Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 32
amtíðarmaður t Tölvu- umræðan hættulega neikvæð - Frjáls verslun ræðir við Dr. Jón Þór Þórhallsson forstjóra SKÝRR Texti: Kjartan Stefánsson Myndir: Grímur Bjarnason Margir hæfir stjórnend- ur hafa valið sér starfs- vettvang hjá hinu opin- bera þótt stjómendum þar sé ekki alltaf jafn mikill gaumur gefinn og stjóm- endum hjá einkafyrirtækj- um. Einn þeirra er Dr. Jón Þór Þórhallsson forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar. Hann hefur stýrt SKÝRR í 10 ár og þykir skipulagður, ákveðinn og nákvæmur stjómandi. SKÝRR hafa tekið miklum stakkaskipt- um undir hans stjóm og eru nú stærsta og voldug- asta fyrirtæki í upplýs- ingaiðnaði á landinu. Jón Þór er samtíðarmaður Frjálsrar verslunar. „Eiginlega ætlaði ég að verða húsasmiður eins og faðir minn“, sagði Jón Þór þegar talið barst að starfsvalinu. „Fyrsta leikfangið sem ég fékk var hamar. Auðvitað leið ekki á löngu þar til ég missti fyrstu nöglina enda var ég aðeins 3ja ára en það breytti ekki framtíðaráform- unum. Þennan hamar á ég enn. A unglingsárum vann ég við húsasmíð- ar og var að safna mér tímum og vantaði ekkert nema Iðnskólann til að verða fullnuma. Ég fór þó í Menntaskólann í Reykjavík fyrir hvatningu foreldra minna. Þar kom á daginn að ég átti fremur auðvelt með skólalærdóminn og varð það til þess að ég fór í háskóla að loknu stúd- entsprófi 1959. Ég lagði stund á eðl- isfræði og stærðfræði við þýskan háskóla í Karlsruhe, og háskóla í Giessen sem heitir Justus Liebig Universjtát og útskrifaðist þaðan 1965. Doktorsprófi lauk ég 1967. Ég hafði alltaf meiri áhuga fyrir stærðfræði en eðlisfræði vegna þess að ég hafði ekki þolinmæði til að gera tilraunir. Ég valdi mér því verk- efni til doktorsprófs þar sem ég gat reiknað út hvað myndi gerast við ákveðnar tilraunir frekar heldur en standa yfir glösunum. Þessir útreikn- ingar voru viðameiri en svo að hægt væri að gera þá í höndunum. Eina tölvan sem hægt var að komast í og var nógu afkastamikil var í Reikni- stofnun í háskólabænum í Darm- stadt og fékk ég að vinna verkefnið þar. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kynntist tölvu enda var tölvuvinnsla þá ekki orðin almenn og námsbrautir í tölvufræðum ekki komnar í há- skóla.“ Kennsla í Kanada — Hvert lá leiðin svo? „Árið 1967 var ekki sérstaklega gott ár á Islandi svo ég var ekki áfjáður í að snúa heim. Eftir átta ár í Þýskalandi langaði mig þó til að vinda ofan af Þjóðverjanum i mér. Ég var reyndar ekki farinn að tala þýskuna eins og innfæddur en Þjóð- 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.