Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 36
Tölvuvædd hönnun ryður
sér til rúms hérlendis
Hér á landi fer það í vöxt að fyrirtæki
og einstaklingar sem mikið þurfa að
vinna við hönnun og teikningar noti
CAD (Computer aided design) hug-
búnað, sem á íslensku er oft nefndur
„tölvustudd hönnun“. Tveir söluaðil-
ar IBM á íslandi hafa lagt kapp á að
veita þjónustu við CAD notendur, en
það eru fyrirtækin Magnus s.f. og Ör-
tölvutækni hf.
(Jm mörg CAD forrit er að velja, en
hér á landi hefur AutoCAD náð hvað
mestri útbreiðslu fyrir einmennings-
tölvur, en það er teikniverkfæri fyrir
alia þá sem vilja á tiltölulega auðveld-
an hátt gera hugmyndir eða óskir
manna um einhverja hönnun, sýni-
legar í þrívíddarmynd á tölvuskjá eða
prenta þær út. Hér er um að ræða
mynd sem forritið gefur kost á að
stækka eða minnka bæði hlutföll og
víddir í næstum óendanlegum út-
færslum. Til að nýta sér AutoCAD,
þarf frekar stóra einmenningstölvu,
teiknitæki, - annaðhvort mús eða
hnitaborð, grafískan skjá og prentara.
Arnlaugur Quðmundsson hjá Ör-
tölvutækni sagði í samtali við Innskot
að AutoCAD væri mjög opið forrit í
þeim skilningi að auðvelt sé að laga
það að einstökum notendum, t.d.
með stöðluðum táknmyndum og/
eða til að auðvelda útreikning tilboða.
Högni Jónsson hjá Magnus sagði
að AutoCad hentaði sérlega vel fyrir
verkfræðinga, arkitekta, innanhús-
hönnuði, auglýsingastofur og raunar
alla þá sem þurfa mikið að vinna með
teikningar í daglegum störfum.
Arnlaugur og Högni eru sammála
um að AutoCAD sé nokkuð dýrt forrit,
en á móti komi að það spari mikla
vinnu og sé því fljótt að borga sig.
TÖLVUVÆÐINGIN
INN í ELDHÚS
Erlingur Friðriksson framkvæmda-
stjóri Eldaskálans, hefur hannað eldhús
og aðrar innréttingar í 12 ár. Nú nota
hann og starfsmenn hans nýjustu tækni
við þessa hönnun. Hann er búinn að
tölvuvæða starfsemina, teiknar og
hannar allar innréttingar með PS/2 tölv-
unni og CAD teikniforritinu sem hann
tók í notkun í nóvember á síðasta ári.
Það er reyndar rúmt ár síðan Erlingur
pantaði kerfið, en síðan ákvað hann að
bíða þar til IBM PS/2 tölvan væri komin
á markaðinn. Kerfið kemur frá Invita í
Danmörku, en Eldaskálinn er umboðs-
aðili þess fyrirtækis hér á landi.
Erlingur sagði í viðtali við Innskot að
hann hafi verið búinn að hugsa um tölvu-
væðinguna lengi og gert sér vel grein
fyrir að þetta væri það sem koma skyldi.
Reyndar hefði hann fundið fyrir smá-
vægilegri hræðslu í sambandi við þessa
nýjung þar sem hann hefði lítið sem ekk-
ert unnið við tölvur áður og í byrjun hefði
hann verið mest hræddur við að eyði-
leggja allt sem væri í tölvunni. Núna
væru allir byrjunarörðugleikar að baki og
Erlingur þegar farinn að skipuleggja
áframhaldandi þróun í sambandi við
þessa þjónustu sína.
Bylting frá gömlu
planteikningunum
Tölvukerfið hjá Eldaskálanum býður
upp á grunn- og útlitsteikningar af t.d.
eldhúsi, teikningum af hverjum vegg fyrir
sig og þrívíddarteikningum frá hvaða
sjónarhomi sem er. Síðan er hægt að fá
þessar teikningar litprentaðar úr teiknar-
anum (plotter). Erlingur segir að þetta sé
algjör bylting frá gömlu planteikningun-
um. „Nú geta viðskiptavinir t.d. fengið
þrívíddarteikningu í lit af innréttingu á
nokkrum mínútum og séð hvernig vænt-
4
LAUSNIR
anleg innrétting lítur út. Það sem tölvan
gerir einnig er að hún reiknar út allar
stærðir og verð jafnóðum og allir út-
reikningar verða því mun nákvæmari en
áður.“ Erlingur segir að tölvan stytti ekki
þjónustutímann sem fer í hvern við-
skiptavin, heldur eru helstu kostirnir allir
þeir möguleikar sem kerfið býður upp
á. „Nú getum við gert svo miklu meira
fyrir hvern og einn. Við getum stillt upp
ýmsum kostum á fyrirhuguðum innrétt-
ingum og viðskiptavinurinn sér jafnóð-
um hvernig þeir líta út á tölvuskerminum
og hvað þeir muni kosta. Eldaskálinn
leggur sérstaka áherslu á sérsmíði og
með þessari tölvutækni eigum við mikið
auðveldara með að sýna hvernig hún
fellur að óskum viðskiptavinanna. Eins
Erlingur Friðriksson
er það, ef vafaatriði koma upp eða við
erum ekki 100% vissir um hugmyndir
viðskiptavina okkar, er ekkert auðveldara
en að nota tölvuna til að finna réttar úr-
lausnir."
Áframhaldandi þróun
Fljótlega tekur Eldaskálinn næsta
skref í tölvuþróuninni þegar hann verður
í beinlínusambandi við móðurtölvu Invita
í Danmörku gegnum mótald, en hingað
til hefur telefax verið notað við allar pant-