Frjáls verslun - 01.03.1988, Page 19
deild Seðlabankans hjá Kristni Hall-
grímssyni og það kom vel til greina að
ég sækti um starf þar að náminu loknu
án þess að nokkuð væri ákveðið í
þeim efnum.“
En þekktist þú starfið sem Jónas
Haralz bauð þér í anddyri Westbury
hótelsins?
„Ég þekktist ekki boðið þarna í
anddyrinu. Jónas bað mig urn að
hugsa málið og næstu mánuðina á eft-
ir skrifuðumst við á og það var mjög
gaman að fá bréf frá honum því hann
var fullur áhuga á verkefnunum sem
fram undan voru og á endanum var
það afráðið að ég tæki stöðuna að
mér. Ég var ráðinn til bankans 1.
mars 1976 en hélt þó áfram námi í
skólanum; ég var með námskeið við
skólann og tók að mér dálitla kennslu.
Urn vorið hóf ég svo störf við bankann
og byrjaði á því að heimsækja banka
gegnum þau sambönd sem Jónas Har-
alz og Landsbankinn höfðu erlendis.
Ég dvaldi lengi hjá National West-
minster Bank en einnig hjá Royal
Bank of Scotland, Bank of England og
fleiri bönkum. Ég var nokkrar vikur í
þessum heimsóknum og voru þær
ákaflega gagnlegar. Þessir bankar
voru löngu búnir að taka upp ýmislegt
Allir voru nánast
hokrandi í sínu
hólfi á
markabinum
sem við tókum ekki upp fyrr en ára-
tugi síðar, svo sem kröfukaup og fjár-
mögnunarleigu. Um sumarið kom ég
heim til vinnu. Ég fór reyndar aftur út
um haustið og þá í kynnisferð til
Norðurlandanna. Samtals var ég úti í
níu vikur og heimsótti fjóra banka
sem var einnig ákaflega gagnlegt. Og
um haustið hófst uppbyggingarstarfið
í Landsbankanum. Jón ívarsson og
Guðjón Skúlason unnu með mér að
verkefninu í upphafi og var hópvinnan
mjög skemmtileg. Við gengum í verk-
efnið af hugsjón og eldmóði."
Tryggvi var forstöðumaður
hagfræði- og áætlunardeild-
ar Landsbankans fram til
ársins 1984. I desember það ár fóru
fram nokkrar skipulagsbreytingar
innan Landsbankans. Þær leiddu af
sér stofnun fjármálasviðs sem
Tryggvi veitti síðan forstöðu þar til
hann lét af störfum við Landsbankann
3. mars síðastliðinn. Tryggvi segir
árin 12 í Landsbankanum góðan tíma
— en hverjar voru helstu breyting-
arnar á íslenska bankakerfinu á þess-
um tíma? „Þær voru mjög miklar og
Bankastjórar Verzlunarbankans, Kristján Oddsson, Tryggvi Pálsson og Höskuldur Ólafsson.
19