Frjáls verslun - 01.07.1991, Side 28
UPPELDI
FORELDRAR Á VINNUMARKAÐI:
VERÐA BORNIN
ÚTUNDAN?
íslenskt þjóðfélag hefur tekið
mjög örum breytingum á undan-
förnum tuttugu árum. Fyrir fá-
einum áratugum var það undan-
tekning ef konur unnu utan
heimilis. Staður konunnar var
þá inni á heimilinu þar sem hún
gætti bús og barna. En nú er öld-
in önnur. Um 90% íslenskra
kvenna vinna að einhverju leyti
utan heimilis, enda krefst
venjulegur heimilisrekstur á Is-
landi í flestum tilvikum úti-
vinnu beggja foreldra.
Sennilega hafa fáar þjóðir upplifað
jafn örar breytingar á lífsháttum sín-
um og íslendingar. Fyrir tæpum eitt
hundrað árum voru íslendingar ein af
fátækustu þjóðum í Evrópu, en nú
eru aðstæður allar betri. Islendingar
hafa þó þurft að hafa fyrir sínum efna-
hagslegu gæðum með mikilli vinnu.
Atvinnuþátttaka hjóna er mun meiri
hér en á hinum Norðurlöndunum en
auk þess vinna íslendingar almennt
lengur dag hvern en norrænir frænd-
ur þeirra. En hvaða áhrif hefur það á
TEXTI: ÍRIS ERLINGSDÓTTIR MYNDIR: HREINN
börn að sjá ekki foreldra sína nema
nokkrar stundir á degi hverjum og þá
kannski þreytt eftir erilsaman vinnu-
dag?
„HEIMUR VERSNANDI FER“
Rannsóknir, sem gerðar hafa verið
í Bandaríkjunum, benda til þess að
„heimur versnandi fari“. í grein í
bandaríska tímaritinu Fortune kemur
fram að samkvæmt rannsókn, sem
gerð var af University of Maryland,
verji bandarískir foreldrar að meðal-
tali aðeins sautján klst. á viku með
börnum sínum. Meðaleinkunnir þar-
lendra barna hafa lækkað á undan-
förnum þrjátíu árum, sjálfsmorð ung-
linga eru tíðari og fleiri unglingar
komast í kast við lögin en áður. Ýmsir
sálfræðingar vilja kenna því um að
börn séu miklu meira ein en áður tíðk-
aðist og skorti tengsl við foreldra
sína. Þessum niðurstöðum ber þó að
taka með fyrirvara. Það væri að
hengja bakara fyrir smið að sakast við
foreldrana. í greininni kemur fram að
þeir, sem gagnrýna harðast útivinnu
HREINSSON
beggja foreldra, sérstaklega mæðra,
eru öfgafullir íhaldsmenn sem oft
gleyma að taka með í reikninginn að
flestir bandarískir foreldrar verða að
vinna úti, hvort sem þeim líkar betur
eða verr.
Engar rannsóknir hafa verið gerðar
hér á landi á því hvort langur vinnu-
dagur beggja foreldra, og þar með
fjarvera frá börnum, hafi skaðleg áhrif
á börn. Þeir sálfræðingar og félags-
fræðingar, sem Frjáls verslun hafði
samband við, voru tregir til að tjá sig
um málið og vildu ekki tjá sig um pers-
ónulegar skoðanir sínar. „Það hafa
engar rannsóknir verið gerðar hér-
lendis á þessu sviði og því er fremur
óvarlegt að kasta fram fullyrðingum,"
sagði einn viðmælandi blaðsins í Há-
skóla íslands. „Fólk hefur verið að
segja „heimur versnandi fer“ sl. þrjá-
tíu ár og það er vandalaust að finna
rök sem styðja það. En það er líka
auðvelt að finna rök á móti. Það er
hægt að finna erlendar rannsóknir
sem sýna að það sé slæmt fyrir börn
að vera ekki í gæslu foreldra sinna en
það eru líka til aðrar rannsóknir sem
28