Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 32

Frjáls verslun - 01.03.1988, Síða 32
Sjávarútvegur réttindum. Evrópubandalagið er risi í menningarlegu og viðskiptalegu tilliti og það hlýtur að vera styrkur fyrir smáþjóð að hafa góð samskipti við hann. EB hleypti Grikklandi, Spáni og Portúgal inn fyrir sína virkismúra, ekki endilega vegna við- skiptalegra sjónarmiða heldur byggðist það á þeim pólitíska vilja að hafa þessar þjóðir í hinu miðevrópska þjóðarsamfé- lagi.“ Eins og áður hefur komið fram er samn- ingurinn við EB mjög hagstæður og því hlýtur sú spuming að vakna hvort ekki þurfi að fóma miklu af okkar hálfu til að ná enn betri samningi. Hvað segir forstjóri SH um það? „Einmitt, því megum við ekki gleyma að samningurinn er okkur íslendingum mjög hagstæður og í raun náðum við fram flestu af því sem fólst í upphaflegum hug- myndum þegar gengið var til viðræðna. Jú, vitaskuld þurfum við að horfast í augu við þá staðreynd að einhvers konar tilslak- anir varðandi veiðar erlendra skipa í land- helginni er það sem við yitum að farið verður fram á ef við viljum ná hagstæðari samningum. Allt frá dögum landhelgis- stríða hefur ekki mátt minnast á slíka hluti enda viðkvæmt pólitískt mál eftir alla þá baráttu sem við þurftum að heyja til að fá yfirráð yfir fiskimiðunum við landið. * .......... 111 .................. Netagerð Vestflarða hf. Sími 94-3413, ísafirði, Utibú Hvammstanga sími 95-1710 Afgreiðum með eins stuttum fyrirvara og mögulegt er RÆKJUVÖRPUR og FISKITROLL. Höfum ávallt fyrirliggjandi: LÁSA, KEÐJUR og VÍRA og annað til togveiða. - ---------------------------------- En þá má spyrja á móti: Ráðum við al- gerlega yfir okkar fiskimiðum? Það er op- inbert leyndarmál að æ stærri hluti ís- lenskra skipa landa hluta eða öllum afla sínum erlendis. Auðvitað er nokkur eðlis- munur á þessu fyrirkomulagi og því ef útlendingar væru með eigin skip að veið- um hér á heimaslóð. Munurinn er sá að íslenskir sjómenn draga aflann úr sjó en vinnslan fer fram erlendis, veitir útlendu verkafólki atvinnu og hagnaðurinn af veið- unum lendir að verulegu leyti í hlut útlend- inga. Sama má segja um hinn vaxandi út- flutning á ferskum fiski til EB landanna. Við tryggjum verkafólki þar atvinnu með þessum hætti og veikjum stöðu okkar hér heima fyrir að sama skapi.“ Eins og menn muna skapaðist mikil andstaða gegn inngöngu Noregs í EB á sínum tíma og var sá ráðahagur felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hafa viðhorf eitt- hvað breyst í Noregi frá þeim tíma og hvaða afleiðingar hefði innganga Noregs í EB í för með sér fyrir íslendinga? „Viðhorf í Noregi gagnvart Evrópu- bandalaginu hafa gjörbreyst. Talsmenn sjávarútvegsins eru ekki lengur andsnúnir aðild og Norðmenn hafa gert góða samn- inga við EB gegn nokkrum ívilnunum varðandi veiðar evrópskra skipa í norskri fiskveiðilögsögu. Þrýstingurinn innan- lands fer vaxandi og kemur m.a. fram í því að norsk fyrirtæki reyna að kaupa sig inn í dönsk til að eiga innhlaup í EB þá leiðina. Sama hafa sænsk fyrirtæki gert. Innganga Noregs í EB hefði alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir okkur. ís- lendingar myndu missa sterkan banda- mann í samningum við bandalagið um sjáv- arútvegsmál auk þess sem framboð sjáv- arafurða innan EB ykist verulega með aðild Noregs.“ „Allir þeir sem hafa mikil samskipti við Evrópuþjóðimar á viðskiptasviðinu gera sér grein fyrir því að þróunin í átt að sam- einaðri Evrópu er afar hröð um þessar mundir. Risinn í Brússel byltir sér ekki mikið en það er langt frá þvf að hann sofi. Evrópa er annar okkar megin útflutnings- markaða og við höfum einfaldlega ekki leyfi til að láta tækifæri til að ná þar betri stöðu fara framhjá okkur. Við höfum sterka samningsstöðu því við höfum byggt upp fiskihafnimar í Bremerhaven og á Humbersvæðinu fyrir Evrópubandalagið og í annan stað er staða okkar á saltfisk- mörkuðum S-Evrópu afar sterk. Síðast en ekki síst hef ég þá bjargföstu trú að stór hluti þjóða Evrópu sækist eftir því að hafa ísland innan vébanda þess vaxandi banda- lags sem EB óneitanlega er,“ sagði Friðrik Pálsson að lokum. 32

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.