Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 50
FISKELDI
FRAMTÍÐ LAXELDIS Á ÍSLANDI
- SÉÐ FRÁ SJÓNARHÓLIÚTLENDINGS
Ég tók þátt í fyrstu
tilraununum með lax-
eldi Atlantshafslax í
Skotlandi 1968, en
hafði þar áður stundað
rannsóknir á sjúkdóm-
um í eldisflatfiski, sil-
ungi og bleikju. Frá ár-
inu 1973 hef ég fengist
við þróun nýrrar tækni
í laxeldi og þróun
nýrra fiskeldisfyrir-
tækja samhliða fjár-
festingarráðgjöf og
ráðgjöf fyrir fjárfest-
endur, fjármálastofn-
anir og tryggingafélög.
Ég hef unnið í yfir tutt-
ugu löndum og í tæp-
lega 40 fiskeldisfyrir-
tækjum sem óhjá-
kvæmilega hafa mörg
verið tengd laxeldi. Ég
hafði því ákveðnar
skoðanir á laxeldi og
vandamálum þess
þegar ég kom í fyrsta sinn
til íslands 1985.
A þessu ári einu hef ég dvalið
meira en 7 vikur á íslandi. Mér
þykir vænt um bæði land og þjóð og
kann að meta hefðir ykkar og lífs-
máta. Ég er nógu dramblátur til að
telja suma Islendinga meðal vina
minna. Ég held ég eigi mér fáa óvild-
armenn hér, þrátt fyrir að ég sé með-
vitaður um vissa tortryggni sumra í
minn garð vegna hins óíslenska ávana
míns að láta skoðanir mínar í ljós á
ákveðinn og opinskáan hátt. Birting
þessarar greinar kann að ala enn á
þessari tortryggni en ég vonast til að
greinin muni koma þeim sem núna
fást við laxeldi á íslandi að nokkru
gagni hvort sem um er að ræða
rekstraraðila, ráðgjafa, fjármögnuna-
raðila eða tryggingafyrirtæki.
Laxeldi er áhættusöm atvinnu-
grein. Hún felur í sér alla þá áhættu
þess að áhætta og ávöxtun
eru sinn hvor endinn á
vegasalti og ættu ekki að
skoðast í einangrun. Það
er á áhættumati, eða
a.m.k. skynjun, sem fjár-
festingarákvarðanir eru
byggðar og fjármagnsupp-
bygging ákveðin — eða
þannig ætti það að vera!
Kannski ákvarðanir séu
teknar öðruvísi á íslandi?
Allt velheppnað laxeldi
byggir á flotkvíaeldi
gönguseiða upp í markaðs-
hæfa stærð. Flotkvíarnar
eru misjafnlega flóknar.
Arðbærustu fyrirtækin,
sérstaklega í Noregi,
byggja á einföldum kvíum
og litlum fjárfestingar-
kostnaði. Opnari svæði
krefjast flóknari og dýrari
kvía. Engu laxeldi sem
byggir á notkun flóknustu
gerða kvíanna hefur hing-
að til tekist að ná arði út úr
þeirri miklu þárfestingu sem til
þarf. Almennt séð þá er laxeldi í
flotkvíum á íslandi óframkvæm-
anlegt sökum vetrarveðra og ofur-
kælingar sjávarins. Fiskur er alinn í
flotkvíum á íslandi en sú starfsemi er
ótraust, óútreiknanleg, óhóflega erfið
og óarðbær. Líta má á þessa aðferð
fremur sem fjárhættuspil heldur en
fjárfestingu og á íslandi þá eru líkurn-
ar alltaf veðurguðunum í vil. íslensk
tryggingafyrirtæki eru enn að læra
þessa dýrkeyptu lexíu, og á endanum
munu öll íslensk laxeldisfyrirtæki
gera það líka.
Þær fjárfestingar í laxeldi sem
hægt er að taka alvarlega á íslandi
byggjast á eldi í landi og notkun dælu-
vatns. Engir raunhæfir valkostir eru
til en við þurfum að gera okkur grein
fyrir því að þetta er afbrigðilegt form
laxeldis, þekkking á tækninni og að-
Áhættan er sennilega minnst í Suður-Noregi.
Laxeldi er áhættusamara í Norður-Noregi og í
Skotlandi og enn áhættusamara á írlandi
og í Færeyjum og nálgast fífldirfsku
í Kanada, Chile og á
íslandi.
sem fólgin er í ræktun hvaða bústofns
sem er og auk þess þá sérstöku
áhættu sem fólgin er í sjónun eða
vatninu sem fiskurinn lifir í. Áhættan
er sennilega minnst í Suður-Noregi
þar sem skjólgóðir firðir skapa, með
lágmarkstilkostnaði, nánast fullkomið
umhverfi fyrir fiskeldi. Laxeldi er
áhættusamara í Norður-Noregi og í
Skotlandi og enn áhættusamara á ír-
landi og í Færeyjum og nálgast fífl-
dirfsku í Kanada, Chile og á íslandi.
Þetta áhættumat er mikilvægt vegna
50