Frjáls verslun - 01.06.1987, Blaðsíða 50
Menntun
IMEDE í Sviss
Valinn annar af tveimur bestu rekstrar-
hagfræðiskólum í Evrópu
Á undanförnum árum hefur
færst í vöxt að íslendingar afli
sér viðskiptamenntunar og/eða
starfsreynslu erlendis og flytji
hana með sér heim. Þessi þróun
er samfara síauknum viðskipt-
um Islendinga erlendis og við-
urkenningu á nauðsyn þess að
Islendingar tileinki sér nýjung-
ar og strauma í viðskiptalífi
erlendis hverju sinni. Mönnum
er einnig ljóst að við þurfum í
auknum mæli að taka þátt í al-
þjóðaviðskiptum ef við ætlum
okkur að standa jafnfætis ná-
grannaþjóðum okkar í almenn-
um lífskjörum og standast vax-
andi samkeppni á erlendum
mörkuðum.
Hingað til hafa flestir þeirra sem farið
hafa erlendis til náms í rekstrarhag-
fræði sótt menntun sína til Norðurland-
anna, Bretlands og Bandaríkjanna.
Athyglin hefur hins vegar í auknum
mæli beinst að þeim skólum sem Inter-
national Management tímaritið flokkaði
í maí s.l. sem tvo bestu rekstrarhag-
fræðiskóla Evrópu, sniðna fyrir nútíma
viðskiptalíf, þ.e. INSEAD í Fontain-
bleau í Frakklandi og IMEDE í Laus-
anne í Sviss.
IMEDE varð fyrst kunnur á íslandi
eftir að farið var að nota verkefni frá
skólanum til kennslu í stefnumótun fyr-
irtækja í viðskiptadeild Háskóla íslands
fyrr á þessum áratug. Arið 1983 kom út
bókin In Search of Excellence, sem er
talin hafa valdið straumhvörfum í hug-
myndum manna um stjórnun fyrir-
tækja, en Tom Peters, annar höfunda
bókarinnar (og síðar bókarinnar
Passion for Excellence), var prófessor
við IMEDE um það leyti sem hann skrif-
aði bókina. í þessari grein verður fjallað
um IMEDE skólann og leitast við að
svara þeim spurningum sem beint hefur
IMEDE-skólinn er í viröulegum húsakynnum í fallegu umhverfi Lausanne viö verið til greinahöfundar að undanförnu
Genfar-vatn. um IMEDE.
50