ár
er áætluð um 300 milljónir króna.
SKÝRR eru í eigu ríkisins og Reykja-
víkurborgar og 90% viðskiptanna
eru við fyrirtæki og stofnanir eig-
enda. Hlutverk SKÝRR hefur breyst
mjög mikið á 10 árum. Þegar Jón
Þór kom þangað var það tölvu-
vinnslufyrirtæki en nú er það orðið
alhliða upplýsingafyrirtæki auk
tölvuvinnslunnar. í samræmi við
þessa þróun var stjórnskipulagi
SKÝRR breytt árið 1985. Starfsemi
SKÝRR var skipt í fimm megin
stjórnunarsvið og er hvert svið undir
stjórn framkvæmdastjóra.
Upplýsingaverk-
smiðja
„Það má segja að SKÝRR séu ein
stór upplýsingaverksmiðja“, sagði
Jón Þór. „Sem dæmi um umfangið
get ég nefnt að við prentum út 40
milljónir lína á mánuði og um 180 til
200 vinnustaðir eru tengdir um
símalínur við SKÝRR. Á degi hverj-
um koma um 200 þúsund sendingar,
færslur eða uppflettingar, til okkar
frá viðskiptavinum, sýsluskrifstof-
um, skattstofum eða bifreiðaeftirlit-
inu. Við geymum þessar upplýsingar
og vinnum úr þeim.
Auk þessa sinnum við ýmis konar
ráðgjöf á tölvusviðinu. í því starfi
leggjum við mikla áherslu á að það
eru upplýsingamar sem skipta máli.
Við könnum hvaða upplýsingar
verða til á viðkomandi stað, hvaða
34