Frjáls verslun - 01.03.1988, Page 10
Fréttir
Bifreiðir í fjármögnunarleigu:
Nýjar reglur hækka skattstofn
um nokkur hundruð þúsund kr.
Hætt er við að ýmsum
hafi brugðið í brún þegar
reglur ríkisskattstjóra um
fyrningu fólksbifreiða, sem
fengnar hafa verið í gegn-
um fjármögnunarleigur,
litu dagsins ljós í mars síð-
astliðnum. Hér er um að
ræða fólksbifreiðar sem
notaðar eru í atvinnu-
rekstri að leigubifreiðum
og bílaleigubílum undan-
skildum. Verða nýju regl-
urnar til þess að skattstofn
fyrirtækis vegna hverrar
bifreiðar, sem keypt er
með fjármögnunarleigu,
getur hækkað um nokkur
hundruð þúsund krónur á
ári miðað við óbreyttar
reglur.
Nýju reglurnar fela það í
sér að leigutaka er ekki
lengur heimilt að færa út-
gjöld vegna fjármögnunar-
leigunnar til gjalda heldur
getur hann reiknað sér
fyrningar og vaxtakostnað.
Kostnaðarverð bifreiðar-
innar verður því bæði stofn
til fyrningar hjá leigusala
og leigutaka. Hjá leigutak-
anum skal fyrningarhlut-
fall vera 10% af því verði
sem fjármögnunarleigufyr-
irtækið greiðir fyrir bif-
reiðina. Sú ákvörðun hefur
Þau mistök urðu í síð-
asta tölublaði Frjálsrar
verslunar að rangt var far-
ið með föðurnafn Oddrúnar
Kristjánsdóttur fram-
kvæmdastjóra afleysinga-
og ráðningarþjónustunnar
Liðsauka hf. I myndatexta
verið tekin fyrir árið 1987
að vextir skuli reiknast 8%
af fyrningargrunni.
Eftirfarandi dæmi sýnir
hvað er um að ræða. Fjár-
mögnunarfyrirtæki kaupir
bifreið á 1 milljón krónur.
Kaupin fara fram á miðju
ári og hefst þá leigutími
sem stendur í 3 ár. Mánað-
og fyrirsögn var hún sögð
Björnsdóttir en í greininni
sjálfri kom fram rétt föður-
nafn. Þessi mistök leiðrétt-
ast hér með og eru hlutað-
eigendur beðnir velvirð-
ingar á þeim.
arlegt leigugjald er 42.250
krónur og breytist það í
samræmi við lánskjara-
vísitölu. Gengið er út frá
því að verðlag hækki að
meðaltali um 20% á ári og
raunvextir séu að meðal-
tali 8% á ári.
í þessu dæmi lækka frá-
dráttarbær gjöld hjá leigu-
taka úr 264.320 krónum í
140.000 krónur á 1. ári.
Munurinn er ekki meiri
vegna þess að aðeins er um
hálft ár á ræða. Ef bifreiðin
hefði verið keypt og leigð
út í byrjun árs hefði munur-
inn strax orðið meiri. Mis-
munurinn segir fyrst til sín
á öðru ári en þá verða
reiknuð fyrning og vextir
206.400 krónur en heild-
arleigugreiðslur verða
614.370 krónur. Munurinn
er því 407.970 krónur sem
þýðir að skattstofn við-
komandi hækkar um þá
upphæð. A þriðja ári lækk-
ar gjaldaliðurinn úr
749.450 krónum í 236.160
og á fjórða ári úr 434.424
krónum í 221.184 krónur.
Af þessu sést að gjaldaliðir
vegna bifreiðarinnar eru
lækkaðir um nokkur
hundruð þúsund á ári.
I skattalegu tilliti hafa í
aðalatriðum gilt þær meg-
inreglur varðandi fjár-
mögnunarleigusamninga
að leigusali (fjármögnun-
arfyrirtæki) hefur eignfært
leigumuninn. Leigusalinn
hefur þannig nýtt skatta-
legar fyrningar vegna
leigumunarins og talið til
tekna heildartekjur á
samningstímabilinu.
Leigutakinn hefur hins
vegar fært leigugjaldið að
fullu til gjalda á samnings-
tímabilinu. Með sérstökum
lögum sem sett voru í byrj-
un þessa árs ber að tak-
marka leigugreiðslurnar
til gjalda sé leigumunurinn
fólksbifreið. Gildir þetta
aftur fyrir sig vegna tekna
og eigna ársins 1987.
Varðandi bifreiðar sem
að hluta til eru notaðar í
atvinnurekstri eða sjálf-
stæðri starfsemi kveða
nýju reglurnar á um það að
ekki megi gjaldfæra leigu-
greiðslur. Við ársuppgjör á
heildarrekstrarkostnaði
slíkra bifreiða ber að
reikna með fastri ársfyrn-
ingu sem er vegna skatt-
framtals 1988, 52.854
krónur. Vaxtakostnaður
heimilast ekki til frádrátt-
ar.
Leiðrétting
10