Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 28
segir afar erfitt að selja eldri bíla, einkum og sér í lagi af árgerð 1980 og eldri bíla. „Við bendum fólki á að sölulaunin séu fimm þúsund krónur og því farsælla að selja þá í gegnum smáauglýsingar sem kosta ríflega 500 krónur. En eftir sem áður verð- um við að skipta okkur af þessum bílum, því 90% bílaviðskipta eru skipti og þá verðum við að geta selt ódýrari bíla. A þessu eru vissuleg undantekningar sem eru klassískir endursölubílar eins og Bens, Volvo, Audi og Saab, svo dæmi séu tekin. Þessir bílar seljast alltaf fljótt þótt þeir séu komnir til ára sinna. Hinsvegar er framboðið það mikið af tiltölulega nýjum bílum og verðið gott miðað við það sem þekktist fyrir tollalækkunina umtöluðu. Nýjir bílar fylla göturnar og okkur virðist sem miklir peningar séu í umferð. Núna getur nánast hver sem er keypt sér bíl á skuldabréfum svo fremi sem áreiðanlegur maður skrifar undir þau. Og ekki er erfitt að losna við þau. Bankarnir kaupa þau ýmist til eignar eða endursölu." Hvað með gömlu bílana? Verða ís- lendingar að fara að henda bílum? „Já og ég tel það af hinu góða. Fyrir örfáum árum þótti það hin mesta synd að þurfa setja bíl á haug- ana. Menn löppuðu því nær enda- laust upp á skrjóðana og keyrðu oft um á hættulegum bílum. Nú er við- horfið annað. Menn virðast vera farnir að gera sér grein fyrir því að bílar ónýtast eins og aðrir hlutir og líftími þeirra er langt frá því að vera óendanlegur. Þess vegna eru menn famir að henda bílum án þess að það kosti tilfinningalegt stríð og keyra fyrir vikið á mun öruggari bílum.“ Enda þótt öryggir bílar séu af hinu góða verður því miður ekki litið fram hjá þeirri staðreynd að slysum fer ört fjölgandi. Samkvæmt upplýsingum frá umferðaátaki tryggingafélagana, Fararheill ’87 lætur nærri að 42 bílar séu keyrðir í klessu á hverju ári. Ber það vott um of marga bíla á götum og vegum landsins? Ekki er Ásgeir Gunnarsson á þeirri skoðum. „Miðað við mann- fjölda er ámóta mikið af bílum í Reykjavík og Lundúnum. Engu að síður verður fólk varla vart við bíl- flaut í Lundúnum, einfaldlega vegna þess að þar ver gatnakerfið bílafjöld- an, öfugt við það sem hér gerist. Við eigum ekki of marga bíla, þvi fer fjarri. Að vísu hefur fjölgunin verið hröð á síðustu mánuðum en gerir hinsvegar lítið annað en mæta þörfinni. í spá frá Þjóðhagsstofnun er gert ráð fyrir mettun á markaðin- um árið 1988 en innflutningi 13 þús- und bíla að jafnaði fram til ársins 1991 til að viðhalda eðlilegri endur- nýjun á markaðnum. Bíllinn er búinn að festa sig í sessi sem neysluvara. íbúar þessa lands vilja ekki fóma honum, hann er kominn til að vera. En hvað slysa- og óhappatölur varð- ar er ekki nema um eitt að ræða, lag- færa gatnakerfið til að það beri eðli- legan fjölda bíla!“ Bónstöðin SHELL Skógarhlíð 16 fyrir ofan slökkvistöðina — Sími 27616 Viö bónum og þrífum bílinn fyrir þig aö utan sem innan Opið mánudaga til laugardaga Tjöruþvegið — sápuþvegið — þurrkað — þónað — ryksugað Djúphreinsun á sætum og teppum 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.