Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 31
síðan hefur Wang verið stærsti fram- leiðandi sérhæfðra ritvinnslukerfa í heiminum. Árið 1978 setti Wang síð- an á markaðinn Wang VS 80 tölv- una sem aðrar Wang VS tölvur byggja að nokkru leyti á í dag. Og á þessum grunni byggir tölvudeild Heimilistækja. Á þessu ári eru liðin tíu ár frá því Heimilistæki tóku yfir Wang umboð- ið á íslandi og hefur deildin vaxið og dafnað á þeim árum sem liðin eru. Nú starfa sextán manns við tölvu- deildina og umsvifin eru töluverð. Starfsemi deildarinnar er skipt í þrennt; í söludeild, hugbúnaðardeild og vélbúnaðardeild. Vélbúnaðar- deildin sér um reglulegt viðhald, út- köll vegna bilana og um uppsetningu á nýjum búnaði. Hugbúnaðardeildin fæst einkum við aðlögun á hugbún- aði frá Wang og þar fer mestur tím- inn i þýðingu forrita yfir á íslensku. Söludeildin sér um sölu á Wang tölv- um, C.Itoh prenturum og Compu- graphic setningartölvum fyrir prentsmiðjur. Til þessa hefur tölvudeildin verið eini söluaðili Wang tölva en breyting er að verða þar á. Að sögn Sveins Guðmundssonar deildarstjóra tölvu- deildarinnar hafa Heimilistæki selt tölvur í alla landshluta og er þeim þjónað úr Sætúninu. „En við erum í samstarfi við aðila á ísafirði sem sér um bráðaþjónustu og stendur til að koma á samstarfi við fleiri aðila annars staðar á landinu sem veitt gætu slíka þjónustu," segir Sveinn og bætir því við að tölvudeildin sé að koma sér upp aðstöðu til að prófa og athuga bilanir og villur í hugbúnaði gegnum símalínu. Starfsmaður hug- búnaðardeildarinnar getur þá gert við villur og sett upp ný forrit án þess að mæta á staðinn. Þessi aðferð hefur verið viðhöfð við eldri Wang tölvur en með nýju VS tölvunum verður þjónustan mun öflugri. Söludeildin rekur tölvufræðslu fyrir viðskiptavini sína þar sem kennd er öll almenn notkun hugbún- aðarins. Annars segir Steinar Viktorsson sölustjóri að einkar auð- velt sé að umgangast Wang tölvurn- ar. Wang VS tölvurnar hafa til dæmis allar sama stýrikerfi hvort sem þær eru gerðar fyrir einn not- anda eða upp í 256 notendur. Wang ritvinnslan er einnig sú sama á öllum Wang tölvunum hvort sem um er að ræða Wang PC eða Wang VS. Stein- ar leggur mikla áherslu á að notkun Wang tölva sé það þægileg að not- andinn gleymi ekki hvernig vinna á við tölvuna eftir að hann er einu sinni búinn að læra það. „Við bind- um miklar vonir við VS tölvurnar og hefur gengið vel að selja þær undan- farið.“ Helstu nýjungar hjá Wang er ný útgáfa af PC tölvum sem eru alger- lega IBM AT samhæfðar og munu þær tölvur vera á mjög góðu verði og vel samkeppnisfærar við ódýrari tölvur frá Taiwan og öðrum austur- löndum. En sú nýjung Wang sem einna mest hefur komið á óvart er Flakkarinn svo kallaði, lítil tölva sem einungis er sjö kíló að þyngd. Flakk- arinn er allt í senn, IBM samhæfð PC tölva með innbyggðum 10 MB hörð- um diski, góðum skjá og prentara. Hún þykir kjörin á ferðalögum því rafhlöður sjá til þess að hægt er að vinna við hana í biðsölum flughafna og um borð í flugvélum, svo ekki sé minnst á hótelherbergi og fundar- staði. „Salan á Flakkaranum hefur komið okkur þægilega á óvart, enda einstök tölva, rétt eins og annar bún- aður frá Wang,“ sögðu þeir Sveinn og Steinar að lokum. vókarinn forrit Fjárhagsbókhald Viðskiptamenn — skuldunautar Viðskiptamenn — lánadrottnar Birgðabókhald ________ ____o9 IWur Söluaðilar EinarJ. Skúlason hf., Grensásvegi 10, Reykjavík, s.: 686933 Rafreiknir hf., Ármúla 40, Reykjavík, s.: 681011 Skrifstofuvélar hf„ Hverfisgötu 33, Reykjavík, s.: 20560 Atlantis, Skúlagötu 51, Reykjavík, s.: 6211B3 Heildi - Níels Karlsson, Steinbergi, Akureyri, s:. 96-25527 Rúnir i Skólavörðustíg 42, 101 Reykjavík, símar 91-22243 og 26282. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.