Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1987, Side 59

Frjáls verslun - 01.06.1987, Side 59
AUGLÝSINGAGILDI TÍMARITA Til þess að gera sér grein fyrir auglýsinga- gildi tímarita, þarf að finna út hver LESNI þeirra er eða LESNIEININGAR. LESNI- EININGAR þessar eru að áliti erlendra sér- fræðinga mælikvarði á það sem fæst fyrir auglýsingu í tímariti eða dagblaði. Þær eru fundnar út með því að margfalda fjölda seldra eintaka með fjölda einstaklinga sem lesa hvert eintak. Sú útkoma er síðan margfölduð með sérstökum greiningarstuðli sem greinir tímarit frá til dæmis dagblaði. Útkoman sem er LESNIEININGAR er þá þannig reiknuð: Lesni- einingar: 67.500 153.000 *) **) ***) Dagblað/ Upplag/ Lestur á Greiningar- Tímarit: seld eintök: hvert eintak: stuðull: Dagblað.......... 40.000 x 1,5 x 1,0 Tímarit .......... 17.000 x 4.5 X 2.0 Þannig mæla erlendir sérfræðingar áhrifamátt auglýsinga í dagblöðum og tímaritum. *) Seld eintök **) Fjöldi einstaklinga sem les hvert selt eintak. í könnunum sem eru vísinda- lega unnar, erlendar og einnig inn- lendar, hefur það komið fram að 4-6 einstaklingar lesa hvert selt eintak af tímariti. í sams konar könnunum hef- ur það komið fram að hvert selt eintak af dagblaði er lesið af 1,3-1,7 ein- staklingum. í íslenskri könnun (Nýtt líf) kom fram að 4,5 lesendur eru að hverju seldu eintaki af því blaði. ís- lensk könnun varðandi dagblöðin hefur ekki verið gerð. Gera má þó ráð fyrir að svipuð niðurstaða yrði hér og víða erlendis. ***) Greiningarstuðull er settur inn til að greina á milli eðlis rita. Þannig er stuðullinn 1 oft notaður fyrir dagblöð og 2 fyrir tímarit. En talið er að tímarit sé miklu „fastar" lesið en til dæmis dagblað. Flett sé fljótlega yfir dagblað en tímarit skoðað vandlega. Sami les- andi grípi tímaritið aftur til lestrar og skoðunar en ekki dagblaðið. ****) Lesnieiningar eru þær einingar sem fengnar eru með margfeldisamtölu seldra eintaka, lesturs á hverju seldu eintaki og greiningarstuðli. Þær ?ru síðan bornar saman við svipaðan út- reikning á lesnieiningum annarra miðla. Frjálst framtak Monnun O f'illsi fiíiruk - 0dð< M

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.