Frjáls verslun - 01.03.1988, Qupperneq 33
Tolla-
ívilnanir
þrír millj-
arðar
á ári
Með nýskipan mála eftir síðustu kosn-
ingar hefur umsjón utanríkisviðskipta
þjóðarinnar færst í sérstaka viðskiptadeild
utanríkisráðuneytisins. Við gengum á
fund Sveins Bjömssonar sem þar starfar
og hann var fyrst spurður um ávinninga þá
sem íslenskur sjávarútvegur hefði haft af
samningum við Evrópubandalagið.
„Fríverslunarsamningurinn við EB hef-
ur haft mikla þýðingu fyrir íslenskan sjáv-
arútveg. Án þeirra miklu fríðinda, sem
fengust með samningnum fyrir íslenskar
sjávarafurðir, væri samkeppnisstaða hans
óviðunandi gagnvart keppinautum okkar á
markaði Evrópubandalagsins.
Samningurinn nær til okkar mikilvæg-
ustu sjávarafurða og eru þær tilgreindar í
bókun nr. 6 við samninginn. Má þar nefna
fryst fiskflök, rækju, lagmeti, lýsi, fiski-
mjöl, hrogn, hvalkjöt og nýjan, kældan og
heilfrystan þorsk, ýsu, ufsa og karfa. Ým-
ist féllu tollar alveg niður eða lækkuðu
vemlega. Þannig fóru fryst fiskflök úr 15%
tolli í 0%, fryst rækja úr 20% í 0%, lýsi úr
11% í 0%, hrogn úr 10% í 0% og fiskimjöl
úr 2% í 0%. Hins vegar lækkuðu tollar á
lagmeti almennt úr 20% í 10% en þó lækk-
aði tollur á grásleppukavíar úr 30% í 0%.
Tollar af nýjum, köldum og heilfrystum
þorski, ýsu og ufsa úr 15% í 3.7%. Tollar
af nýjum, köldum og heilfrystum karfa
lækkuðu hins vegar úr 8% í 2%.“
Nú gefa ef til vill prósentutölur af þessu
tagi ekki nægjanlega skýra mynd af þýð-
ingu samningsins við EB. Hvað hafa tolla-
ívilnanimar gefið þjóðarbúinu mikið í krón-
um talið?
ALLIR í EINNI BÓK
ÞÚ FLETTIR
OG FINNUR ÞAÐ
ÍSLENSK FYRIRTÆKI
SÍMI 82300
Sveinn Bjömsson.
„Það er erfitt að meta nákvæmlega
tollaívilnanir samkvæmt samningum við
EB í krónum. En miðað við samsetningu
útflutnings til Evrópubandalagsins árið
1987 vom tollaívilnanir fyrir íslenskar
sjávarafurðir lauslega áætlaðar um 3 milj-
arðar króna.“
Stækkun Evrópubandalagsins árið 1986
hafði veruleg áhrif í för með sér fyrir ís-
lendinga að sumra mati þar sem „saltfisk-
þjóðimar" Spánn og Portúgal gengu í sam-
tökin. En hvað segir Sveinn Bjömsson um
þá hluti?
„í tengslum við aðild Spánar og Port-
úgals að EB hafa komið upp ýmsir erfið-
leikar vegna ákvörðunar EB um að leggja
að nýju toll á saltfisk, saltfiskflök og skreið
og tilrauna EB að tengja saman viðskipta-
fríðindi og fiskveiðiréttindi. Eins og kunn-
ugt er ná ákvæði fríverslunarsamnings Is-
lands og Evrópubandalagsins ekki til salt-
fisks, en bandalagið hefur veitt
innflutningskvóta á lækkuðum tolli til
skamms tíma í senn, en ekki viljað leysa
þessi mál til lengri tfrna nema að fá tilslak-
anir varðandi fiskveiðiréttindi.
Árið 1987 var svipað fyrirkomulag á
tollum á saltfiski og fyrri ár, þ.e. 25.000
tonna tollfrjáls kvóti bundinn við GATT,
6.000 tonna tollfrjáls kvóti samkvæmt
samningum EB og Kanada sem jafnframt
nýtist öðmm ríkjum og 40.000 tonna kvóti
með 5% tolli. Umfram þessa kvóta er toll-
ur á saltfiski 13%. Þá er ennfremur 4000
tonna tollfrjáls kvóti fyrir saltfiskflök sam-
kvæmt samningum EB og Kanada.
Á árinu 1988 hefur Evrópubandalagið
ákveðið 52.500 tonna kvóta með 5% tolli
til viðbótar GATT kvótanum. Þá hefur EB
einnig ákveðið 4000 tonna kvóta fyrir sölt-
uð ufsaflök með 5% tolli og 1000 tonna
kvóta fyrir skreið með 10% tolli."
Gufukatlar
frá Englandi í miklu úrvali, á mjög
hagstæðu verði.
Einnig tæringarvarnarefni
fyrir kalta og díselvélar.
KEMHYDRO-salan
Pósthólf 4080,124 Rvík.
Slmi91-12521
33