Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Side 35

Frjáls verslun - 01.03.1988, Side 35
IBM Innskot — í öðru tölublaði Innskots eru áhugaverðar kynningar á notendum mismunandi hugbúnaðar. Erlingur Friðriksson, Eldaskálanum, skýrir lesendum Inn- skots frá tölvuvæðingunni hjá sér, en hann notar AutoCAD teikniforritið við hönnun innréttinga. S/38 klúbburinn greinir frá tilgangi og starfsemi hópsins, en hann átti fimm ára afmæli í febrúar sl. Einnig viljum við vekja athygli á nýja afgreiðslukerfinu, FBSS. Iðnaðarbankinn er einn þeirra banka sem er að taka það í notkun til að auðvelda þjónustu bankans. Bláa fyrirspurnarkortið vinsæla fylgir með að venju og þar geta lesendur óskað eftir frekari upplýsingum um innihald Innskotsins og sent til IBM ófrímerkt. S/38 Notendaklúbburinn: SKÝRR. Hugbúnaðurinn byggist fyrst og fremst upp á nýju alhliða trygginga- og tjónakerfi, verðbréfa- og víxlakerfi, bók- haldskerfi og sérstöku kerfi fyrir bílaum- W boðin. FIMM ARA AFMÆLI Þegar IBM kynnti S/38 tölvuna seint á síðasta áratug voru um leið kynntar ýmsar grundvallarnýjungar í gerð henn- ar og má segja að hún hafi verið langt á undan sinni samtíð. Uppbygging vélar- innar er mjög frábrugðin öðrum vélateg- undum. Tölvan er gerð fyrir beinlínuum- hverfi. Mikið hefur verið lagt upp úr auk- inni framleiðni forrita, einfaldleika í stjórnun tölvunnar sem og uppbygg- ingu innbyggðs gagnagrunns. Allar nýj- ungar í stýrikerfi, jaðartækjabúnaði o.fi. er auðvelt að taka í notkun og engra i brejd:inga er þörf á þeim hugbúnaðar- Æ kerfum sem eru til staðar hverju sinni. * Rekstrartækni hf. var fyrsta fyrirtækið hér á landi sem útvegaði sér S/38 tölvu. Það var haustið 1981 og fljótlega á eftir fylgdu Sjóvá hf., Eimskip hf. og Bruna- bótafélag íslands. Tölvan sem Rekstrar- tækni átti upphaflega er nú í eigu Eim- skipafélagsins, staðsett í Rotterdam og tengd við móðurtölvuna hér heima. Allt síðan fyrstu vélarnar komu hafa þær stækkað með aukinni tölvuvæðingu og umsvifum fyrirtækjanna. I ársbyrjun 1983 var stofnaður not- endaklúbburinn S/38, en hann var stofn- aður af frumkvæði Bergþóru K. Ketils- dóttur, kerfisfræðings hjá IBM og þáver- andi S/38 notendum. S/38 klúbburinn er starfræktur á þann hátt, að tveir-þrír aðil- ar frá tölvudeildum hvers fyrirtækis og IBM-starfsfólk hittast formlega þrisvar- fjórum sinnum á ári og ræða sameigin- leg mál. Á þessum samkomum eru nýj- ungar kynntar, rædd vandamál ef einhver hafa komið upp og skipst almennt á skoðunum og upplýsingum um tölvu- mál. Þar fá fyrirtækin líka möguleika á að fylgja eftir sameiginlegum hagsmunum. S/38 klúbbfyrirtækin skiptast á að reyna og prófa nýjungar og gefa síðan hinum aðilunum upplýsingar. Á þann hátt nýta þau sér reynslu hvers annars og spara um leið dýrmætan tíma. Tölvudeildir S/38 fyrirtækjanna hafa oft samband sín á milli, skiptast hiklaust á tæknilegum upplýsingum og aðstoða hverja aðra ef þörf krefur. Haldið var upp á fimm ára afmæli klúbbsins í febrúar s.l. og voru þar mættir um 20 manns, eða nær allir starfsmenn S/38 tölvudeilda. NOTENDUR HAFA ORÐIÐ Sjóvá Model 600, 8 MB minni 110 jaðartæki, þ.a. 80 skjáir og 30 prentarar. Tæki í fjarvinnslu eru samtals 25, hjá útibúum, 6 bílaumboðum og Eimskip Model 600,12 MB minni 166 jaðartæki, þ.a. 94 skjáir, 41 IBM PC/FS með hermispjöldum og 30 prent- arar og 7 önnur tæki. 31 tæki eru í fjar- vinnslu, bæði vestan hafs og austan sem og innanlands. Hugbúnaður Eimskips er um 1500 forrit í tveimur meginkerfum, þ.e. farmskrárkerfi og fjárhagskerfi sem ná til flestra þátta í starfsemi fyrirtækisins. Brunabót Model 200, 6 MB minni 102 jaðartæki, þ.a. 75 skjáir, 20 prent- arar og 7 önnur tæki. 31 tæki eru í fjar- vinnslu við fimm staði á landinu, útibú og SKÝRR. Helstu hugbúnaðarkerfi eru fyrir tryggingarnar og tjónauppgjör, bókhald, innheimtu, sölu o.fl. Einnig er tölvudeild Brunabótar langt komin með hönnun og forritun á nýju alhliða tryggingakerfi. S/38 klúbbfélagar t.f.v.: Sturla Þengilsson, forstöðumaður tölvudeildar Sjóvá hf., Þórir Kr. Þórisson, tæknimaður hjá IBM, Bergþóra K. Ketilsdóttir, kerfisfræðingur hjá IBM, Guðjón R. Jóhannesson, sölumaður IBM, Guðmundur Örn Ragnarsson, for- stöðumaður tölvudeildar Brunabótar og Gylfi Hauksson, forstöðumaður tölvudeildar Eimskips hf.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.