Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 30

Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 30
Sjávarútvegur íslandi boðin aðild að EB Um það leyti sem við gengum frá samn- ingum við EFTA var íslandi og öðrum aðildarlöndum samtakanna, boðin aðild að Evrópubandalaginu. Hófust viðræður í lok árs 1970 undir forystu Gylfa Þ. Gíslasonar þáverandi viðskiptaráðherra. Strax var því slegið föstu af íslands hálfu að bein aðild að EB kæmi ekki til greina. Olli þar mestu um ákvæði Rómar- samningsins um frjálst flæði vinnuafls og fjármagns á milli landanna auk þess sem íslendingar voru ekki reiðubúnir að veita útlendingum aðild að okkar fiskiauðlind- um, eins og áður var að vikið. Hins vegar lagði ríkisstjórnin áherslu á að ná sam- komulagi sem varðveitti hefðbundin tengsl milli íslands og Evrópu, að fríversl- unin næði til allra sjávarafurða og síðast en ekki síst: að sömu skilmálar yrðu settir og voru í samningi íslands og EFTA. Viðræðumar stóðu í hálft annað ár og var samningur við EB undirritaður 22. júlí 1972. Jafnframt var undirrituð sérstök bókun vegna fiskveiðideilunnar, sem þá stóð yfir við Breta og V-Þjóðverja. Kom ákvæði Bókunar 6 til framkvæmda 1. júlí 1976, eftir að samningar í landhelgisdeil- unum höfðu náðst. Þessi Bókun 6 þýddi einhliða tollfríðindi á innflutningi einstakra sjávarafurða til ríkja Evrópubandalagsins. Má þar nefna freðfiskflök, lýsi, niðursoðin hrogn, fiski- mjöl, skelfisk og kavíar. Eins og áður sagði höfðum við sótt um slík fríðindi á öllum sjávarafurðum, en ekki tókst að ná því öllu fram. Hins vegar var samið um verulega lækkun tolla á fjórum árum á ísvörðum karfa, þorski, ýsu og ufsa auk niðursoðinnar síldar. Þessi samningur við Evrópubandalagið hafði gífurleg áhrif á útflutning okkar til Evrópu enda um 70% heildarútflutnings landsmanna til þessara svæða án tolla eða með afar litlum hindrunum. Landamæri þurrkuð út Síðan þessir samningar voru gerðir fyrir hálfum öðrum áratug síðan er mikið vatn runnið til ‘ jávar. Skömmu eftir að við gengum frá samningum við EB gengu Bretland, Danmörk og írland í Evrópu- bandalagið. Norsk stjórnvöld ætluðu að leiða Noreg sömu leið en því var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1973. Grikk- land fékk svo inngöngu árið 1981 og loks Spánn og Portúgal fimm árum síðar. Þar með eru aðildarríkin orðin 12 talsins og flölgað um helming frá því við gerðum okk- ar samninga. Ekki einasta er Evrópubandalagið stærra heldur hafa á síðustu árum bæst við ríki sem eru afar mikilvæg viðskipta- ríki íslendinga í verslun með saltfisk. Má til dæmis nefna að Portúgal hefur verið 3. mikilvægasta viðskiptaland okkar, næst á eftir Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. Saltfiskur hefur verið um 15% af útflutn- ingi landsmanna og nú fara um 90% hans til EB landa. Tollur á saltfisk hjá banadalag- inu hefur verið um 13% en mun lægri á tiltekinn kvóta sem ákveðinn er frá ári til árs. Útflutningur íslands á þessari mikil- vægu afurð hefur rúmast innan þessa kvóta en nú er ljóst að hann er allt of lítill sem hefur í för með sér minna verð fyrir okkar útflutning. Spurning er hvernig við viljum mæta þeim nýju aðstæðum. Flestir eru sammála um að ef við ís- lendingar viljum ná hagstæðari samning- um við EB, sérstaklega varðandi saltfísk- inn af fyrrgreinum ástæðum, verðum við að veita Evrópubandalaginu fiskveiðirétt- indi innan íslenskrar fiskveiðilandhelgi í staðinn. Ekki virðast hins vegar mörg teikn á lofti sem benda til að slfkt verði heimilað enda verið að draga úr veiðiheim- ildum íslenskra skipa og því vart á bætandi að hleypa útlendum skipum inn fyrir mörk- in. Til að forvitnast um viðhorf manna í þessum efnum snerum við okkur til tveggja sérfræðinga á þessu sviði og innt- um þá álits á því hvað íslendingum bæri að gera gagnvart hinu endumýjaða og þrótt- mikla Evrópubandalagi. Friðrik Pálsson forstjóri SH er þessum hnútum gjörkunn- ugur, bæði í núverandi starfi sínu en ekki síður frá þeim tíma sem hann var fram- kvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda. Sveinn Björnsson starf- ar í viðskiptadeild utanríkisráðuneytisins og var hann einkum spurður út í þá sálma sem lúta að tollaívilnunum vegna samn- inga okkar við EFTA og EB og hvaða afleiðingar innganga Portúgals og Spánar hafði fyrir okkar viðskipti á Evrópumörk- uðum. Gámar Útvegum nýja og notaða frysti- og kæligáma (containers) 20 og 40 feta. Leigjum einnig út 20 feta kæli- og frystigáma. Bakkavör hf. Mýrargötu 2,101 Reykjavík, sími (91)-25775 30

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.