Frjáls verslun - 01.08.1989, Síða 64
ERLENT
FLUGVELIHVALSLIKIYFIR
BANDARÍKJUNUM
- „MENN EIGfl EKKIALLTAF AÐ KLÆÐAST EINS OG ÞEIR SÉU AÐ FARA í
JARÐAFÖR," SEGIR HUGMYNDASMIÐURINN
Sérkennileg flugvél flaug fyrstu viku
júnímánaðar um Bandaríkin þver og
endilöng og næsta árið á hún oft eftir
að sjást á flugi yfir Texas eða á flug-
völlum þar. Þetta er ný Boeing far-
þegaþota af gerðinni 737-300, en er
nýstárleg að því leyti, að hún er eins
og risastór höfrungur að sjá.
Vélin er í eigu Southwest Airlines í
Texas og fyrir tilstilli snjalls auglýs-
ingamanns var um það samið að þessi
vél, sem einkum flýgur milli Dallas og
San Antonio, skuli vera í þessu
„hvalslíki“ næsta árið. Tilgangurinn
er að vekja í senn athygli á flugfélag-
inu og einnig á nýjum sædýragarði í
San Antonio. Aðdráttarafl þessa nýja
skemmtigarðs er höfrungur, sem ber
naftiið Shamu og var vélin máluð sem
„fljúgandi" eftirlíking hans.
Ýmislegt fleira en litir flugvéla-
skrokksins minna á Shamu og nýja
sædýragarðinn í San Antonio. Eftir-
líking af honum er á öllum glasapinn-
um sem farþegar fá og mynd af hon-
um er á munnþurrkum sem farþeg-
arnir fá.
Það kostaði 125 þúsund dollara (um
7.5 milljónir króna) að mála vélina í
hvalslitunum. Það er semsé dýrara
Kelleher: Léttlyndur og hugmynd-
aríkur forstjóri.
en hvalurinn sjálfur. Að sögn tals-
manna flugfélagsins kostar venjuleg
flugvélarmálning um 30 þúsund doll-
ara. Samkvæmt samningi milli South-
west og sædýragarðsins ber flugvélin
þessa liti um eins árs skeið.
Southwest flugfélagið á nú 84 flug-
vélar og hefur dafnað vel á undanföm-
um árum. Maðurinn á bak við vel-
gengnifélagsins, — og ýmsar auglýs-
ingabrellur, sem vakið hafa mikla
athygli hjá félaginu, er Herb Kel-
leher, stjómarformaður þess. Það er
opinbert leyndarmál, að hann átti
hugmyndina að „hvalnum fljúgandi",
þótt framkvæmdin hafi verið í hönd-
um auglýsingastofu, sem annast alla
auglýsingastarfsemi fyrir Southwest
flugfélagið og nýja sædýragarðinn í
San Antonio.
Flugvélar og höfrungar á flugi eru
ótrúlega lík, sagði hann er hann setti
fram hugmyndina um að örva ferðir til
nýja sjávardýragarðsins með því að
fljúga þangað í flugvél í hvalslíki.
MINI-PILS 0G ÓKEYPIS LÉTTVÍN
Herb Kelleher átti einnig hug-
myndina að því að láta flugfreyjur
Southwest klæðast mini-pilsum við
störf sín á fyrstu árum áttunda ára-
tugarins. Þá stóð féalgið á brauðfót-
um og átti aðeins þrjár flugvélar, en
fargjaldastríð var þá í algleymingi.
Flugfreyjurnar í mini-pilsunum vöktu
athygli um allan heim og urðu félaginu
drjúg tekjulind, enda voru þær vel
kynntar í sjónvarpi og blöðum. Ekki
sakaði, að þessar léttklæddu freyjur
færðu farþegum Southwest flösku af
léttu víni án endurgjalds.
„Mér fmnst gaman að glíma við nýj-
ar hugdettur, sem falla fólki vel í
geð“, sagði Kelleher nýlega í blaða-
viðtali. „Sumar hugmyndir mínar hafa
að vísu verið heimskulegar, en við
tökum samkeppnina alvarlega en ekki
sjálfa okkur."
Hugdettur eins og hér hefur verið
„Hvalurinn fljúgandi“, sem fór í loftið 1. júní og á að flytja þúsundir ferða-
manna til Texas og vekja atjygli á vaxandi flugféalgi og nýjum sædýragarði.
64