Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 50

Frjáls verslun - 01.03.1988, Blaðsíða 50
Bankar tæknivæðingu og gildi hennar í framtíðar- þróun markaðarins. Það var m.a. bent á að tæknin gerði bönkum ekki aðeins kleift að draga úr kostnaði og berjast í sam- keppninni heldur skapaði hún möguleika á að bjóða vörunýjungar sem og betri þjón- ustu við viðskiptavini. Því væri afar mikil- vægt að bankar reyndu að brúa hið svo- kallaða markaðs - tækni bil, þ.e. að mark- aðsfólk bankanna verður að læra mun meira um tæknina og möguleika hennar í vöruþróun og þjónustu en tæknimenn verða aftur á móti að skilja áhuga mark- aðsfólksins á tæknihliðinni og hvaða hlut- verki tæknivæðingin gegnir í framtíð fyrir- tækisins. Alan Heuer frá Marine Midland Bank taldi að tæknin ætti eftir að breyta eðli samkeppninnar. Spáði hann m.a. auknum fjölda hraðbanka, sem mætt hafa þörf þeirra sem ekki hræðast tækninýjungar og vilja sinna bankaviðskiptum fljótt á hvaða tíma sólarhrings sem er. Leiddu þessar vangaveltur hugann að dræmri notkun hraðbanka á Islandi. Heuter taldi hins vegar „Home Bank- ing“ vera óskrifað blað og framtíð þeirrar um viðskiptavina til starfsfólks bankanna í eftirfarandi flokka: — 8% töldu starfsfólkið áhugasamt og hæfileikaríkt. — 18% töldu starfsfólkið vingjamlegt en minna hæfileikaríkt. — 30% töldu starfsfólkið þægilegt en ekki áhugasamt og stundum óöruggt. — 15% töldu starfsfólkið hrokafullt. — 6% töldu starfsfólkið ruddalegt, óvingjarnlegt og hæfileikasnautt. Þessar niðurstöður sýna svart á hvítu hvaða máli það skiptir að byggja upp gott starfslið. Bankaviðskipti eru eftir allt byggð á samskiptum einstaklinga og við- skiptavinurinn vill áfram fá samúð, sam- skiptaandrúmsloft í bankanum, persónu- lega þjónustu, svörun á staðnum, sam- ræður og hlustun, ráðgjöf og einhvern blóraböggul fyrir sínar eigin röngu ákvarð- anir. Vegna aukinnar samkeppni verða bank- ar að leggja áherslu á styrk og hæfni starfsmanna sinna og þjónusta viðskipta- vininn betur en keppinautarnir. Þetta þýð- ir aukna áherslu á markaðsstarfsemi allra starfsmanna og undirstrikar mikilvægi ráðningar, þjálfunar og hvatningar. Peter Leslie frá Barcleys Bank lagði áherslu á gæði þjónustunnar sem afar mik- ilvægan þátt og þá um leið hæfni starfs- fólks í sölu og markaðsmálum. Benti hann á að þó auðvelt væri oft á tíðum að líkja eftir nýjungum væri mun erfiðara að líkja eftir gæðum þeirrar þjónustu sem veitt er. Því verði áherslan í framtíðinni lögð á að aðgreina sig frá keppinautunum með því að bjóða afburðaþjónustu til viðskipta- vina. Hvers konar ráðgjöf á eftir að setja mark sitt á þjónustu bankanna. Markaðshlutun Herbert Boehm frá First Austrian Bank flutti eitt af athyglisverðari erindum ráð- stefnunnar og gerði markaðshlutun að umfjöllunarefni. Boehm taldi að í framtíðinni yrði mark- aðshlutun líklega árangursríkasta tækið í markaðsstarfseminni. En til þess að beita markaðshlutun og greina þannig markað- þjónustu óvissa einkum með tilliti til kostnaðarþátta þ.e. að hár kostnaður væri haft á almenna útbreiðslu þjónustunnar. Að lokum bætti Heuter því við að sýn manna um algjöra rafeindavæðingu banka- viðskipta væri hvorki raunsæ né fýsileg. Rowland Flemming frá Canadian Com- mercial and Retail Banking áleit að tæknin myndi hjálpa til að bæta þjónustuna við viðskiptavini um leið og framleiðni ykist innan bankanna. Þáttur starfsfólksins Þótt ráðstefnugestir væru e.t.v. ekki sammála um gildi þess að hafa forystu í vöruþróun eða um áhrif tækninnar á fram- tíðarskipulag þá voru allir sammála um mikilvægi þess að hafa gott og hæfileika- ríkt starfsfólk. Herbert Bohem frá First Austrian Bank sagði að þetta væru ekki ný sannindi en þó væru ótrúlega mörg fyrir- tæki, ekki síst bankar, sem ekkert gerðu til þess að styrkja þennan mikilvæga sam- keppnisþátt sinn. Það kom fram hjá Boehm að samkvæmt könnun First Austrian Bank var hægt að skipta viðhorf- Sparisjóður Norðfjarðar stofnsettur 1920 Símar 97-71125 og 71425 Pósthólf 58 Eflum heimabyggðina — skiptum við sparisjóðinn 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.