Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 37
NÝJUNGAR
Nýr söluaðili í Hafnarfirði
Fyrir skömmu bættist hugbúnaðarfyrirtækið Hjarni hf., Brekkugötu 2, Hafnarfirði við í
hóp viðurkenndra söluaðila IBM á íslandi. Hjarni hf. sérhæfir sig í hugbúnaðargerð og
tölvuvinnslu fyrir heilbrigðisþjónustuna. Skráningarforrit Hjarna hf. Medicus er ein-
mitt sérstaklega hannað fyrir lækna, heilsugæslustöðvar og minni sjúkrastofnanir.
Starfsmenn eru fimm talsins, framkvæmdastjóri er Júlíus K. Björnsson og stjórnar-
formaður Þorkell Sigurlaugsson. Myndin að ofan var tekin er Hjarni hf. var boðinn
velkominn af IBM sem söluaðili. Á henni eru talið frá vinstri: Friðrik Friðriksson,
framkvæmdastjóri á markaðssviði IBM, Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM og frá
Hjarna hf., Bárður Sigurgeirsson og Jóhannes Pálmi Hinriksson.
Innlend hugbúnaðar-
þróun fyrir OS/2
Á markað
í haust
Eins og vænta mátti kepptust íslenskir
hugbúnaðaraðilar við að fá fyrstu eintök-
in af nýja stýrikerfinu OS/2 fyrir PS/2 tölv-
ur, er salan á því byrjaði skömmu eftir
áramót. Þróun innlends hugbúnaðar
fýrir OS/2 er því í fullum gangi, þrátt fyrir
að megnið af DOS hugbúnaði gangi
sjálfkrafa þar sem OS/2 hefur innbyggð-
an DOS ham. Þróunarstarfið felst hins
vegar fyrst og fremst í því að laga hug-
búnaðinn þannig að hann komi til með
að nýta sem best alla yfirburði OS/2 stýri-
kerfisins. Samhliða er unnið að nýjum
hugbúnaði. Búast má við að fyrstu OS/2
verkefnin komi á markaðinn seinni hluta
sumars, eða á svipuðum tíma og ætla
má að erlendir hugbúnaðaraðilar s.s.
Microsoft, Lotus og Borland markaðs-
setja fyrstu OS/2 útgáfu af sínum hug-
búnaði.
IBM á Islandi vill sérstaklega bjóða
áhugasömum fyrirtækjum til kynningar
á OS/2. Allar nánari upplýsingar veitir
Gunnar Linnet hjá ÍBM.
anir og staðfestingar. Með beinlínu-
sambandi kemur Invita til með að nota
næturnar til að fara yfir pantanir frá Elda-
skálanum, staðfesta afgreiðslutíma, gerð
og útlit innréttinga. Daginn eftir liggja
allar upplýsingar fyrir hjá Eldaskálanum.
Það má til gamans geta þess, að Elda-
skálinn var fyrsta fyrirtæki hérlendis sem
tók í notkun telefax, tæki sem með bein-
línusambandinu verður óþarft hjá þeim.
Mæsta vetur er svo áformað hjá Erlingi
í Eldaskálanum að taka OS/2 stýrikerfið
(sjá grein annars staðar í blaðinu) í notk-
un. Þar með verður kerfið bæði hraðvirk-
ara og fær aukið minnisrými.
„Ég veit ósköp lítið um tækni og þess-
háttar, en þegar ég heyri um eitthvað
tæknilegs eðlis sem ég veit að hentar
mínu fyrirtæki og gerir afgreiðslu fljótari
og öruggari þá er það nokkuð sem ég
reyni að útvega okkur. Það eiga við-
skiptavinirnir inni hjá okkur," segir Erl-
ingur að lokum.