Frjáls verslun - 01.07.1991, Page 10
FRETTIR
EINKAVÆÐING BÚNAÐARBANKANS:
KAUPA SPARISJÓÐIRNIR HLUT?
Sparisjóðirnir í landinu
eru nefndir sem hugsan-
legur stór kaupandi
hlutabréfa í Búnaðar-
bankanum þegar ríkis-
sjóður býður bankann til
sölu á hlutabréfamark-
aði, eins og flest bendir til
að geti gerst fyrr en síðar.
Flest bendir til að
ákveðinn vilji sé fyrir því
innan ríkisstjórnarinnar
að hefja markvissa áætl-
un um sölu ríkisfyrir-
tækja með því að breyta
Búnaðarbankanum í
hlutafélag og bjóða hluta-
bréfin síðan til sölu á
markaðnum. Ætla má að
ströng skilyrði verði sett
fyrir sölu bréfanna, m.a.
til að koma í veg fyrir að
öflugir aðilar geti hrifsað
völdin í bankanum til sín.
Eins hefur verið rætt um
að hagsmuna starfs-
manna bankans verði
gætt með því að gefa þeim
kost á að kaupa hlutabréf
á hagstæðara verði en
öðrum.
Sennilegt er talið að
sparisjóðirnir hafi áhuga
á að kaupa hlutafé í Bún-
aðarbankanum til að
styrkja stöðu sína á fjár-
magnsmarkaðnum. Bent
er á að þegar sé verulegt
samstarf milli spari-
sjóðanna og Búnaðar-
bankans, en þessir aðilar
eiga Kaupþing hf. sam-
eiginlega. Eins og kunn-
ugt er keypti Búnaðar-
bankinn helming hluta-
bréfa í Kaupþingi þegar
Pétur Blöndal seldi
meirihluta sinn á síðasta
ári. Lánasjóður spari-
sjóðanna keypti 1%
hlutabréfa og með því má
segja að allir sparisjóðir í
landinu séu hluthafar í
Kaupþingi.
Samstarf þessara aðila
mun hafa gengið mjög vel
og því þykir áhrifamönn-
um í sparisjóðunum það
geðfelld hugmynd að
stefna að því að kaupa
hlutafé í Búnaðarbankan-
um og efla samstarf bank-
ans og sparisjóðanna enn
frekar.
MARKÚS ÖRN ANTONSSON:
EKKIFYRSTIBORGARSTJÓRISJÁLFSTÆÐIS-
MANNA SEM Á EKKISÆTI í BORGARSTJÓRN
Valið á Markúsi Erni
Antonssyni í embætti
borgarstjóra hefur al-
mennt mælst vel fyrir.
Nokkurt veður hefur þó
verið gert út af því að
hann eigi ekki sæti í borg-
arstjórn Reykjavíkur og
hafa ýmsir haldið því
fram að með því væru
sjálfstæðismenn að
brjóta hefð. Sagnfræðing-
urinn og borgarfulltrúinn
Ólína Þorvarðardóttir
hefur m.a. haldið þessu
fram og reynt að setja upp
vandlætingarsvip.
En lítum á sögulegar
staðreyndir. Þegar Knud
Zimsen lét af störfum
borgarstjóra af heilsu-
farsástæðum á miðju
kjörtímabili árið 1932 tók
Jón Þorláksson við af
honum. Þá voru liðin 10
ár frá því hann átti sæti í
borgarstjórn Reykjavík-
Hinn nýji borgarstjóri Reykvíkinga er ekki sá fyrsti sem er
ekki borgarfulltrúi.
Markús Örn er því ekki
fyrsti borgarstjóri á
valdatíma Sjálfstæðis-
flokksins sem kemur til
starfa án þess að vera
borgarfulltrúi. Fordæmið
er til þó langur tími sé lið-
inn frá því Jón Þorláks-
son tók við borgarstjóra-
starfinu.
10